Ísland


Ísland - 07.07.1928, Blaðsíða 1

Ísland - 07.07.1928, Blaðsíða 1
BLAD FRjÁLSLYNDRA MANNA arg. Laugardaginn 7. júlí 1928. 26. tbl. Síldareinkasalan og „Brödrene Levy“. Svo hljóðandi bréf hefir oss borist í hendur. slfölge den af Altinget ved- tagne Lov, hvoraf vedlagt i Oversettelse fölger 1 Exemplar, skal der fra 1 Maj 1928 være Manopol paa al til Export be- stemt Sild, som er nedsaltet, krydret eller paa anden Maade tilberedt paa Island eller paa islandsk Söterritorium. Firmaet Brödr. Levy her har af Udförselsnævnet faaet over- draget at bestyre Monopolets Salgsafdeling for Skandinavien. Paa Bestyrelsens Vegne (sign.) Lykkeberg. Fyrri málsgrein þessa bréfs skiftir ekki máli í þessu sam- bandi, en síðari málsgreinin er öllu merkilegri. Hún hljóðar svo á islensku: Útfiainingsnefndin heflr íalið firmann, Bræðrunnm Levy, hér að stjórna sölndeild einkasöl- nnnar á Norðnrlöndnm. Fyrir hönd stjórnarinnar. (sign.) Lykkeberg. Þetta bréf skýrir sig sjálft, »Bræðurnir Levy«, danskt auð- kýfinga firma, hafa fengið öll völd yfir sölu íslenskrar síldar á Norðurlöndum. III var þín fyrsta ganga. Á því herrans ári 1928 ákvað Alþingi Islendinga, að ríkið skyldi taka að sér einkasölu á íslenskri sild. Stjórnarliðið, sem barðist mjög fyrir þessu máli, lýsti hátíðlega yfir því, að þetta væri eina ráðið til þess að bjarga síldarútvegin- um íslenska. Nú græða íslendingar, sagði stjórnarliðið. Milliliðirnir hverfa úr sögunni, milliliðirnir, sem Tíminn hefir skammað frá upp- hafi vega sinna. En fyrsta fóstur Tímastjórnarinnar, fyrsta einka- salan hennar var fengin dönsk- um milliliðum í hendur. 111 var fyrsta ganga einkasöl- unnar. Hvernig verða þær síðari? Utflutningsnefnd var sett á stofn. Hún fór til framandi Ianda og íetlaði að gera mikið, en endaði sína frægu för undir pilsfaldi öanskra stórkaupmanna. »Bræðurnir Levy« fá eitthvað ^Hr snúð sinn, líklega nokkur ^Undruð þúsund krónur. íslensk- lr síldveiðimenn fá að borga, danskir stórkaupmenn fá að hirða aurana. Neytendurnir útlendu verða að snúa sér til »Bræðranna Levy« í Danmörku, þeir hafa á hendi aðalstjórn síldarsölunnar íslensku. Hlöð stjórnariunar hafa neitað því, að Bræðurnir Levy séu um- boðsmenn einkasölunnar. Pær neitanir duga ekki lengur. Lykkeberg, er skrifar undir bréfið, er einn af starfsmönnum þessa danska firma. — Hann skrifar undir »fyrir hönd stjórn- arinnar«. — Hvaða stjórnar? Hefir danska firmað valið sjer- staka stjórn til þess að annast síldarsöluna? Ekki er hægt að skilja bréfið öðruvísi. — Er sú stjórn hin raunverulega stjórn einkasölunnar? Hafa »Bræðurnir Levy« einokun á þeirri síld, sem seld verður á Norðurlöndum. Ekki verður sagt, að einok- unarpostularnir hafi vel af stað farið. — En þeir hafa sýnt það með þessari krossgöngu sinni til Danmerkur, að fávitar einir geta vænt þjóðinni mikils af einka- sölum og einokunum. Einkasalan mikla varð að leita sjer skýlis fyrir hretviðrum og erfiöleikum undir kjólfaldri danskra burgeisa. Mikil ert þú einkasala! Pú ert skjól og skjöldur danskra milliliða. Þú varst getin í meinum. Kommúnisminn er faðir þinn, Framsókn hin fjölkunnuga er móðir þín. En þau hafa ekki getað séö þér farborða. Danskir Gyðingar hafa tekið þig upp á arma sína. Þeir eiga að ala önn fyrir þér í framtíöinni. — Ekki var þér í kot vísað 111 Ágrip af ræöu Sig. Eggerz á Borgarnes- fundinum. Ræðumaöur hóf mál sitt á þvi, að skýra frá, að jafn- aðarmenn héldu lifi stjórnar- innar i lúkum sínum, og væri þvi eðlilegt að skoðanir jafn- aðarmanna settu blæ sinn á löggjöfina og athafnir stjórnar- innar. Ræðum. sagði að Alþýðubl., sem 'mintist sín við og við