Prentarinn


Prentarinn - 01.05.1936, Blaðsíða 5

Prentarinn - 01.05.1936, Blaðsíða 5
PRENTARINN 3 VILHELM STEFÁNSSON 30 ÁRA STARFSAFMÆLI Vilhelm Stefánsson byrjaSi nám i Félags- prentsmiðjunni 5. maí 1906, en hafði veriS viS sendiferSir í sönni prentsmiSju frá jafn- lengd áriS áSur. Vann hann nær sanifleytt í þeirri prentsmiSju til vors 1914. Þá fékk liann sig lausan frá prentstörfum um sumariS og fór til SiglufjarSar, til þess — eins og hann sjálfur orSar |ki3, — „aS hrista af sér prent- smiSjurykiS", og vann þar aS sildarvinnu. Um haustiS, er hann kom aftur til Reykja- víkur, fór hann í prentsmiSju Sveins Odds- sonar, er þá var nýkominn frá Ameríku, og hafSi keypt prentsmiSju Davids Östlunds og rak hana undir sínu nafni. Vann Vilhelm í þeirri prentsmiSju um hríS, eSa þar til hann fékk sig þar lausan og fór í prentsmiSjuna „Rún“, er þá var nýstofnuS, undir forstöSu Jakobs Kristjánssonar. Sú breyting varS á prentstörfum Vilhelms, er hann kom úr norS- urförinni, aS hann vann eingöngu aS prent- un, en hafSi áSur aSallega unniS aS handsetn- ingu. í prentsmiSjunni „Rún“ vann Vilhelm meSan hún var viS lýSi — þar til hún rann saman viS FélagsprentsmiSjuna, 1918 — og svo áfram viS sömu störf hjá Félagsprent- smiSjunni, samfleytt til 1927. Þá réSst iiann i aS stofna prentsmiSju, meS GuSmundi GuS- mundssyni, nú vélsetjara í „Isafold", er þeir nefndu „Hólaprent". En „sú dýrS stóS ekki lcngi“ eins og Vilhelin segii' sjálfur, þvi eftir áriS hætti hann viS þaS fyrirtæki, aSallega sökum heilsubrests. Hvarf Vilhelm þá frá prentstörfum og fluttist búferlum austur á FirSi; var hann þar tvö ár og vann aS ýms- um störfum „til sjós og Iands“. NáSi hann ])á aftur fullri heilsu. HaustiS 1929 kom hann aftur til Reykjavíkur, en dvaldi hér ])á aSeins stuttan tima, því hann fluttist til Vestmanna- eyja og tók viS prentsmiSjunni þar, sama haustiS. Var hann þar forstöSumaSur prent- smiSjunnar í fjögur ár, eSa þar til í maí 1934, aS hann fluttist til HafnarfjarSar og tók aS sér forstöSu prentsmiSju HafnarfjarSar. A siSastliSnu hausti réSst hanii þaSan og í Fé- lagsprentsmiSjuna aftur, og vinnur nú þar — og segist nú vera orSinn „stabiliseraSur“ og búinn aS fá nóg af „kryddi lífsins“ — tilbreytninni — í bráðina. Eg, sem þessar línur rita, hefi unniS í Eélagsprent- smiðjunni nær samfleytt frá 1905, og hefi því unnið meS Vilhelm lengur en nokkur annar samverkamaður hans og ég hrósa happi og þakka hamingjunni fyrir að hafa baft ])á ánægju að vinna með Villa, því jafn dagfarsgóðir eða skenmitilegir samverka- menn eru ekki á hverju strái. — Fyrstu kynni okkar voru þau, að eitt góðviðris- kvöld, er ég koin úr prentsmiSjunni — ég var þá i „ísafokl“ — fór ég niður á Duus- bryggju til að veiða, og ef hamingjan væri með, að fá lánaðan bát. Jú, hamingjan var meS mér; þafS var strákur — sem ég hafo'i að vísu ekki áður séð — á báti rétt utan við bryggjuna. Ég kallaði lil hans. Jú, það var ekkert til fyrirstöðu því, að við yrðum tveir á. ViS rerum svo austur að Zimsens- bryggju, og fórum að veiða. Hann veiddi í háf, en ég á öngul — ég kom vist beint úr prentsmiðjunni með færið í vasanum. Við veiddum vel, þvi mikið var af smákola á leirunni framundan læknum. Gekk svo alllanga hríð. Villi — hann sagðist heita það — veiddi stórum mun meira með sinni „fullkomnu“ veiðiaðferð, en ég var saint ánægður, því að veiðiaðferð min var miklu skemmtilegri, og það var aðalatriðið, auk þess að fá að vera úti á sjónuin i góða veðrinu. ViS héldum svo til lands, að lok- inni veiðiferðinni. En þegar kom til skipt- anna á veiðinni — henni hafði skolað sam- an i austrinum — varð allmikill ágreiningur um, hvað livor ætti, og lauk honum svo — án handalögmáls samt — að Villi fór meS, í liáfnum sínum, allmiklu meira af veiðimii en ég taldi honuin bera; þóttizt hafa haft nákvæmari tölu á minni veiði en hann á sinni, o. s. frv. Eg sé það nú, að ég hefi ekki gert ráð fyrir „bátshlutnum", sem Villa auðvitað bar i þessari veiðiferð okkar. — Þetta er vist eitt af þeim fáu skiptum i lífinu, sem Villi liefir grætt á fjárglöggvi sinni;

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.