Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Side 15

Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Side 15
PROKOFIEFF Framh. af bls. 9. sertar og kammermúsik, fimmta píanó- sónatan og mörg fleiri verk. Af þeim tónverkum, sem Prokofieff samdi eftir að hann hvarf alfarinn til Rússlands 1934, hefur „Pétur og úlfur- inn“ náð mestri útbreiðslu hér í hinum vestræna heimi, og mun það þó ekki vera veigamesta verkið. Prokofieff hefur ekki rutt nýjar leiðir á sviði tónlistarinnar og ekki .lagzt mjög djúpt í verkum sínum yfirleitt eða brot- ið erfið viðfangsefni til mergjar. En hann er leiftrandi snjall höfundur, gæddur kímnigáfu, sem stundum nálg- ast kerskni, og ljóðrænni hneigð, sem hann sjálfur taldi stundum vera mjög vanmetna. Tónlist hans er hlaðin lífi og orku, sem er hressandi og hrífandi á sinn hátt, enda þótt hún skilji sjaldan eftir djúp eða varanleg áhrif hjá áheyr- andanum. J. Þ. Þórarinn Guðnason læknir, flytur á næstunni erindi að tilhlutan Krabbameinsfélags íslands. Mánudaginn 13. apríl verða þessi tónlistar- atriði flutt: Útvarpshljómsveitin; Þórarinn Guðmundsson stjórnar: a) Úr þjóðlögum Sveinbjörns Sveinbjörns- sonar. b) „Don Juan“, forleikur eftir Mozart. Einsöngur: Anna Þórhalisdóttir syngur; Fritz Weisshappel aðstoðar: a) „Land míns föður“, eftir Þórarinn Guð- mundsson. b) „Vögguvísa", eftir Sigurð Þórðarson. c) „Widmung", eftir Kobert Franz. d) „An die Laute", eftir Schubert. . ’ e) „Lachen und Weinen", eftir Schubert. f) „Sandmannchen" ,eftir Brahms. g) „Ave Maria", eftir Þórarinn Jónsson. Skoðanakönnunin Frestur til að skila atkvœðaseðli fratnlengdur lil 25. april. Atkvæðagreiðslan um vinsælustu út- varpsmenn ársins 1952, sem Útvarps- tíðindi efndu til í síðasta hefti, er nú í fullum gangi. Berast atkvæðaseðlarnir nú ört til afgreiðslu blaðsins, og virðist þátttakan orðin mikil strax. En vegna þess, að við óttumst að ýmis byrjunar- mistök verði á dreifingu þessa fyrsta heftis, og að þess vegna m. a. hafi frest- urinn, sem við hugsuðum okkur í upp- hafi, verið of naumur með tilliti til fólks úti um land, höfum við ákveðið að framlengja frestinn til að skila at- kvæðaseðli til 25. apríl, og vonum, að sá tími muni nægja til þess að fá al- menna þátttöku. Það skal tekið fram, að enn eigum við nokkurt upplag af þessu fyrsta hefti, og séu einhverjir, sem sérstakan áhuga hafa á þessari skoðanakönnun, geta þeir skrifað okkur og fengið atkvæðaseðla til dreifingar. Þessi fyrsta skoðanakönnun hinna nýju Útvarpstíðinda hefur fengið hinar beztu undirtektir. Er almennt álitið, að niðurstöður hennar geti orðið til mikils gagns. Má í því sambandi benda hér á ummæli Morgunblaðsins um þessa skoð- anakönnun, en þar segir Velvakandi m. a. (13. marz ’53): „Líklegt er, að vinsæl muni reyn- ast meðal hlustenda skoðanakönnun sú, sem hin nýju Útvarpstíðindi hafa stofn- að til um það, hverjir hafi verið vin- sælustu útvarpsmennirnir árið 1952. Með því að taka þátt í þessari atkvæða- greiðslu, gefst hlustendum ágætt tæki- ÚTVARPSTÍÐINÐI 15

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.