Prentarinn


Prentarinn - 01.05.1936, Blaðsíða 6

Prentarinn - 01.05.1936, Blaðsíða 6
4 PRENTARINN reikningur var víst ekki bezta námsgrein hans i skólanum, né fjárglöggvi neinn aðal- þáttur í upplagi lians, þó þessi fyrsta við- kynning okkar virtist benda til þess. — Við sáumst ekki aftur fyr 'en 5. maí 190(i, kl. 9 um morguninn, þegar hann kom í Félags- prentsmiðjuna, en þetfa gerðist sumarið áður. En það voru önnur einkenni í skapferli Villa og gáfnafari, sem voru miklu sterkari og sem ég hefi liaft miklu meira af að segja, — einkenni, sem gerðu liann skemmtilegan vinnufélaga og hrók alls fagnaðar í hóp okk- ar námssveinanna i Félagsprentsmiðjunni. Það var sönghœfni hans og glaðlyndi. Þessir ágætu kostir hans veittu okkur margan holl- an hlátur og skennntilega stund. Ég finn það nú, að ég á Villa mikið upp að inna fyrir að létta margar leiðindastundir á námsárunum, og líklega engum meira. Mér leiddist oft á fyrstu námsárunum; enda voru það mikil umskipti, að hafa alizt upp við útivist og smalamennsku alt sumarið eða vera lokaður inni í óhreinni prentsmiðju allan liðlangan daginn og fá ekki einu sinni eins dags sumnr- fri á ári, hvað þá meira. — Ef Vilhelm hefði fæðzt svo sem 25—30 árum síðar, hefði hann að líkindum lent á réttari hyllu i lifinu en hann hefir að líkindum gert; hann hefði far- ið á hljómlistarskólann og orðið hljóðfæra- leikari. Þar var hans rétta stai fssvið. Um það getur enginn efast, sem þekkir hann; hljóm- listargáfur hans voru svo ótvíræðar. Við samverkamenn hans höfðum oft mikið yndi af söng hans og raddfimi — og enda fleiri en við einir; því oft var það, er Bjarni heit- inn frá Vogi kom í prentsmiðjuna, að hann bað um lag á „þann þúsund króna“, og skemmti sér auðsjáanlega ágætlega við þá músik. Villi liafði í raddfærum sinum allar gerðir „grammófóna", frá fölsku og mjó- róma glymskratta-krýli (verð 10 krónur — takk) upp í finustu „radio-grammó- fóna“ — sem reyndar voru þá öþekktir með því nafni. Bjarni vildi alltaf fá það bezta og heyrði vist sjaldan í lakari tegundunum, nema þá endrunt og eins, til þess að láta hann heyra mismuninn og kenna honum að meta góða músik! Einu sinni var lialdið samsæti hjá Romsu gömlu fyrir Gunnlaug Bjarnason, er þá var verkstjóri í Félagsþrentsmiðjunni, ekki man ég í livaða tilefni, en mikið var sungið. Varð Romsa gamla mjög hrifin af ágætum söng Villa og hrósaði honum hástiif- um. En þó röddin væri góð, var eyrað samt erinþá betra, en tækifærin til þroskunar þéss- ara ágætu hæfileika voru hér þá lítil eða engin. Við, sem vorttm við nám i Félagsprent- smiðjunni samtimis Vilhelm, mununi ætíð minnast með ánægju margra samverustunda í og utan vinnutima, er liann iífgaði nteð gáska sinum og fjöri og ágætu skapi, og ég held ég geti varla óskað honum annars betra en þess, að hann —- og samstarfsmenn hans — megi sem lengst njóta þessara ágætu skap- ferliskosta. Lifi greðin og lífsfjörið —■ lifi Vilhelnt Stefánsson! Ólafur Sveinsson. PRENTARAR UTAN REYKJAVÍKUR! Sendið blaðinu stuttar greinar um mál, sem við koma iðninni eða stéttinni. Reynum að láta Prentarann tengja saman, betur en verið hefur, félaga um land allt! — Heimilis- fang blaðsins: PRENTARINN, Alþýðuhús Reykjavikur. LEIÐRÉTTING. Sú leiða villi hefur slæðzt inn í grelri Jóns Baldvinssonar, i 3.-5. tölubl. 1935, uni Einar heit. Sigurðsson, að kona hans er sögð Eyjólfsdóttir í stað Eyþórsdóttir. GJALDKERI HÍP. Gjaldkerinn verður fyrst um sinn til við- tals í skrifstofu félagsins, í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu 4. hæð, á þriðjudögum og föstudögum kl. 6-—7 e. h. PRENTARINN FRÁ BYRJUN. Örfá eintök af Prentaranum eru til sölu hjá gjaldkera HÍP. Verðið er 20 krónur. RITSTJÓRI: JÓN H. GUÐMUNDSSON Herbertsprent, Bankastræti 3, prentaði.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.