hefði sagt að hann væri farinn að verða gamall. Sagði ræðumaður að ýmis- legt skeði i stjórnmálum vorra tíma, sem væri þannig vaxið, að hver alvarlegur stjórnmála- maður gæti fengið hvít hár í höfuðið af því. Til þess að sýna festuna hjá hinum ráðandi flokki, þá skýrði ræðumaður frá því, hver hefði verið höfuðágreiningsmál milli sín og frambjóðanda fram- sóknar við síðust kosningar. Höfuðmálin, sem þeir börðust um, voru: I. Títansérleyfið. II. Uppsögn Spánarsamning- anna. III. Sljórnarskrárbreytingin. Ræðumaður barðist gegn Titansérfeyfinu, en frambjóð- andi framsóknar greiddi at- kvæði roeð lögunum á alþingi. En hvað skeði svo á siðasta þingi? Stjórnin tók eklci sömu aðstöðu og frambjóðandi henn- ar, en hun tók sömu aðstöðu og Sig. Eggerz og neitaði um sérleyfið. Þá var ræðumaður ákveð- inn gegn því, að nokkrar þær ráðstafanir eða ályktanir væru gerðar á alþingi eða annars- staðar, sem gæti gefið ástæðu til að Spánarsamningunum yrði sagt upp. Frambjóðandi framsóknar bar fram tillögu á alþingi 1926, sem var mjög hættuleg fyrir Spánarsamning- ana, og þessari tillögu fylgdu allir framsóknarmenn sem einn. Hvað skeði nú þegar hinir sameinuðu, framsóknarmenn og jafnaðarmenn, tóku við völdum? Þá var þvi auðvitað slegið föstu, að ekki kæmi til mála að hreyfa við Spánar- samningunum. Stjórnin tók sömu aðstöðu og ræðumaður en yfirgaf frambjóðanda sinn. Þá er stjórnarskráin. Fram- sókn vildi breyta stjórnar- skránni. Þing annaðhvort ár var gleðiboðskapurinn, sem prédikaður var í framsókn- arblöðunum. Frambjóðandi frams. var flokknum trúr og hélt breytingunum fram við kosn- ingarnar. S. E. hefir altaf verið andvígur því að þing væri annaðhvort ár, hefir við mörg tækifæri sýnt hve mikið aftur- haldsspor væri stigið með fækk- un þinga. Þegar stjórnin nýja tók við völdum, þá var stjórn- arskráin auðvitað feld. Stjórnin félst á slcoðun S. E. S. E. tók þetta ekki fram til þess að ráðast á þann framsóknar- mann, sem bauð sig fram gegn honum. Hann var trúr stefnu- skrá flokksins. En stjórnin breytti strax stefnuskránni, þeg- ar ábyrgðin hvíldi á öxlum hennar. Þetta varð einnig til að sýna, hve erfitt er fyrir kjósendur landsins að átta sig á því, hvað er alvara og hvað er ekki alvara, þegar sjálfur stjórn- arflokkurinn kúfvendir í svo stórum málum sem hér er um að ræða. Þá veik ræðum. að því, að sú hefði verið tíðin að kjós- endur í Mýrasýslu mundu ekki hafa unað því, að þingm. þeirra skýrði ekki frá því sem gerst hefði í sjálfstæðismálunum á þingi. Og mikið má það vera ef þeir una því enn. Sagðist ræðum. sjá hér ýms kunn and- lit frá fyrri timum og mundu skoðanir þeirra varla vera breyttar í máli, sem var þeim eins hjartnæmt og sjálfstæðis- málið. Ræðum. skýrði þá frá fyrir- spurn sinni til stjórnarinnar um það, hvort hún vildi vinna að því, að sambands- lagasamningnum yrði sagt upp og ihugað yrði sem vandlegast, hvernig utanrikismálum þjóð- arinnar yrði komið fyrir sem tryggilegast og þá jafnframt sem kostnaðarminst. Skýrði rspðum. frá því, að hér væri svo langt frá að verið væri að ræða um form, þvi hér væri verið að ræða um hluti, sem hefðu raunverulega þýðingu þar sem ekkert fjárhagslegra atriði stærra væri til en að þjóðin mætti sjálf njóta allra þeirra auðæfa, sem landið á í skauti sínu. En eins og nú stæðu sakir væri þjóð, sem er yfir 3 miljónir að stærð i tvíbýli við oss. En með upp- sögninni gæti þjóðin náð öll- um rétti yfir landinu í sínar hendur. Ræðum. skýrði nú frá þeirri niðurstöðu, sem varð á þing- inu í málinu. Stjórnin og flokk- ur hennur hefði tvimælalaust lýst því yfir að þeir vildu segja upp sambandslagasamningn- um og