Morgunblaðið - 20.12.2008, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2008
Eftir Skúla Sigurðsson
sport@mbl.is
Lið ÍR-inga kom heimamönnum
nokkuð á óvart í byrjun leiks með
góðri baráttu og elju í sínum leik. Í
raun hefði ekkert átt að koma Grind-
víkingum á óvart þar sem lið ÍR hef-
ur verið á góðri siglingu hingað til.
En sem fyrr segir voru það gestirnir
sem tóku frumkvæðið í leiknum,
skoruðu nánast að vild gegn slakri
vörn heimamanna. Það var ekki fyrr
en Friðrik Ragnarsson breytti yfir í
svæðisvörn að hægja fór á gestunum
og – eins og spekingar segja alltaf –
þegar vörnin fer að virka kemur
sóknin af sjálfum sér. Sú varð raunin
og Grindvíkingar sigu hægt fram úr
gestunum og leiddu með 7 stigum í
hálfleik. Friðrik Ragnarsson brýndi í
hálfleik fyrir sínum mönnum að
herða þyrfti vörnina til muna ef 2 stig
ættu að koma í hús. Og lærisveinar
hans svöruðu því með því að skila lið-
inu með 14 stiga forskot fyrir síðasta
fjórðunginn.
Páll Axel og Brenton Birmingham
hafa verið helstu skorarar liðs Grind-
víkinga í vetur en höfðu hægt um sig
framan af. Á meðan var það gömul
„fallbyssa“ sem sýndi á sér sparihlið-
arnar með frábærri skotsýningu en
þar var á ferð Guðlaugur Eyjólfsson
sem setti niður 6 af 8 þriggja stiga
skotum sínum og skilaði 20 stigum
fyrir heimamenn. Að öllum ólöst-
uðum var það Arnar Freyr Jónsson
sem var maður leiksins. Virkilega
gaman að sjá hversu vel hann hefur
vaxið í leikstjórnandahlutverkinu
undir leiðsögn Friðriks Ragn-
arssonar en kappinn sendi 12 stoð-
sendingar á félaga sína í kvöld. Leik-
urinn var hraður og harður hjá
báðum liðum og nokkuð skemmti-
legur þegar á heildina er litið. „Ég er
nokkuð hrifinn af þessu ÍR-liði. Þeir
spila góðan bolta og því er ég mjög
ánægður að hafa sigrað hér í kvöld.
Vörnin hjá okkur fyrir hálfleik var
ekki nægilega góð og í hálfleik var
talað um að laga það. Það gekk eftir
og skilaði okkur góðum sigri. Við
náum nú alltaf að skora okkar stig en
það er vörnin hjá okkur sem þarf að
smella í þessum leikjum. En allt á lit-
ið var þetta nokkuð massíf frammi-
staða hjá okkur í kvöld gegn sterku
liði,“ sagði Friðrik Ragnarsson þjálf-
ari Grindvíkinga eftir leik.
Hjá ÍR virtist sóknarleikurinn
byggjast mikið á Hreggviði Magn-
ússyni og var hann löðursveittur í
viðtali eftir leik. „Sókn okkar gengur
alls ekki út það að ég klári sóknirnar.
Við erum með fullt af leikmönnum
sem geta skilað stigum. En ég er
með ábyrgðarhlutverk í sókn-
arleiknum og ég reyni að leysa það
eins vel og ég get. Annars fannst mér
þriðji leikhluti vera banabiti okkar
hér í kvöld. Við leysum varn-
arhlutverkið ekki nægilega vel auk
þess sem við gefum þeim líklega um
7 tapaða bolta. Slík mistök má ekki
gera gegn jafnsterku liði og Grinda-
vík,“ sagði Hreggviður sem skoraði
28 stig fyrir sitt lið.
Fyrirhafnarlít-
ið hjá Grind-
víkingum
Ljósmynd / Skúli Sigurðsson
Barátta Ómar Örn Sævarsson, leikmaður ÍR, og Páll Axel Vilbergsson eigast við í Grindavík í gær.
Guðlaugur sýndi á sér sparihliðarnar
og setti niður sex af átta „þristum“
GRINDVÍKINGAR sigruðu lið ÍR nokk-
uð auðveldlega í gærkvöldi með 92
stigum gegn 78 stigum gestanna í úr-
valsdeild karla. Grindvíkingar halda
því áfram að þjarma að liði KR sem er
með einum sigri fyrir ofan þá í deild-
inni með fullt hús stiga að loknum
ellefu umferðum.
Grindavík – ÍR 92:78
Grindavík;
Gangur leiksins: 10:8, 14:16, 18:23, 23:25,
25:27, 32:35, 40:37, 48:41, 53:45, 60:48,
65:55, 73:59, 77:61, 92:78.
Stig Grindavíkur: Guðlaugur Eyjólfsson
20, Páll Axel Vilbergsson 16, Brenton
Birmingham 15, Páll Kristinsson 12, Þor-
leifur Ólafsson 10, Arnar Freyr Jónsson 9,
Björn Brynjólfsson 6, Helgi Jónas Guð-
finnsson 4.
