Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 6

Jazz - 01.06.1947, Blaðsíða 6
Johnny Hodges með betri Alt-saxófónleikur- um Bandaríkjanna. Hodges er fæddur 1908 í borginni Roxbury Mass. Hann byrjaði snemma að læra saxófón- leik og byrjaði að leika í hljómsveit 13 ára. 15 ára lék hann með hljómsveit Joe Steel. Johnny var mikið undir áhrifum Bechet saxófónleikarans fræga, en seinustu árin er tónn hans orðinn persónulegri og betur mót- aður og það má segja að hann taki Bechet fram í mörgum greinum. Einnig má minnast á trombónleikarann Lawrence Brown. Einn einkennilegasti persónuleikinn í hljóm sveitinni er söngvarinn A1 Hibbler, hann er blindur en rödd hans er þrungin ástríðu- blöndnum trega og nær dramatiskum krafti. Einnig er rétt að geta þess að söngkonurnar Kay Davies og Marion Cox syngja með hljómsveitinni. Hvernig er Ellington? Það má segja að Duke Ellington sé sívinn- andi. Hann sefur aðeins fjórar stundir á sólar- hring og segist vel komast af með það. Duke er tvígiftur og seinni kona hans fylgir honum alltaf á næturklúbbinn, sem hann leikur í, því að annars myndi hún aldrei sjá hann. Duke tekur sér hálfsmánaðarfrí á hverju ári, en hann fer ekki upp í sveit til þess að njóta sveitaloftsins, nei, þá sækir Duke alla næturklúbba New York-borgar, því að eitt af því, er Duke þolir ekki eru kindur, kýr og sveitaloft. Duke er þekktur um öll Bndaríkin fyrir hve hann á mikið af fötum. Hann kaupir sér 20—30 hatta árlega og hann á óteljandi bindi og hundruð skyrtna. Hann á tuttugu veÍ7.1uklæði og vill sterka og æpandi lita- samsetningu í klæðaburði. Þetta er í stuttu máli saga Duke Ellingtons svertingjadrengsins, er byrjaði að leika á píanó eftir eyranu og þrátt fyrir kynþáttahatur og lítilsvirðingu á svertingjum ávann sér virð- ingu allra leiðandi manna um heim allan, hvort sem þeir eru jazzistar eða shrdlu etaoi A 20 ára hljómlistarafmæli hans fékk hann heiðursskjal, er var undirritað af fjölda frægra manna m. a. Stokowski og Stravinsky, og það sýndi hvaða álit þessir jöfrar klassiskrar tón- listar hafa á starfi Dukes, og þeim skilning er þessir menn leggja í jazzinn, og megi starf Ellingtons verða til þess að jazzinn haldi áfram að þróast til gagns og gleði miljóna manna um heim allan. Tímaritið Jazz kemur ekki út aftur fyrr en í september vegna sumarfría. 6 JAZZ

x

Jazz

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazz
https://timarit.is/publication/724

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.