búa oss undir að taka við utanrikismálunum, og yfir höfuð að öllu leyti fallist á fyrirspurnina. Sömu voru undirtektir íhaldsmanna, og jafnaðarmenn lögðust á sömu sveifina, en vildu þegar lýsa yfir að þeir vildu ekki hafa konunginn áfram, en þetta lá fyrir utan það mál, sem til umræðu var. Eftir að ræðum. hafði gefið stuttá skýrslu um þessi mál, þá endurtók - hann, að sig furðaði á því, að þingmað- urinn skyldi ekki gefa kjós- endum sinum skýrslu um þetta mál, sem áreiðanlega hefði verið merkilegasta málið, sem fyrir þinginu lá. Þá mintist ræðumaður á skólamálin. Gat þess að kenslu- málaráðherra hefði talið mjög óheppilegt, hvað stúdentafjölg- unin væri mikil. En samtímis stofnaði kenslumálaráðherr- ann í einræði sinu mentaskóla á Norðurlandi. En enginn gæti skilið að slík ráðstöfun gæti dregið úr stúdentafjölguninni. Ræðumaður kvaðst nú ekki mundi víkja meiru að þessu máli, en hann vildi vita hina stóróheppilegu ráðstöfun ráð- herrans að loka Mentaskólan- um að miklu leyti fyrir fátæk- ari mönnum í landinu og svo að segja alveg fyrir sveitunum. Öllum má vera það ljóst að þeir efnaðri menn geta útveg- að sonum sínum og dætrum sérstaka kenslu, svo þau standa betur að vígi í samkepninni. En væntanlega verða einkunnir við prófin látin skera úr þvi hverjir verða i tölu þeirra 25 nemenda sem kenslumálaráðherrann leyfir að komast inn í skól- ann. Að því er aðsóknina frá sveitunum snerti, þá sé vist að bændur hafi ekki ráð á því að senda syni sína og dætur hingað til Reykjavíkur og eiga á hættu að þau þurfi að falla við inn- tökupróf, þó dugleg sjeu. Spurningin er þá, hvað okk- ar reynsla, okkar saga sýnir um það hvort ástæða sé til þess að loka skólanum, beztu msntastofnun landsins fyrir bændadætrum og bændasonum okkar. Reynslan er sú að ýms- ir slíkir námsmenn, sem bar- ist hafa við fjárhagslega örð- ugleika allan skólatímann, hafa oft reynst ötulustu mennirnir. Óhætt er að fullyrða að ekk- ert skapar hinn sanna jöfnuð í þjóðfjelaginu eins og mentun. Þeir, sem hafa nóg af þeirri kjölfestu eiga leiðina opna að öllu því, sem mest er um vert i þjóðfjelaginu. Með þvi að loka mentaskól., hefir stjórnin stígið hið mesta afturhaldsspor, sem stígið hefir verið á þessu landi. Hinum frjálslyndu mönnum með þjóðinni hlýtur að ofbjóða þetta svarta afturhald, og kjós- endur þeir, sem hér eru stadd- ir og enn halda með stjórn- inni, verða að krefjast þess að hún afturkalli þessa ráðstöfun. Ræðumaður mintist á ýms önnur mál, breytinguna á hegningarl. o. fl., en flytjum að eins þau atriði, sem voru þungamiðja ræðunnar. Vér birtum hér ágrip af ræðu þeirri, sem Sig. Eggerz hélt á Borgarnesfundinum. I ræðu þessari er skýrt rélt frá öllu. Stjórnarmenn komust í hin mestu vandræði út af ræð- unni, og gátu ekkert hrakið og engu svarað. Var þá gripið til þess úrræðis að reyna að telja lesendum Timans trú um, að ræðan hefði verið einskon- ar spaugræða, sem ekki væri takandi mark á. Jafnvel þing- maður kjördæmisins tók í þennan streng. Vér birtum ágrip af ræðunni til þess að lesendurnir geti séð hve sannsöglin er mikil. Ræð- an var þrungin af alvöru en við og við brá fyrir bitru háði yfir öllum þeim pólitisku kast- vindum, sem hafa þeytt stjórn- inni úr einu horni í annað. Sorglegt er að vita að hinn vel gefni, ungi þingmaður kjör- dæmisins skuli offra hugsjón- um sinum á þessu stjórnar- altari. Tilhneigingin er rík í Tímanum til að beygja menn undir flokksagann. Þáð er eins og flokksaginn sé skoðað-

x

Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísland
https://timarit.is/publication/747

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.