Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Síða 8

Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Síða 8
mölina; og allt í einu sleit hann upp handfylli sína af stjúpmóðurblómum í villtri þrjózku. Honum ægði svo dirfska sín, að hann hélt niðri í sér andanum og leit út undan sér til móður sinnar. En hún hafði þrýst sér enn fastar að manninum og sá ekkert, sem fram fór, því hún var með lokuð augun. Þá æpti drengurinn hátt og skerandi, svo að heyrðist langar leiðir: „Ég skal segja pabba mínum það! — Ég skal segja pabba það!“ Stóð svo grafkyrr með opinn munninn, hálfsturlaður af hugaræsingu, því að honum var full- ljóst, að hann hafði sagt eitthvað hræði- lagt. „Árni! — Hvað er þetta?“ sagði rödd mömmu, og hún var svo full hryggðar, að það vakti honum undarlega og kitl- andi kennd niður í fætur. Hún kom hlaupandi og tók hann upp og var með tárvot augu; en það var jafngott, því sjálfur var hann það ó- sjaldan. „Árni minn! — Hvers vegna segirðu þetta? Veiztu ekki, að pabbi hljóp í burtu frá mömmu og Árna? Og hvað hefðum við svo gert, ef Georg hefði ekki komið til okkar. Georg er svo góður og þykir svo vænt um þig, ef þú aðeins ert prúður drengur.“ Hann hjúfraði sig upp að henni og lét hana hampa sér eins og brjóstabarni. Hann var brjóstabarn og þráði að vera það. Og nú mátti hann, þessi Georg, sigla sinn sjó. Hann horfði hlakkandi yfir öxlina á móður sinni á manninn á flötinni, sem beit á jaxlinn án þess að nokkur skeytti því hót. Mamma sleppti ekki barninu sínu, heldur settist hún á garðstólinn og vagg- aði honum mjúklega: „Uss, Árna stúfur; uss, uss —“ PROKOFIEFF LÁTINN Rússneska tón- skáldið Serge Prokofieff er ný- lega látinn, tæp- lega 62 ára að aldri. Utan Rúss- lands var hann frægastur allra Sovét-tónskálda, enda starfaði hann erlendis, einkum í Frakklandi og Bandaríkjunum, hálfan annan áratug á bezta skeiði ævi sinn- ar, og frá þeim tíma eru mörg kunn- ustu verk hans. — í Ráðstjórnarríkj- unum hafði hann verið búsettur frá því 1934. Þar sætti hann misjafnri meðferð, — ýmist hlaut hann hin æðstu verðlaun og viðurkenningarmerki eða hann varð að þola harðar ákúrur og gagnrýni á yerkum sínum, og gaf sig undir hana með ótrúlegu lítillæti og auðsveipni við sína pólitísku húsbænd- ur. En verk hans frá þessu síðasta tíma- bili ævi hans hafa, með fáum undan- tekningum, ekki aukið miklu við frægð hans í hinum vestræna heimi. Prokofieff var fæddur í þorpinu Sont- zovka í því héraði Rússlands, sem nú er kennt við Dnjepropetrov, 23. apríl (nýi stíll) 1891. Hann byrjaði lagsmíði þegar hann var á sjötta ári og var snemma komið til tónlistarnáms, en heima fyrir hafði hann notið tilsagnar móður sinn- ar, sem var allgóður píanóleikari. Meðal kennara hans voru ýmis frægustu tón- skáld Rússa kringum og eftir aldamót- in: Rimsky-Korsakov, Gliere, Liadov, 8 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.