Prentarinn


Prentarinn - 01.05.1911, Blaðsíða 2

Prentarinn - 01.05.1911, Blaðsíða 2
10 P R E N T A R I N N 400 ÁRA AFMÆLI PRENTLISTARINNAR Á ÍSLANDI. Arið 1930, mun að að líkindum liátiðlega haldið á einhvern hátt, þó varia »heima að Hólumcc, — nema máske af Akurevrarprentur- um?—, en mér virðist færi vel á því m e ð a 1 a n n a r s, að þá kæmi út minningarrit: Saga prentlistarinnar á Islandi, samin af góðum sagnfræðing þá; vönduð bók og virðuleg. Yrði bæði til ánægju og sóma prentarastétt landsins að kosta útgáfu slíka. »Prentarinn« getur orðið með tímanum alldrjúgt hjálpar- rit um seinustu mannsaldrana ef áhuga brest- ur ekki hjá félagsmönnum og fróðum vin- um og flytji hann eftir mætti myndir af prentsiniðjunum fyr og síðar, mestu dugn- aðar- og framfaramönnunum i listinni o. s. frv., og fyrir blaðinu finnn ég að vakir: að fræða um ýmsar greinar listarinnar og safna drögum til sögu hennar. Vona ég að þessu verði vel tekið og verði nú brátt stofnaður minningar- sjóður 400 ára afmælis prent- listarinnar á íslandi; og menn láti sér ekki fyrir brjósti brenna þau smáu út- gjöld sem af þessu mun stafa. — heldur telji sér ljúft og skylt að gera alt sitt til að helja list sína og stétt til frama og framfara í hví- vetna, og muni það, að miklu getur góður vilii áorkað. B. G. B. AMERÍSKAR PRENTSMIÐJUR. Útdráttur úr fyrirlestri cr haldinn var nýlega i xSvensk Bokindustri-museum«. I. Starfsemi Ameríkunianna byggist á því, að afkasta sem mestu á sem skemstum tíma, eða með öðrum orðum: afla rnikils fjár án mikillar títnatafar. Ef t. d. ný vél kemur á markaðinn, sem er betri og fljótvirkari en þær sem fyrir hendi eru, þá þj'kir sjálfsagt að skifta um vélar og horfa ekki í kostnað- inn. Samkepnin lifi, segja Ameríkumenn; það dugar ekki að láta tækifærið ganga úr greipum sér, þegar arðsamari og betri vél stendur til boða. Árangurinn af þessari að- ferð er sá, að allur iðnaður bendir á ótrú- lega miklar framfarir og gróða. Peir iðn- rekendur sem af einhverjum ástæðum taka ekki þátt í slikri samkepni, dragast aftur úr, eða veslast upp. Ameriskir verkamenn sýna að jafnaði meiri dugnað við vinnu sína en aðrar þjóðir. Petta kemur til af hinni miklu viðbót við vinnuliðið, sem daglega Ilyst inn i landið frá öðrum heimsálfum. Ameríski verkamaður- inn byrjar vinnu sína á ákveðnum tíma og hreyfir sig ekki til annars en þess er verk hans heimtar, fj'r en vinnutíminn er á enda. Ef verkamaðurinn á erindi i aðra deild á sömu verksmiðju á meðan vinnu- tíminn stendur yfir, fer liann til vfirmanns síns og segir lionuin frá því; fær hann þá spjald eða merki, sem hann tyllir utan á treyju sína, eða ber sýnilegl á einhvern hátt. Pegar liann kemur inn í hina deildina, sér yfirmaðurinn strax á merkinu, að liann er þar staddur í levfilegum erindagerðum, en beri hann ekki merkið, er honum samstundis vísað á dyr. Mér finst að hinn ameriski verkamaður áliti sig hafa fengið stöðu sína í verksmiðjunni, vegna þess, að vinnuveitand- inn beri traust til sín, og leggur hann því alt kapp á, að verkið verði íljótt og vel af hendi leyst. Ameriskur verkamaður er knúð- ur til að vera stundvís; hann veit það dugir ekki að koma of seint eða vanrækja vinnu- tímann. Pað ber ekki ósjaldan við, að mað- ur, sem vanrækt liefir vinnu sína 3 sinnum, hefir verið sviftur vinnunni og annar maður tekinn þegar i hans stað. Við Sviar höfum talsvert að læra í þessu efni, og þeir okkar landar, sem ferðast til Vesturheims, til þess að alla sér daglegs brauðs, verða fljótt full- vissir um, að til þess að ná i hið háa kaup, sem þar er borgað, dugir ekki að liggja á letibekknum. Hvað viðvikur sérstaklega prentaraiðn- inni, þá er hún á mjög háu stigi í Ameriku og prentararnir hafa bezta orð á sér. Vinnu- timinn er fyrir prentara 8 kl.t. á dag skift niður á sólarhringinn með tilliti til mis- munandi vinnu. Við stóru blöðin er unnið allan sólarhringinn; þar er vinnunni skift niður þannig, að þegar einn flokkur hefir

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.