Ísland


Ísland - 07.07.1928, Blaðsíða 3

Ísland - 07.07.1928, Blaðsíða 3
ÍSLAND 3 t*að hefir að vísu ekki verið veitt en þá, en líklegt er talið, að hinn setti dósent Ásmund- ur Guðmundsson muni verða skipaður í það. Þetta mál hefir verið gert að blaðamáli. Garðar Þorsteins- son lögfræðingur hefir skrifað um mál þetta i »Yísi« og sýnt fram á það með sterkum rök- um, að séra Sveinbjörn hafi verið órétti beittur. Sig. P. Sivertsen prófessor hefir hald- ið uppi vörnum fyrir guðfræð- isdeildina. En engum, sem les- ið hefir greinar þeirra Garð- ars og Sívertsens getur bland- ast hugur um, að hin síðar- nefndi fer mjög hallloka í rök- ræðunum. Garðar hefir krafist þess, að samkepnispróf verði látið fara fram um émbættið, og er það auðvitað hið eina rétta. Samkepnispróf á að skera úr. Það er ekkert vit í því að veita embætti við Háskóla —, sem margir góðir menn vilja fá, án þess að samkepnispróf sé látið fara fram á milli þeirra. — Og ég verð að vænta þess, að embættið verði ekki veitt fyrri en slíkt samkepnispróf hefir skorið úr á milli þeirra naanna, sem vilja fá embættið. G. Qleymskulindin eftir Jaroslav Vrehlichg. Fulgentius ábóti studdist upp við steinvegginn, sem lá í kring um klausturgarðinn og hortði hugsandi út í bláinn. Bænabók- in datt úr hendi hans niður í grasið. Pað var komið að sólsetri. Gömlu trén í klausturgarðinum Ijómuðu af geisladýrð kvöldroð- ans, — eins og gimsteinasúlur, — og blöð þeirra ljómuðu eins og smaragðar. Garðurinn var næstum því eins fagur og ald- iugarðurinn Eden, sem svo oft er getið um í fornum fræðum. Fuglarnir og fiðrildin, sem við °g við flugu um garðinn, líkt- nst mest fljúgandi blómum eða hrapandi stjörnum. — Allir hlutir glitruðu af geisladýrð kvöldroðans, alt virt- ist gegnumsýrt af ómælanlegum krafti. Það var hið leyndardómsfulla augnablik umskiftanna, þegar líður að kveldi — dagurinn er liðinn, en þó er nóttin ekki komin, augnablikið, þegar sálin úunur ekki til hlekkjanna og Þykist fær um áð fljúgja í aðra heima. Abótinn var óvenjulega hrygg- úr i huga. Pað var þó ekki hin Venjulega hrygð mannanna sem honum amaði, sú hrygð, sem manninn til þess að yfigefa ^Qnina og slökkva hinn síð- asta lífsneista í óbygðum. — Hrygð hans var annars eðlis. Pað var hrygð sálarinnar, sem þráir lífið, hrygðin, sem fær mennina til þess að gripa hálmstráinu, til þess að hjarga sálinni, sem er að glat- ast» hrýgðin, sem orsakast af Pýánni eftir hinu fagra, góða og hgnarlega, þránni, sem oss vant- ar aðeins eitt skilyrði til þess að geta fullnægt — að geta gleymt því liðna. Eftir mikil heilabrot, hóf á- bótinn upp höfuðið og horfði á fegurð sólarlagsins. Fyrir fram- an hann stóð maður, klæddur sem pílagrímur. Á höfðinuhafði hann breiðan hatt, skrýddan fjöðrum, staf í hendi og ferða- tösku á baki. Hann var hár og tignarlegur og andiit hans bar þess merki, að hann var frið- samur og sætti sig við örlögin. Ábótinn veifaði til hans með hendinni. Pílagrímurinn kom nær, — aðeins hinn lági þyrn- um vaxni steinveggur í kringum klausturgarðinn aðskyldi þá. »Ertu langt að kominn ?« spurði ábótinn ókunna mann- inn. »Já«. »Lengi hefi ég verið haldinn óttakendri löngun eftir að heim- sækja hina helgu staði«, sagði ábótinn, »en skyldur mínar og embætti hafa altaf hamlað mér frá því. Og þér getið vafalaust tæplega trúað því, að það sem hefir verið erfitt fyrir munkinn, er næstum því ómögulegt fyrir ábótann. í mörg ár hefi ég stað- ið við þennan vegg og horft út í bláinn, til þess að koma auga á kross og fána pilagrimanna. Söngvar þeirra hafa stundum komið tárunum fram i augu mín. Það var eins og ég fengi vængi, er vildu hefja mig til flugs, en ég varð að kvelja þessa sterku þrá, með kvöl í hjarta varð ég að snúa aftur til klaust- ursins, þegar kvöldklukkunum var hringt. Smámsaman vand- ist ég þessu, kvölin vék fyrir meðaumkvun með sjálfum mér. Ég horfði rólega á eftir þeim, sem voru á leiðinni til landsins helga — ég unni þeim þess að komast þangað, en þó gat ég ekki rætt löngunina upp úr sál minni. Þegar ábótinn hafði mælt þessi orð, varð hann aftur þungt hugsandi. Hann veitti því ekki athygli að pílagrímurinn horfði á hann með einkennilegum svip, eins og hann vildi sjá alt það sem gerðist i huga hans. Án þess að bíða eftir spurn- ingu, mælti ábótinn: »Ég gerði mér í hugarlund, að ég mundi verða hamingju- samari en aðrir pílagrímar og ef til vill finna það, sem allir, fátækir og ríkir, ungir og gaml- ir leita árangurslaust eftir«. Pað var furðulegt, að píla- grímurinn skyldi ekki reka. á-. bótann í gegn með augunum.