Morgunblaðið - 19.12.2008, Síða 4

Morgunblaðið - 19.12.2008, Síða 4
Eftir Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Heimamenn byrjuðu ágætlega í leiknum en hörkuvörn KR-inga skilaði þeim fljótt öruggu forskoti. Þórsarar kom- ust ekkert áleið- is og voru þvingaðir í erfið skot hvað eftir annað. Cedric Isom var í gjör- gæslu lengi framan af og með hann klipptan út átti Þór í miklu basli. Sókn KR- inga gekk hins vegar eins og vel smurð vél og var nánast unun á að horfa. Leitað var að galopnum fær- um og rötuðu skotin í körfuna hvert á fætur öðru. Allir voru með og skiptist stigaskorunin nokkuð jafnt á menn. Alls skilaði KR-liðið ellefu þristum í leiknum og var stundum eins og um létta skotæf- ingu væri að ræða hjá Vest- urbæingum. Í hálfleik munaði 22 stigum og KR jók muninn jafnt og þétt. Þórs- arar mega eiga það að þeir lögðu ekki árar í bát og bitu loks frá sér í fjórða leikhlutanum. Cedric Isom fór þá á flug og minni spámenn nýttu sínar mínútur vel. Þór vann leikhlutann með sex stigum og náði þannig að bjarga andlitinu. Heimamenn voru alls ekki að spila sinn besta leik og nokkrir lyk- ilmenn voru töluvert frá sínu besta. KR-ingarnir voru bara klassa betri og það er vandséð að nokkurt lið geti skákað þeim í vetur. Léttur KR-sigur fyrir norðan Voru sterkari á öllum sviðum og unnu með 34 stiga mun - hafa fullt hús stiga ÞAÐ telst varla til tíðinda lengur í Iceland Express-deildinni þegar KR burstar andstæðinga sína. Enn einn stórsigurinn leit dagsins ljós þegar Þórsarar mættu þeim röndóttu í Höll- inni á Akureyri í gærkvöldi. KR-ingar voru sterkari á öllum sviðum og náðu þeir mest 34 stiga forskoti. Þór kom í veg fyrir algera niðurlægingu með góðum leik á lokakaflanum og á end- anum var munurinn „aðeins“ 28 stig. Þór skoraði 69 stig en KR 97. Jakob Sigurðarson 4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 Eftir Guðmund Hilmarsson gummih@mbl.is Jón Kr. Gíslason, fyrrum þjálfari Keflvíkinga og landsliðsins og með betri körfuboltamönnum sem Ísland hefur átt, stýrði Garðabæjarliðinu í gær ásamt Eyjólfi Jónssyni en Braga Magnússyni var sagt upp störfum hjá Garðabæjarliðinu á dögunum. Teitur Örlygsson sem í gær var ráðinn nýr þjálfari liðsins sat á varamannabekknum og fylgd- ist með nýjum lærisveinum sínum úr hæfilegri fjarlægð en hann lét Jóni eftir að stjórna liðinu. ,,Ég er búinn að vera með liðið í tíu daga og mínum huga var þetta bara úrslitaleikur. Ég var bara einn leik og ég reyndi að búa til stemn- ingu í liðinu og það tókst,“ sagði Jón Kr. Gíslason við Morgunblaðið. „Þessir strákar sýndu það í kvöld að þeir eru hörkuspilarar. Við erum með fínt lið og ættum að vera ofar á töflunni en það hefur ekki gengið sem skyldi. Núna verður vonandi viðsnúningur og ég er sérlega ánægður að fá Teit sem þjálfara. Hann er mikill sigurvegari og ég hef fulla trú á að Stjarnan haldi sæti sínu í deildinni. Við ákváðum að hafa Teit með okkur á bekknum og við reynsluboltarnir náðum að gefa strákunum smávegis ráð,“ sagði Jón Kr. Leikurinn í Garðabænum var ágætis skemmtun og oft og tíðum brá fyrir góðum tilþrifum. Stjörnu- menn höfðu heldur frumkvæðið í fyrri hálfleik og þeir náðu mest 15 stiga forskoti í öðrum leikhluta, 47:32, þar sem Justin Shouse fór mikinn hjá heimaliðinu. Brynjar Karl Sigurðsson, hinn lit- ríki þjálfari Fjölbrautaskólaliðsins hefur eflaust messað vel yfir strák- unum sínum í leikhléi því þeir mættu mjög grimmir til leiks eftir hléið. Þeir náðu upp mikilli baráttu í vörn sína og hvert þriggja stiga skotið af öðru rataði niður. Sér- staklega var Tyle Dunaway heitur en hann setti