Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Page 16

Útvarpstíðindi - 01.04.1953, Page 16
Þessir þættir eru, eins og nafnið bendir til, ætlaðir til þess að koma óskum og gagnrýni á- hugasamra útvarpshlustenda á framfæri. Kins og við höfum áður tekið fram, er okkur það mikið áhugamál að sem flestir sendi okkur greinar til birtingar í þessum þætti, og hefur fyrrverandi ritstjóri Útvarpstíðinda sagt okkur, að fyrr á árum hafi blaðinu borizt meira efni frá áhugasömum hlustendum en það nokkurn tíma gat birt. En þá var líka nýjabrum á út- varpinu og áhuginn á efni þess ennþá betur vakandi meðal almennings. En útvarpið er og verður svo snar þáttur í daglegu lífi þjóðar- innar, að áhugi hlustenda á efni þess má aldrei dofna. Þess vegna er það von okkar, að „Radd- ir hlustenda" verði jafnan háværar og fjöl- breyttar og erum við þakklátir öllum, sem þar láta til sín heyra. Okkur hefur borizt bréf frá ágætum velunn- ara Útvarpstiðinda norður í Skagafirði. Fer hann mjög vinsamlegum orðum um fyrsta hefti blaðsins, og um gagnrýni hans á því er- um við honum sammála og þakklátir. Hann segir m. a.: færi til að veita viðurkenningu eftir- lætum sínum við hljóðnemann. Ekki er heldur ósennilegt, að slík skoðanakönn- un geti í framtíðinni orðið þeim, sem koma fram í útvarpið uppörvun til að leggja sig enn betur fram við verkefni sín. — Útvarpsmenn eru mannlegir, engu síður en annað fólk!“, Við þetta er engu að bæta nema því, að Útvarpstíðindi skora á ykkur, góðir útvarpshlustendur, að taka þátt í at- kvæðagreiðslunni og eggja til þátttöku. Úrslitin getum við væntanlega birt í maí-hefti Útvarpstíðinda. „Þá finnast mér Raddir hlustenda frekar innihaldslitlar og í gamla daga var í hverju hefti ágæt smásaga, og þeirra sakna ég ef til vill einna mest. Ég hef í huga að senda ykkur bráðlega smápistil í Raddirnar og vænti þess, að hann líti þá náð í augum ykkar, að hann fái að fljóta heill og óskorinn í ritið. Ég vil að lokum geta þess, að í vetur, er Ragn- heiður Hafstein flutti sína ágætu útvarpssögu, bar svo við í sveit einni, að halda átti samsæti nokkurt á mánudagskvöldi. Gestir voru allir mættir á tilskildum tíma, kl. 10, en þá var von á útvarpssögunni. Var þröngt setinn Svarfaðar- dalur, þar sem viðtækið var, og einnig notazt við hátalara, og varð samsætið ekki sett fyrr en að loknum lestri sögunar." Við þökkum þessum skagfirzka bréfritara ágætt bréf hans og vonum, að ekki líði á löngu, að hann sendi okkur pistil í „Raddirnar". „Áskrifandi" skrifar og biður um tvo á- kveðna dægurlagatexta í þessu hefti: Drauma- landið eftir Kristínu Clausen og texta við lagið Ágústnótt eftir Oddgeir Kristjánsson. Því mið- ur barst okkur bréf þetta svo seint, að við getum ekki orðið við þessum óskum fyrr en í næsta hefti, og vonum, að bréfritarinn sýni okkur umburðarlyndi þangað til. Þau mistök urðu í síðasta blaði, að mynd, sem þar birtist í grein um Johann Sebastian Bach og sögð er af honum, er af Mozart. Biðj- umst við afsökunar á þessum mistökum, og þökkum þeim, sem hafa bent okkur á þau. Brynki var að koma úr hófi, dálítið valtur á fótunum. Hann fór inn í strætisvagninn og var ekki fyrr setztur en hann kveikti sér í sígarettu. Vagnstjórinn sneri sér að honum og sagði byrstur: „Sjáið þér ekki hvað stendur á skiltinu þarna: Reykingar bannaðar?“ Brynki svaraði með stökustu ró: „Og sjáið þér ekki skiltið, sem er við hliðina á því? Þar stendur: Notið „Lady“ brjóstahald- ara! Gerið þér það?“ ★ Gömul kona, sem sá Niagarafossana í fyrsta sinn, hrópaði upp yfir sig: „Drottinn minn! — Þá man ég það, að ég gleymdi að skrúfa fyrir kranann í eldhúsinu." 16 ÚTVARFSTlÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/728

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.