Prentarinn


Prentarinn - 01.10.1936, Blaðsíða 4

Prentarinn - 01.10.1936, Blaðsíða 4
24 PRENTARINN SÍÐASTI FUNDUR HÍP Eundur var haldinn í HÍP sunnudaginn 27. septeniber siðastliðinn. Kostnir voru þessir 5 menn í nefnd til undirbúnings næstu samninga: Jóhannes Jó- hannesson, Meyvant Ó. Hallgrímsson, Guðm. H. Pétursson, Ólafur Árnason, Karl Krist- jánsson. Fulltrúar á Alþýðusambandsþing voru kosnir: Hallbjörn Halldórsson, Magnús H. Jónsson og Guðmundur Halldórsson. Eftirfarandi tillaga var samþykkt: „Kosin verði 9 manna nefnd til þess að undirbúa 40 ára afmæli HÍP, og verði liún einnig til aðstoðar ritstjóra Prentarans við undirbúning myndarlegs afmælisblaðs". í nefnd þessa voru kosnir: Guðmundur Halldórsson, Guðmundur Kristjánsson, Kll- ert Magnússon, Stefán Ögmundsson, Meyvant Ó. Hallgrimsson, Sigurður Str. Ólafsson, Óskar Söebeck, Óskar Guðnason og Jón H. Guðmundsson. PRENTAIÍAR UTAN REYKJAVÍKUR! Sendið blaðinu stuttar greinar eða fréttir um mál, sem við koma iðninni eða stéttinni. lteynum að láta PRENTARANN tengjja sam- an, betur en verið hefur, félaga um land allt! — Heimilisfang blaðsins: PRENTARINN, Alþýðuhús Reykjavíkur. GJALDKERI HÍP er til viðtals á þriðjudögum kl. (i—7, í Alþýðuhúsinu, 4. hæð. siður væri þetta stórmerkilegt safn — það sýndi í þessu tilfelli þróun prentlistarinnar á fslandi i þrjátiu ár. Slikt safn væri mikiis virði, ef einhvern tima kæmi að þvi, að þró- unarsaga prentlistarinnar á íslandi yrði rituð. Kristján Guðjónsson er ágætur félagi, þótt lítið liafi hann opinberlega lagt til félags- niála, ekki kært sig um að eiga sæti í stjórn eða þess háttar. Hann gengur heill og óskipt- ur að sínu lifsstarfi — og það er góður vitn- isburður um hvern mann. NOKKUR ATRIÐI UM BÓKAGERÐ í FORNÖLD Niðurl. Hinir fyrstu prentlistiirmenn nefndu starfið „ars impressoria", prentlist, en undir lok 15. aldar var prentlistin nefnd „Typografia“. A fyrstu árum prentlistarinnar var sem mest reynt íið likja eftir hinum skrifuðu bók- um. Venjulegast voru þær í tvíblöðungsstærð (folio), sjaldnar í fjórblöðungsstærð (kvarto), það var ekki fyrr en seint á 15. öld að farið var að nota 8-blaða-brot. Ártöl voru mjög sjaldan sett á bækur á þeim tímiun, eða hvar þær voru prentaðar. Titilblöð var fyrst farið að setja á bækur ár- ið 1470. Til þess tíma var það siður, að inni- hald bókanna var sett sem byrjunarlina með meginmálsletri bókarinnar. Ekki voru heldur blaðsiðutöl eða arkartöl notuð. Undir eins á fyrstu árum prentlistarinnar var farið að nota ýmsar rósir og borða til prýðis í bókum. Einkum var þetta haft á byrjunarsíðum, og við endi bóka hinir nafn- kunnu bókahnútar og sigurlykkjur, eins og gamla fólkið nefndi það. Þá voru og einnig hinir stóru, fögru gotnesku stafir hafðir í byrjun bóka og voru þeir oft prentaðir rauðir. Á þeim tímum var alt þetta skraul skorið í tré. Fyrstu 200 árin, sem prentlistin stóð, varð prentarinn sjálfur oftast nær að búa til það letur, sem þurfti til prentsmiðjanna, en slundum varð hann að fá tréskurðarmenn sér til hjálpar. — Þegar farið var að steypa st:ifi, þá voru gull- og silfursmiðir liinir beztu lijálparmenn prentarans. Áður höfðu ])að verið tréskurðarmenn, sem hjálpuðu þeiin bezt. G. O. li. 25 ÁRA' MINNINGARRIT HÍP fæst á skrifstofu HÍP hjá gjaldkeranum og kostar 5 krónur. RITSTJÓRI: JÓN H. GUDMUNDSSON Herbertsprent, Bankastræti 3, prentaði.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.