Kristilegt stúdentablað - 01.12.1943, Side 9

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1943, Side 9
IÍRISTILEGT STÚDENTABLAÐ Alheimsnefndin liafði lálið byggja sérstaka byggingu fyrir samkomurnar. Var það trégrind, sem var rekin saman, klædd bárujárni og með stórum gluggum, nærri því eins og í vermireit. Allur salurinn var skreyttur fánum og græn- um gróðri og var mjög viðkunnanlegur. Sæti voru í honum fyrir liér um bil 1000 manns. Fyrsta samkoman var haldin um kvöldið þann 30. maí. Þar hóf Svíinn dr. Karl Fries ráðstefn- una með mikilli ræðu og ])auð alla velkomna. Hann var þá einn af aðalframkvæmdastjórum alheimsnefndarinnar. Næsla morgun og alla dagana á eftir liófust samkomurnar kl. 8. Kall- að var saman með klukknahringingu frá turni kaþólsku kirkjunnar og auk þess með kirkju- klukku, sem komið var fyrir á sjálfu samkomu- liúsinu. Ég komst slrax í hátíðaskap, er ég gekk til samkomustaðarins í morgunsólskininu og heyrði klukknahljóminn. Fyrsti liálftíminn var helgaður morgunguðs- þjónustu, sem ýmsir liéldu til skiptis, einn morg- uninn húðdökkur Indverji, annan morguninn lílill, mjög vel greindur Japani o. s. frv. En þýð- ingarmesta stund dagsins var án efa frá kl. 9% ■—10y2. Það var bænastund, sem var undirbúin með stuttri ræðu um þýðingu og mátt bænar- innar. Þessi ræða var lialdin marga morgna i röð af Amerikumanninum Slierwood Eddij, cn seinna tók við af honum enski rithöfundurinn Basil Mathew's. Tímann þar á eftir til kl. IOV2 gat liver einstaldingur dvalið einn með Guði í bæn og íhugun, og það var eins og djúp kyrrð legðist yfir litla bæinn. Ég gleymi aldrei fyrsla morgninum, er Slier- wood Eddy talaði á undan bænastundinni. Ilann Jas hvítasunnufrásöguna (Post. 2, 1-4) og tal- aði um þann kraft Guðs, sem opinberaðist þenn- an fyrsta livítasunnudag í Jerúsalem. Ræða lians var rofin af ofsalegri regnskúr, sem buldi yfir með þrumum og eldingum. Regriið buldi á báru- járnsþakinu með svo miklum liávaða, að það var alls ekki liægl að lieyra til ræðumannsins. Allt í einu slotaði óveðrinu, og sólin sendi afl- ur skerandi bjarta geisla sina inn í salinn. Eg varð alveg frá mér numinn, eins og ég fengi að reyna ytri opinberun Iivítasunnunnar að nýju. Ég hafði mjög sterka tilfinningu fyrir nærveru Guðs meðal okkar, og það fyllti mig lotningu og tilheiðslu. Regnskúrin varð mér ímynd þeirra strauma náðar og lcraftar, sem Guð var fús að útliella yfir okkur, ef við vildum taka á móti þeim, og þrumurnar hljómuðu fyrir eyr- um mér eins og rödd Drotlins til samvizku minnar. Sólskinið, sem kom á eftir, talaði um hinn lieita, lífgefandi kærleika Guðs Anda. Ræða Sherwood Edd3rs hafði mikil álirif sem undir- búningur undir liljóðu bænastundina á eftir. Allir þessir 12 dagar voru mér eins og for- smekkur eilífðarinnar lieirna lijá Jesú, ásamt öllum lians hólpnu. Það hljómaði með fögnuði í lijarta mínu: Ó, ])lessuð stund, er hátt í himinsölum minn hjartans vin ég aftur fæ að sjá, og við um okkar æfi saman tölum, sem eins og skuggi þá er liðinn hjá Það er alveg undursamlegt, að vera á liverj- um degi samvistum við svo marga af ágætustu mönnum Iv.F.U.M. frá mörgum löndum og geta skipzt á liugsunum og liugmyndum við þá á sameiginlegu tungumáli. Það, sem veitti mér mesla gleði, samhliða hinum áhrifamiklu ræð- um og hinum nauðsynlegu, cn stundum nokk- uð þurru umræðum, var liin frjálsa samvera á hverjum eftirmiðdegi. Það, sem gjörði unað- inn enn meiri, var það, að meðal liinna 80 Dana voru margir af persónulegum og kærum vin- um mínum, Meðal liinna annarra Norðurlanda- búa voru margir, sem ég þekkti áður og þótti vænt um. Mér fannst ég gela fundið tvö aðal-sjónar- mið í skoðun ráðstefnunnar á alþjóða kristi- legu æskulýðshreyfingunni; engilsaxneska og Norðurlanda sjónarmiðið, og ég bað þess, að þau mættust eða gengju upp í æðri einingu, lil þess að ekki 3'1'ði klofning i þessu mikla málefni. Ég lield einnig, að góður vilji og gagn- kvæm alúð ]iafi einkennt mótið sem heild. Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um þetta, heldur lialda mér við það, sem fyrir mig sjálfan kom sérstaklega, á meðan á mótinu stóð. Ég kynntist einnig mörgum af drengjunum í bæiium, sem urðu mjög elskir að mér, þrátt fvrir ódugnað minn i að tala þýzku. Það voru yndislegir drengir, kátir og elskulegir, en liöfðu auðsjáanlega átt við næringarskort að búa. Mér var sönn unun að ganga um meðal þeirra. 9

x

Kristilegt stúdentablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.