Jazz - 01.06.1947, Qupperneq 5

Jazz - 01.06.1947, Qupperneq 5
Kay Davies stofnun qiuntettsins réði Duke Ellington sig til The Kenntucky Club í Harlem og var þar í fimm ár og vakti hljómsveit hans mikla athygli. Þaðan fór hann til Cotton-klúbbsins í Harlem og fluttist með Honum til New York. Duke hætti um tíma í Cotton-klúbbnum og lék þá á mörgum stöðum m. a. með Maurice Chevalier í Fulto-leikhúsinu einnig réð Flo Zigfield hann til þess að leika í „The Show Girl“, er vakti óhemju hrifningu ekki síst vegna leiks Ellingtons. Evrópuferð Ellingtons. Duke Ellington hefur farið tvisvar til Ev- rópu, sumariö 1933 og í apríl 1939. Má með sanni segja að Duke hafi „komið, séð og sigr- að“ í báðum þessum ferðum sínum. Hann fékk konunglegar móttökur og t. d. í Bretlandi voru haldnar veizlur fyrir hann af Beaverbrook lávarði og hertoganum af Windsor og er Ellington kom til Danmerkur 1939 voru nokkrir Þjóðverjar komnir til að hlusta á hann og þeir sögðu honum að ef fréttist til Þýzkalands að þeir hefðu hlustað á hann yrðu þeir að taka út margra ára hegn- ingarvinnu fyrir að hlusta á amerískan Jazz. Duke hefur þann sið, er hann ræður sig til hljómleikahalds að í auglýsingum er bannað að kalla hljómleikana Jazzhljómleika heldur verður að kalla þá Ellingtonhljómleika því að eins og umboðsmaður Ellingtons segir þá má skipa öllum hljómsveitum Bandaríkjanna í einn flokk og hljómsveit Dukes í annan, því meðal þúsunda hljómsveita má þekkja Duke, útsetningar hans eru alltaf sérkennilegar, hnitmiðaðar, ekki dægurflugur, heldur útsetn- ingar, er lifa í eyrum fólksins um áratugi. Tónsl{ál(lið Ellington. Duke Ellington er ekki aðeins framúrskar- andi útsetjari, hann er einnig gott tónskáld. Lög hans hafa hvað eftir annað verið kjörin beztu danslög ársins og lög, er hann samdi 1928—32 eru eins vinsæl nú og þau voru þá. Meðal laga hans má nefna: „Black and Tan Fantasy“, „Mood Indigo“, „It Dont Mean a Thing“, „Sophisticated Lady“ og síðast en ekki síst „Solitude“. Nú er Ellington að semja óperu byggða á sögu negranna í Bandaríkjunum. Stjörn u h Ijó msveit. Það má með sanni kalla hljómsveit Elling- tons stjörnuhljómsveit, þar sem hvert rúm er skipað og má nefna nokkur dæmi um þá menn, er Duke hefur á að skipa. Rex Steward trompetleikarinn frægi, hefur oft verið kjörinn bezti trompetleikari Bandaríkj- anna, og mun seinnna verða birt sérstök grein um hann. t>á má nefna saxófónleikarann JAZZ 5

x

Jazz

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.