fjórar þriggja stiga körfur í þriðja leikhlutanum og þeg- ar hann var allur hafði FSu náð yf- irhöndinni, 69:60. Stjörnumenn skoruðu átta fyrstu stigin í fjórða leikhlutanum og hægt og bítandi náðu þeir síga fram úr og tryggja sér tvö mikilvæg stig í botn- baráttunni. Justin Shouse átti skínandi leik en Bandaríkjamaðurinn skoraði 28 stig og átti 13 stoðsendingar. Jovan Zdraveski var drjúgur sem og Kjartan Kjartansson en góð barátta einkenndi lið Stjörnunnar. Hjá FSu stóðu þeir Thomas Viglianco og Ty- ler Duaway einna helst upp úr. „Var bara úr- slitaleikur í mínum huga“ Morgunblaðið/Ómar Gegnumbrot Justin Shouse leikstjórnandi Stjörnunnar brýst framhjá Árna Ragnarssyni í leik Stjörnunnar og FSu í Garðabænum í gær. Shouse var atkvæðamikill en hann skoraði 28 stig í leiknum og átti 13 stoðsendingar.  Jón Kr. Gíslason stýrði Stjörnuliðinu til sigurs gegn FSu í Garðabænum STJÖRNUMENN unnu langþráðan sigur í Iceland Express-deildinni í körfuknattleik þegar þeir lögðu lið FSu, 89:79, í spennandi og skemmti- legum leik í Ásgarði í Garðabæ í gær- kvöld. Þar með komust Garðbæingar upp að hlið FSu en bæði hafa 6 stig í næstneðsta sæti. Stjarnan – FSu 89:79 Ásgarður, Garðabæ, úrvalsdeild karla, Ice- land-Express-deildin, fimmtudaginn 18. desember 2008. Gangur leiksins: 3:0, 8:3, 12:10, 18:20, 22:20, 33:29, 41:29, 47:32, 47:37, 49:43, 52:53, 53:59, 60:69, 68:69, 73:73, 83:79, 89:79. Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 28, Jovan Zdraveski 21, Kjartan Atli Kjartansson 14, Fannar Helgason 8, Birkir Guðlaugsson 7, Ólafur J. Sigurðsson 7, Guðjón Lárusson 2. Fráköst: 29 í vörn – 9 í sókn. Stig FSu: Thomas Viglianco 19, Tyler Du- naway 17, Árni Ragnarsson 15, Sævar Sig- urmundsson 12, Vésteinn Sveinsson 10, Björgvin Valentínusson 3, Christopher Ca- ird 3. Fráköst: 29 í vörn – 8 í sókn. Villur: Stjarnan 17 – FSu 21. Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og Davíð Hreiðarsson, stóðu sig bara vel. Áhorfendur: Um 300. KR 11 11 0 1091:791 22 Grindavík 10 9 1 982:823 18 Keflavík 10 6 4 851:782 12 Tindastóll 10 6 4 796:816 12 Snæfell 11 6 5 883:805 12 Njarðvík 11 6 5 865:939 12 ÍR 10 5 5 810:780 10 Þór A. 11 4 7 897:970 8 Breiðablik 10 4 6 802:871 8 Stjarnan 11 3 8 916:946 6 FSu 11 3 8 936:957 6 Skallagrímur 10 0 10 597:946 0 Staðan Þór Ak. – KR 69:97 Akureyri: Gangur leiksins: 3:0, 3:7, 6:18, 14:33, 21:42, 25:50, 31:53, 35:60, 39:69, 44:76, 47:81, 56:83, 61:83, 69:97. Stig Þórs: Cedric Isom 30, Jón Orri Krist- jánsson 15, Guðmundur Jónsson 14, Örn Guðjónsson 3, Baldur Ingi Jónasson 3, Óð- inn Ásgeirsson 2, Sigurður Sigurðsson 2. Fráköst: 22 í vörn – 11 í sókn. Stig KR: Jón Arnór Stefánsson 18, Helgi Már Magnússon 17, Jason Dourisseau 17, Jakob Sigurðsson 15, Fannar Ólafsson 9, Skarphéðinn Ingason 6, Pálmi Freyr Sig- urgeirsson 6, Guðmundur Þór Magnússon 5, Baldur Ólafsson 2, Ólafur Már Ægisson 2. Fráköst: 17 í vörn – 13 í sókn. Villur: Þór 19 – KR 17. Dómarar: Björgvin og Hákon. Áhorfendur: 220. Eftir Skúla Sigurðsson sport@mbl.is Í byrjun leiks voru bæði lið að finna stöðu sína á vellinum og því hófst leikurinn á nokkuð jöfnum nótum. En það voru svo gestirnir sem tóku frumkvæðið í leiknum og spiluðu vörn heimamanna grátt með einföld- um en mjög árangursríkum körfu- bolta. Í stöðunni 17:18 varð leikurinn eign gestanna þegar þeir skoruðu 34 stig gegn aðeins 9 stigum frá heima- liðinu og annar leikhluti fór 6:25. Heimamenn áttu á þessum tíma mjög erfitt með að koma knettinum í körfu gestanna og var skotnýting þeirra aðeins 33% í fyrri hálfleik á meðan gestirnir settu niður tæplega 80% skota sinna. Heimamenn komu heldur grimmari til leiks í seinni hálfleik og skiptu þeir yfir í svæðis- pressuvörn til að freista þess að vinna upp 20 stiga mun sem Snæfell hafði byggt upp í fyrri hálfleik. Bet- ur gekk hjá þeim að skora stigin en jafn illa gekk hjá þeim og í fyrri hálf- leik að stöðva gestina hinum megin á vellinum. Snæfell var einfaldlega sterkari aðilinn í leiknum og átti sig- urinn fyllilega skilið. Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður Njarðvík- inga, fór svo illa að ráði sínu þegar hann fékk dæmdar á sig tvær ásetn- ingsvillur þegar um átta mínútur voru til leiksloka og var hann sendur í bað. Fastlega má gera ráð fyrir að hann fari í bann fyrir þetta uppá- tæki. Vandræði heimamanna voru þau að sóknarleikur þeirra var of til- viljunarkenndur og of mikið mæddi á þeim Loga og Magnúsi að klára sóknirnar sem gerði gestunum nokkuð auðvelt fyrir með varn- arleikinn. Valur Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur, var því nokkuð sammála. „Við náðum okkur aldrei á strik í þessum leik. Ef við náum okk- ur ekki af stað og orkan er ekki til staðar þá eigum við ekki séns í vel mönnuð lið líkt og Snæfell. Þrátt fyr- ir tapið dáist ég að stöðu míns liðs í deildinni í dag. Við erum litlir, ungir og reynslulausir en við erum ennþá Njarðvík. En við vorum orkulausir í kvöld sem greinilega sást á þeim leikmönnum sem eiga að leiða liðið og þegar þannig er getum við átt von á svona skelli. En jákvæðni og góðir áhorfendur í Njarðvík gefa okkur góðan byr og því er enn leiðinlegra að tapa og sýna þeim svona leiki hjá okkur hérna heima.“ Spurður um hvort Kani væri á leiðinni til að styrkja hópinn svaraði Valur: „Okk- ur vantar reynslu í liðið og því væri ekki leiðinlegt að fá 1 til 2 leikmenn til að styrkja hópinn, sama frá hvaða landi þeir koma. En eins og staðan er í dag þá er enginn Kani á leiðinni til okkar.“ Hlynur Bæringsson var sáttur við sína menn eftir leikinn. „Við hittum gríðarlega vel í fyrri hálfleik og mér fannst við líka spila vel út úr varn- arleik þeirra hér í kvöld. Þeir vilja láta okkar stóru menn spila fyrir ut- an teiginn þannig að við nýttum okk- ur það með „picḱńroll“ og það gekk upp. Mér fannst líka Njarðvíkingar hálfdaufir í kvöld, ég hef allavega mætt töluvert sprækari liði Njarð- víkinga en þetta. En nú er það jóla- steikin og við klárum svo árið með sigri á Tindastól,“ sagði Hlynur kok- hraustur í lok leiks. Oft verið sprækari  Ár og dagur er síðan karlalið Njarðvíkur gerði aðeins 55 stig á heimavelli  Skoruðu aðeins sex stig í öðrum leikhluta SNÆFELL gerði góða ferð suður með sjó í gærkvöldi þegar liðið valtaði yfir daufa heimamenn í Njarðvík í Iceland Express-deild karla. Lokastaðan á töflunni sýndi 55-85 og er langt síðan undirritaður hefur séð svo lágt skor hjá heimaliðinu í Ljónagryfjunni. Njarðvík – Snæfell 55:85 Njarðvík: Gangur leiksins: 2:6, 13:10, 17:20, 20:27, 20:32, 22:39, 22:46, 26:52, 32:57, 37:59, 40:64, 48:68, 48:74, 50:78, 51:83, 55:85. Stig Njarðvíkur: Logi Gunnarsson 16, Friðrik Stefánsson 15, Magnús Gunnars- son 11, Ólafur Alexandersson 4, Sigurður Sigurbjörnsson 3, Hjörtur Einarsson 3, Hilmar Hafsteinsson 3. Fráköst: 19 í vörn – 8 í sókn. Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson 21, Jón Ó. Jónsson 20, Slobodan Subasic 17, Hlynur Bæringsson 15, Ingvaldur M. Haf- steinsson 6, Daniel Kazmi 4, Gunnlaugur Smárason 2. Fráköst: 28 í vörn – 14 í sókn. Villur: Njarðvík 18 – Snæfell 18. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Rögn- valdur Hreiðarsson. Áhorfendur: 300.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.