Prentarinn - 01.05.1911, Side 1
PRENTARINN
II. AR
MAÍ 1911 f 3. B L.
---------------S -- '--------.
TUTTUGU OG FIMM ÁR
PRENTARI.
Prentarinn hefir áður flutt mjrndir af
fimni prenturum, sem unnið hafa 25 ár sam-
íleytt við þá iðn. Petta vill hann gera fram-
vegis, eftir því sem föng verða
á, og skal hér bætt við hin-
um sjötta.
Friðfinnur Lárus
Guðjónsson er fæddur
21. september 1870, að Bakka
í Oxnadal i Ej'jafjarðar-
sýslu. Bvrjaði að læra prent-
iðn 16. maí 1886, í prentsmiðju
Björns Jónssonar, ritstjóra
»Fróða« á Oddeyri. Dvaldi
þar til haustsins 1890, fór þá
til Kaupmannahafnar og vann
í háskólaprentsmiðju J. H. Scliultz til vors-
ins 1892; kom með »Austra«-prentsmiðju til
Seyðisfjarðar, og prentaði »Austra« — sem þá
var ný endurreistur — í P/s ár. Ivom til
Reykjavíkur um liaustið 1894 og vann i ísafold-
arprentsmiðju til vors 1895; Iluttist þá til ísa-
íjarðar og prentaði þá nýstofnað blað er
»Grettir« nefndist. En það blað liætti eftir
liðlega árs tilveru, — og kom hann þá aftur
til Reykjavíkur og vann i ísafoldarprent-
smiðju fram til ársloka 1904, eða tæp 7 ár,
er hann gerðist einn af stofnendum prent-
smiðjunnar Gutenberg, og hefir unnið þar
síðan. Hann var þá þegar kosinn i stjórn
hlutaielagsins Gutenberg og hefir gegnt þar
skrifarastörfum til þessa.
Friðfinnur er einn af stofnendum Prent-
arafélagsins og var í stjórn þess 7 fyrstu
árin: féhirðir 1897—1901 og
formaður 1902 og 1903, og
auk þess gegnt ýmsum öðrum
störfum í félagsins .þaríir.
Auk þessa sem nú er sagt
er Friðfinnur mönnum að
góðu kunnur sakir leiklistar-
hælileika sinna, og er hann
talinn þar í fremstu röð hér.
Vinnu sína hefir hann þó ætíð
stundað vel, en haft leiklist-
ina að eins sem aukastarf.
Friðfinnur er maður skem-
inn og fjörugur, og er vinsæll meðal stétt-
arfélaga sinna og annara er kynni hafa af
honum.
Hann er kvæntur Jakobinu Torfadóttur
og á með henni fimm börn, þrjá syni og
tvær dætur.
Prentarinn óskar honum langra og góðra
lífdaga og vonar að hann eigi eftir mikið
starf óunnið, til heilla og blessunar fyrir
stéttarbræður sína.