Fráköst: 24 í vörn – 12 í sókn.
Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 28, Svein-
björn Claessen 11, Ómar Sævarsson 10,
Ólafur Aron Ingvason 9, Steinar Arason 9,
Ólafur Þórisson 6, Eiríkur Önundarson 3,
Davíð Fritzson 2.
Fráköst: 19 í vörn – 12 í sókn.
Villur: 17 Grindavík - 19 ÍR.
Dómarar: Sigmundur Herbertsson og Jak-
ob Árni Ísleifsson, áttu prýðisleik.
Áhorfendur: 100.
KR 11 11 0 1091:791 22
Grindavík 11 10 1 1074:901 20
Keflavík 11 7 4 948:834 14
Tindastóll 11 6 5 875:899 12
Snæfell 11 6 5 883:805 12
Njarðvík 11 6 5 865:939 12
Breiðablik 11 5 6 885:950 10
ÍR 11 5 6 888:872 10
Þór A. 11 4 7 897:970 8
Stjarnan 11 3 8 916:946 6
FSu 11 3 8 936:957 6
Skallagrímur 11 0 11 649:1043 0
Staðan
Skallagrímur – Keflavík 52:97
Íþróttamiðstöðin Borgarnesi;
Gangur leiksins: 2:5, 2:12, 7:17, 11:20,
11:24, 13:30, 21:34, 28:44, 32:50, 39:53,
42:62, 42:70, 42:75, 46:82, 50:91, 52:97.
Stig Skallagríms: Landon Quick 17, Igor
Beljanski 13, Sigurður Þórarinsson 9,
Sveinn Davíðsson 8, Arnar Snorrason 3,
Birgir Sverrisson 2.
Fráköst: 16 í vörn – 25 í sókn.
Stig Keflavíkur: Sigurður Þorsteinsson 24,
Hörður Vilhjálmsson 18, Þröstur Jóhann-
esson 12, Jón N. Hafsteinsson 9, Elvar Sig-
urjónsson 9, Gunnar H. Stefánsson 7, Vil-
hjálmur Steinarsson 6, Sverrir Sverrisson
5, Hjörtur Harðarson 3, Eldur Ólafsson 2,
Almar Guðbrandsson
Fráköst: 15 í vörn – 26 í sókn.
Villur: Skallagrímur 14 – Keflavíkur 15.
Dómarar: Halldór Geir Jensson og Jóhann
G. Guðmundsson, arfaslakir og geta von-
andi gert betur.
Áhorfendur: 112.
Tindastóll – Breiðablik 79:83
Sauðárkrókur:
Gangur leiksins: 4:3, 9:6, 16:8, 18:12, 23:14,
25:20, 27:28, 32:31, 38:39, 45:49, 49:59,
53:61, 63:63, 68:70, 77:78, 79:83.
Stig Tindastóls: Svavar Birgisson 23, Ísak
Einarsson 11, Helgi R. Viggósson 10, Axel
Kárason 9, Friðrik Hreinsson 9, Sören
Flæng 6, Óli Barðdal 5, Hreinn Birgisson 3,
Halldór Halldórsson 3.
Fráköst: 22 í vörn – 16 í sókn.
Stig Breiðabliks: Kristján Sigurðsson 32,
Nemanja Sovic 25, Halldór Halldórsson 12,
Rúnar Erlingsson 8, Loftur Einarsson 3,
Daníel Guðmundsson 3.
Fráköst: 18 í vörn – 4 í sókn.
Villur: Tindastóls 24 - Breiðabliks 17.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar
Skarphéðinsson.
Áhorfendur: 190.
Eftir Ragnar Gunnarsson
sport@mbl.is
Gestirnir voru mun sterkari strax
í byrjun. Munurinn á liðunum var
orðinn 10 stig eftir 4 mínútur og
átti bara eftir að aukast er leið á
leikinn. Keflvíkingar voru miklu
ákveðnari og markvissari í sínum
aðgerðum frá upphafi. Varn-
arleikur heimamanna var slakur
og hreyfanleikinn í sókninni var
lítill sem enginn. Gestirnir voru þó
alls ekki að leika sinn besta leik
og náðu aldrei að hrista heima-
menn almennilega af sér í fyrri
hálfleik.
Vonirnar brugðust alveg
í þriðja leikhluta
Hafi Borgnesingar alið þá von í
brjósti að geta saxað á forskot
gestanna fuðraði sú von upp í 3.
leikhluta. Keflvíkingar juku for-
ystuna jafnt og þétt og fljótlega
var munurinn kominn í 30 stig.
Ekkert markvert gerðist í 4.
leikhluta annað en að gestirnir
juku forystuna enn frekar.
Sigurður Þorsteinsson var besti
leikmaður vall-
arins í gær og
klárlega er þar á
ferðinni
framtíðar-
miðherji lands-
liðsins. Hörður
Axel átti einnig
flottan leik með
18 stig og 11
fráköst.
Hjá heima-
mönnum átti Landon Quick ágætis
spretti, en nýtti ekki skot sín og
hraða nógu vel. Einnig vöktu
mikla athygli tveir 15 ára drengir,
þeir Björgvin Ríkharðsson og
Birgir Sverrisson sem eru mikil
efni.
