Prentarinn - 01.05.1936, Blaðsíða 4
2
PRENTARINN
HELZTU SAMÞYKTIR
AÐALFUNDAR H í P 1936
EIGNIR SJÚKRASAMLAGSINS:
„Stjórninni sé falið að leggja fyrir félags-
fund, sem hafi sama vald og aðalfiindur,
hvernig fara skuli með eignir Sjúkrasamlags-
ins, þegar það 1. okt. þ. á. verður lagt niður
i sinni núverandi mynd“.
VINNUDÓMSLÖGGJÖF:
„Hið islenzka prentarafélag lýsir sig alger-
lega mótfallið frumvarpi því um vinnudóm,
er nú liggur fyrir Alþingi, og skorar á þing-
menri Alþýcuflokksins að beita sér fyrir að
frv. verði fellt.
Jafnframt lýsir félagið því yfir. að það mun
berjast á móti hverskonar lagasetningu íþessu
efni, sem ekki liefur verið samþykkt af sam-
bandsþingi alþýðufélaganna i Alþýðusam-
bandi íslands".
TRÚNAÐARMENN:
„Aðalfundur HÍP lí)3(i felur stjórninni að
koma á kerfi trúnaðarmanna í prentsmiðj-
imum, er hafi vakandi eftirlit og náið sam-
bánd við stjórnina um, að öllum lögum og
sanmingum sé framfylgt gagnvart verkafólk-
inu. Jafnframt er stjórninni falið að tryggja
það, að trúnaðarmenn félagsins verði á eng-
an hátt látnir gjalda þess, að þeir séu full-
trúar félags síns. Fulltrúar þessir skulu vera
hjálparmenn Prentarans".
AUKIN IÐNÞEKKING:
„Aðalfundur HÍP 1936 felur stjórninni að
leita samvinnu við prentsmiðjueigendur mn
að hafið verði skipulagsbundið starf til þess
að auka iðnþekkingu prentarastéttarinnar og
befja hana lil jafns við prentiðnaðarstéttir
nágranna þjóðanna".
BÓKASAFNIÐ:
„Aðalfundur HÍP 1936 samþykkir að fela
bókmenntadeild MP, ásamt einum inanni úr
stjórn IIÍP umsjón með bókasafni HÍP og
eflingu þess. Jafnframt samþykkir félagið að
hækka styrkinn lil bókasafnsins upp i 300 kr.
á ári og veiti því auk þess nauðsynleg áhöld,
svo sem bókaskápa o. fl.“
EFTIRLIT MEÐ FRAMKVÆMDUM
IÐNNÁMSLAGA:
„Aðalfundur HÍP samþykkir að kjósa nefnd
til þess að atliuga, hverriig bezt verði hagað
framkvæmd á eftirliti með því, að ákvæðum
iðnnámslaga (og reglug.) sé hlýtt og gera til-
lögur um breytingar á kennsluaðferðum
prentsmiðjanna“.
Nefndin var kosin á fundinum, og skipa
hana þessir menn: Stefán Ögmundsson, form.,
Guðmundur Helgi Pétursson og Jón H. Guð-
mundsson.
PRENTARATAL:
• „Stjórninni sé heimilt að greiða Benédikt
Gabríel Benediktssyni þóknun fyrir samningu
ýtarlegs prentaratals".
HÚSGAGNAKAUP:
„Stjórninni sé heimilt að verja fé til nauð-
synlegra húsgagna i hin nýju skrifstofuher-
bergi félagsins við Hverfisgötu“.
SUMARHEIMILI:
„Aðalfundur HÍP 1936 samþykkir, að
stjórnin skipi 5 manna nefnd til þess að at-
huga möguleika á því að komið verði upp
sumarheimili fyrir prentara og fjölskyldur
þeirra. Nefndin leggi fyrir félagið frum-
drætti að kostnaðaráætlun og tillögur um
framkvæmd málsins".
I nefnd þessa hefur stjórnin skipað:
Jón H. Guðniundsson, form., Guðmund
Halldórsson, Höllu Guðmundsdóttur, Guð-
nnind H. Pétursson og Stefán Ögnnmdsson.
HEILSUVERND Í PRENTSMIÐJUM:
„Aðalfundur HÍP 1936 samþykkir að fela
stjórn HÍP:
1. að fá upplýsingar frá nágrannalöndunum
og Ráðstjórnar-Rússlandi um tilhögun
heilsuverndar og vinnuskilyrði í prent-
smiðjum, og hvernig op’jnberu eftirliti með
þvi er háttað.
2. Að því fengnu semji stjórnin, skv. lögum
um eftirlit með verksmiðjum og vélum,
tillögur að reglugerð um tilhögun heilsu-
verndar og vinnuskilyrði i prentsmiðjum
og leggi þær fyrir félagsfund".