Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Qupperneq 6

Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Qupperneq 6
vísu eftir hann, sem hann hefði ekkert kannazt við. Hefði hann því tekið Bjarna úr bókaskápnum og ekki hætt fyrr en hann hefði fundið vísuna. Þetta er lítil saga um það, hvað slíkur þáttur sem þessi getur gert. Ef hann veitir fróðleik og forvitni til meiri fróðleiks og lestrar, og um leið einhverja eftir- væntingu og ef til vill skemmtun, þá er tilganginum náð. Og það var þetta eftirsóknarverða mark, sem gerði það að verkum, að ég lagði út í þetta áhættu- sama fyrirtæki. Þetta hefur tekizt mis- jafnlega, og er það fyrst og fremst mér að kenna og hinum mjög ófullkomnu aðstæðum; en ég er hjartanlega þakk- látur öllum þeim, sem hafa sezt á pínu- bekkinn fyrir framan mig og hlustend- ur. Þeir eru orðnir nokkuð margir, sem komið hafa fram í þessum þáttum? Já; þetta er eflaust sá af föstum þátt- um útvarpsins, sem einna flestir hafa komið fram í, og þannig hefur útvarpið komizt í nánara samband við fólkið al- mennt. Um hundrað manns hafa komið fram í 6 þáttum. Það hefur verið mjög ánægjulegt að stuðla að þessu. Ég tók upp „viðbótarþáttinn“, um leið og hann yrði óvænt atriði, til þess að sýna nýja tegund af útvarpsþætti, sem gæti komið til mála, þegar slík tækifæri byðust sem þessi, — úr því að þeir voru uppi í út- varpssal hvort eð var. Mér fannst það geta verið fróðlegt og e. t. v. lærdóms- ríkt, að kynnast félagslífi ýmissa starfs- mannahópa hér; en yfirleitt er það dauft og fábreytt. Og enn fremur væri hægt að lokka fram í útvarpið ýmsa skemmti- krafta, sem ekki myndu koma fram í útvarpinu án tilefnis eins og til dæmis þessa. Flestum félögum er algerlega um megn að halda sjálfstæðar útvarps- kvöldvökur. — En hvers vegna endilega að teygja það út heilt kvöld — og þar með tjalda öllu, sem til er, og eyðileggja dagskrána meira og minna? Tvö—þrjú atriði geta verið mátuleg. Betra að hlustendum finnist dakskrárliðirnir of stuttir en nógu langir. Krause-hjónin voru á skemmtigöngu í dýra- garðinum. „Hvenær ætli öpunum sé gefið að eta?“ spurði Krause. „Hana nú,“ hreytti frúin út úr sér. „Ertu nú srax orðinn svangur aftur?“ ■ ★ Kurt er yfir sig ástfanginn af Lilo. „Viltu verða konan mín?“ spyr hann ástríðu- þrungið. „Já,“ hvíslaði hún. „Og hvenær ætti ég að tala við föður þinn?“ „Helzt einhvern tíma að kvöldi til, — þá er hann alltaf á flókaskónum sínum!" ★ Emil vann við næturvörzlu. Hann ætlaði að kv'ænast og bað um frí til miðnættis. „Kæri vinur," sagði húsbóndi hans vingjarn- lega; „úr því að þér ætlið að kvænast, getið þér íengið frí í alla nótt.“ Emil svaraði: „Þess gerist ekki þörf, húsbóndi góður; hún er nefnilega ekkja.“ ★ Á gamlársdag kom Fritz inn á lögreglustöð- ina með tösku í hendinni og lét hana upp á borðið. „Hvað er í þessari tösku?" spurði varðstjórinn. „Náttfötin mín, inniskór og tannbursti," svar- aði Fritz. „Ég er að fara á áramótadansleik og lendi áreiðanlega hérna að honum loknum." ★ „Jæja,‘ sagði Jói við kunningja sinn; „nú hef ég ákveðið að ganga í ævilangt bindindi! Síðast, þegar ég lenti á því, sá ég tengdamóður mína tvöfalda!" ÚTVARPSTÍÐINÐI 6

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.