Kristilegt stúdentablað - 01.12.1943, Side 11

Kristilegt stúdentablað - 01.12.1943, Side 11
KRISTILEGT STUDENTABLAÐ ÞaS -'vcfir löngum sýnt sig, að það er eríilt að standa i stað. Jónas Hallgrímsson orðaði það svo: „Það er svo bágt að standa í slað, mönn- unum munar annað livort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.“ Þannig er það. Og lítum nú til þjóðar vorr- ar og til hinnar islenzku kirkju. Hel’ir luin „gehgið lil góðs, göluna fram eftir veg“? Eða liefir luin börfað af liólmi, vikið undan? Sagan dregur upp fyrir oss myndir horfinna alda. Hún segir oss frá kristnum vottum og Irúarhetjum liðinna tíma. Islenzk kristni liefir átt marga, er bafa clsk- að Krist og starfað af alhug að málum lians meðal þjóðarinnar. Menn þessir gengu ekki i eigin krafti. Þeir höfðu gel’izl upp fyrir Guði og lagt allt í liendur hans. Hann gaf þeim kraftinn, í lians krafti gengu þeir fram, létu lúðurinn gjalla og boðuðu Jesúm Krist sem Droltinn sinn og Frelsara. Þeir predikuðu Krisl krossfestan og upprisinn, buðu mönnum að gjöra iðrun og gefasl Drotlni. Jón biskup Vidalín var einn þessara kristriu þjóna. Þeir sungu Frelsaranum lof og dýrð, vegsöm- uðu hann fvrir hinn mikla kœrleika hans, að gefa sjálfan sig í dauðann fyrir oss synduga menn. Hver hefir náð fegurri og sterkari tón- um á islenzkri tungu en séra Hallgrimur Pét- ursson? Og livi gátu þeir náð svo hátt? Var það ekki af því, að þeir höfðu auðmýkt sig svo mjög fyrir Drottni .Tesú Kristi, gefizt honum, öðlazt hans kraft og kærleika? Það mætli telja fleiri, en þess gerisl ckki þörf, þetta nægir. — En nú langar mig lil að spyrja: eða aftur á bak. Hvar stendur íslenzk kirkja í dag? Á bún sama trúarlritann og fyrr? Á hún eins mikil tök í hjörtum þjóðarheildarinnar og áður? Þvi mið- ur verðum vér að svara neitandi. Vér verðum að viðurkenna hið liryggilega ástand, sem ríkj- andi er innan kirkjunnar. Deyfð, doði og áhugaleysi er mesl áberandi, þrátt fyrir tiða kirkjufundi, samþykktir, er að- eins sjást á pappírnum og annað jvessu likt. Og liver er orsökin? Hefir ekki kirkjan svikizt um að gegna skyldu sinni? Hinn blóðidrifni kross Krisls er ekki leng- ur fyrir fylkingúm liennar. Mannleg skymsemi og mannlegur máttur er víðasl meir metinn en liinn heilagi, náðarvilji Guðs. Hin skeikulu og ófullkoinnu verk mannanna metin svo mikils, að margir telja sig eigi þurfa á Kristi að halda. Þeir viðurkenna liann ef til vill sem kennara, fræðara eða fyrirmynd að einhverju leyti. En Drottinn sinn og Frelsara vilja þeir ekki viður- kenna hann. Syndameðvitund þeirra er óljós, aðeins brestir, er þeir sjálfir ætla að laga. Mestur hluti prestanna boðar einhverjar fagr- ar hugsjónir, er þeir sjálfir búa til, og ég veit ekki, hvort þcir gera sér grein fyrir livað eru eða að liverju stefn'a. Þeir gleyma hinni einu liugsjón, er þeir eiga að lielga alla krafta sína. Er nokkur von, að kirkjan ræki blutverk sitl sem skyldi, fyrst svo er komið? Spillingin, fráhvarfið frá Drottni er jafnvel komið inn á liinuin hæstu stöðum og grefur þar um sig. Biblían er véfengd sem Guðs orð. Hún er rifin niður og' útlistuð sem lítt áreið- anleg. Málgögn kirkjunnar flytja blcndinn krist- indóm. Og nú á þessum alvöru- og liættutim- um er ástandið þannig og heldur áfram niður á við. Hvar verður íslenzka kirkjan eftir nokkra áratugi, ef þessu lieldur ^fram? Ekkert megnar að bjarga, nema lifandi kristindómur, ekkerl nema Kristur fái að komast að og frelsa og Guðs 11

x

Kristilegt stúdentablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt stúdentablað
https://timarit.is/publication/734

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.