Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Side 3
HVER VEIT?
Viðlnl við
SVEIN ÁSGEIRSSON
hagfræðirig.
Spurningaþátturinn „Hver veit?“ er
orðinn mjög vinsæll liður í dagskrá út-
varpsins, og mun það ekki hvað sízt að
pakka stjórnanda hans, Sveini Ásgeirs-
syjii hagfræðingi, sem annazt hefur
þennan þátt af mikilli röggsemi, og er
Sveinn nú kominn í tölu vinsælustu út-
varpsmanna.
Sveinn Ásgeirsson er ungur mennta-
maður, aðeins 27 ára að aldri. Hann
lauk stúdentsprófi við Menntaskólann í
Reykjavík árið 1944 og las fyrri hluta
lögfræðinnar árið eftir. Hann sigldi síð-
an til Svíþjóðar, þar sem hann stundaði
nám við háskólann í Stokkhólmi. og
lauk þar kandídatsprófi í hagfræði og
bókmenntum, með listsögu og heim-
speki sem aukafög.
Sveinn kom heim árið 1950 og er nú
fulltrúi borgarstjórans í Reykjavík.
Útvarpstíðindi sneru sér til Sveins og
spurðu hann að ýmsu í sambandi við
þennan þátt hans. Leysti Sveinn greið-
lega úr spurningunum, og fer samtalið
hér á eftir.
Er það ekki erfitt hlutverk, að sjá
um þáttinn „Hver veit?“?
Það held ég að öllum myndi finnast.
Þegar Ríkisútvarpið fór þess á leit við
mig, að ég reyndi að koma á fót ein-
hvers konar spurningaþætti, taldi ég
öll tormerki á því. Mér var þó veittur
góður umhugsunarfrestur, og við nán-
ari athugun fannst mér viðfangsefnið
allt að því lokkandi, tilraunin væri þess
verð, að þún væri gerð, þrátt fyrir alla
væntanlega erfiðleika og augljósa á-
hættu.
Voru ekki ýmis vandkvæði í byrjun
á að finna fast form fyrir þessa spurn-
ingaþætti?
Ég var sannfærður um það, að ein-
staklingar fengjust ekki nema í hópi
og hópar ekki nema til keppni. Og það
er hætt við, að svo verði, meðan kven-
leg óframfærni hjá fullorðnum karl-
mönnum er talin til dyggða hér á landi.
Á slíkum þáttum sem þessum má hugsa
sér margs konar form, þótt ég hafi valið
þetta. Og þa'ð er um að gera að breyta
nægilega oft um form á útvarpsþáttum;
ÚTVAKPSTÖDXNDI
3