Ósamræmi í dómgæslu
Ekki verður hjá því komist að
minnast á framgöngu dómara
leiksins. Hrópandi ósamræmi var í
dómum þeirra frá fyrstu mínútu
sem kom mjög niður á leiknum.
Þeir virkuðu óöruggir og alls ekki
með hugann við leikinn. Klárlega
einhver slakasta dómgæsla sem
sést hefur lengi.
„Við vorum ágætir í fyrri hálf-
leik, en mjög slakir í þeim seinni.
Hittnin hjá okkur var mjög slök
og við höfum litla breidd. En mér
fannst lokatölurnar ekki gefa rétta
mynd af leiknum,“ sagði Trausti
Eiríksson, leikmaður Skallagríms,
sem komst ekki á blað í stiga-
skorun en var öflugur í fráköst-
unum og hirti 11 slík.
Ellefta tapið í röð
hjá Skallagrími
Meistararnir voru strax komnir með 10
stiga forskot eftir aðeins fjórar mínútur
BORGNESINGAR töpuðu sínum 11.
leik í röð í gærkvöld þegar Íslands-
meistarar Keflavíkur komu í heim-
sókn. Keflvíkingar fóru með auðveld-
an sigur af hólmi 52:97 og hafa þar
með 14 stig þegar deildin er hálfnuð.
Vandræði Skallagrímsmanna halda
hins vegar áfram og þeir sitja einir á
botni deildarinnar, stigalausir.
Hörður Axel
Vilbergsson
Eftir Björn Björnsson
sport@mbl.is
Einar Árni Jóhannsson, þjálfari
Breiðabliks, var að sjálfsögðu hæst-
ánægður með sína menn eftir að þeir
höfðu landað reglulegum baráttusigri
í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki í gær-
kvöldi. „Það er rosalega erfitt að
koma á þennan útivöll og sækja hing-
að stig, og þess vegna er ég ekki lítið
ánægður með strákana. Við erum
með fámennt lið, komum hingað að-
eins átta, og þar af eru tveir fimmtán
ára guttar, og því er sigurinn enn
sætari. Við erum í bullandi fallhættu
og því er hvert stig svo gríðarlega
dýrmætt, en ég er ánægður með kar-
akterinn í strákunum, og þegar
Kristján [Sigurðsson] er heitur er
hann illviðráðanlegur, en það var ekki
bara hann. Auðvitað fór hann fyrir en
liðið lagði allt sitt af mörkum, og þess
vegna er þetta svo gott,“ sagði Einar
Árni ánægður.
Leikurinn fór rólega af stað, ekki
var mikið skorað í fyrsta leikhluta,
heimamenn tóku forystuna, Helgi
Rafn og Svavar Birgisson skoruðu
fyrstu sex stigin, en Halldór Hall-
dórsson og Kristján Sigurðsson jöfn-
uðu með tveim þriggja stiga körfum,
en að loknum
þessum hluta
leiddu heima-
menn með sex
stigum. Í öðrum
hluta fóru gest-
irnir að bíta frá
sér og munaði þar
mest um Nem-
anja Sovic og þeg-
ar örfáar sek-
úndur lifðu af
hálfleiknum komust gestirnir yfir, en
síðustu stigin voru Tindastóls sem
leiddi í hálfleik 32:31. Breiðabliks-
menn komu grimmir eftir hlé og þá
hófst þáttur Kristjáns Sigurðssonar
sem í þessum hluta skoraði 21 stig og
þar af þrjár þriggja stiga körfur.
Í síðasta fjórðungi komu Tinda-
stólsmenn til baka og náðu þrívegis
að minnka muninn í eitt stig, og áttu
möguleika á að næla sér í framleng-
ingu þegar 14 sekúndur lifðu af leikn-
um og þeir með boltann, en þeim
brást bogalistin, fengu dæmda á sig
villu, Breiðabliksmenn skoruðu úr
báðum vítum og unnu með fjögurra
stiga mun.
Í liði Tindastóls átti Svavar Birg-
isson nokkuð góðan dag og einnig
þeir Helgi Rafn og Ísak, og ljóst er að
þeir Axel Kárason og Friðrik Hreins-
son eru óðum að smella inn í liðið.
Í Breiðabliksliðinu var Kristján
Sigurðsson yfirburðamaður, en einn-
ig var Nemanja Sovic sterkur í öðrum
og fjórða leikhluta. Aðrir leikmenn
eins og Rúnar Erlingsson og Halldór
Halldórsson börðust vel.
Breiðablik sótti
sér dýrmæt stig
Kristján „sjóðheitur“ í þriðja leik-
hluta Átta Blikar fóru norður
TINDASTÓLL tapaði óvænt á heima-
velli í gærkvöldi fyrir Breiðabliki,
83:79, í Iceland Express-deild karla í
körfuknattleik karla. Þar með situr
Tindastóll áfram í 4.-5. sæti deild-
arinnar með 12 stig eftir 11 leiki
ásamt Njarðvík.
Einar Árni
Jóhannsson