— Ábótinn hélt áfram að tala, knú- inn af hinu einkennilega augna- tilliti pilagrímsins. það var líkara því sem hann ætlaði að skrifta fyrir æðri veru og velta þunganum þannig af sál sinni, sem hann hafði ekki getað komið orðum að fyr en nú. — Hann talaði hægt og ró- lega, með dálitlum skjálfta í rödd- inni. »Vér þjáumst allir af þessari hugsun. Hve margir sjófarendur hafa ekki farist hennar vegna á höfunum«. Og klaustursögurnar, telja þær ekki upp marga riddara, sem fóru að heiman til þess að leita að undrunum! Og þeir fundu það ekki, en það er eins og einhver rödd hvísli að mér í leyni, að ég hefði orðið hepnari«. Augu pílagrímsins voru björt og töfrandi. »Ég á við uppsprettuna miklu, sem yngir alla þá, er af henni drekka. Ég er viss um, að hún er til, en hvar er hún? Ég trúi því, að hún finnist einhvern- tíma, en hver verður svo ham- ingjusamur að finna hana, og verður hann fær um að láta hana verða öllu mannkyni til heilla? og verður hann fær um að láta hana verða sjálfum sér til heilla? — Hver getur svarað þessum spurningum? Nú tók pílagrímurinn orðið: »í>ú heldur, ábóti, að ynging- arlindin mundi hjálpa þér og verða þér til heilla, ef þér auðn- aðist að finna hana. Hvilikur misskilningur! Hugsaðu þig um. — Ert þú saklaus?« Þegar ábótinn heyrði þessa spurningu tók hann að skjálfa. Hann fann blygðunarroðann færast yfir andlit sitt. Hann beygði höfuðið og þagði. Pílagrímurinn hélt áfram: Hvaða gagn gæti uppynging- arlindin gert þér og þínum lík- um? Þér munduð drekka af henni, og þér munduð yngjast, en við það mundi sektarmeð- vitund yðar einnig yngjast. Fað eru ekki árin sem gera oss gamla. Það er syndin, syndin gegn göfgi mannkynsins, gegn ákvörðun vorri, að vera góðir og gera gott. Við ynginguna mundi sektarmeðvitund vor vaxa og sökin leggjast þyngra á oss. Og þetta yrði hlutskifti allra, því að, segið mér: Hver er sak- laus og án syndar?« »Enginn, enginn«, hrópaði á- bótinn. »En hvert eigum vér þá að leita?« »Ég þekki betra meðal«, svar- aði pílagrímurinn. »Ég þekki aðra lind, sem yngir mennina ekki upp og yður hefir ekki dreymt um hana. Vatnið í henni er beiskt á bragðið, en það er holt. Það er það eina, sem get- ur endurnært þann mann, sem hefir mist hina sönnu æsku sál- ar sinnar vegna sinda synna«. Ábótinn starði á pílagriminn og óslökkvandi þrá speglaðist í augum hans. »Þú hefir fundið hanal Segðu mér: hvar og hvenær?« »í*að er þýðingarlaust*, sagði pilagrímurinn og færðist undan að svara. F*ér má vera það nægi- legt, að ég ræð yfir henni og get gefið þér drykk, ef þú vilt þá kom og vert ekki hræddur«. »Ég óttast ekkert«, ég vil fá hann«, pílagrímurinn opnaði tösku sína, tók úr henni lítinn trébikar og fylti hann af svört- um vökva, sem hann tók úr flösku, er hann bar í töskunni. — Síðustu geislar kvöldsólar- innar léku um andlit pílagríms- ins, er endursprglaðist í svarta vökvanum. Hann rétti ábótanum bikarinn. »Hvað er þetta?« spurði ábót- inn, um leið og hann bar bik- arinn að vörum sínutn. »Þaö er úr gleymsku-lind- inni«, svaraði pílagrímurinn. — Sólin hvarf og skuggarnir færð- ust yfir grundina. Ábótinn tæmdi bikarinn. Eitt augnablik stóð hann kyr og horfði út í bláinn. Pílagrímurinn hvarf út í geim- inn og síöan alt umhverfið. Skuggarnir birgðu fyrir augu á- bótans. Hann fann, að köld hönd lypti því frá brjósti hans, sem árum saman hafði legið á því hans eins og mara. Hon- um varð létt í skapi. Hann varð ungur og hraustur i annað sinn. Hann lét höfuðið hniga niður á brjóstið, og skuggarnir umluktu hann á alla vegu, að lokum varð hann sjálfur skuggi og hvarf út í geiminn. Það var liðið á nóttina, þeg- ar hinir skelfdu munkar klaust- ursins fundu hann. Kaldir dagg- ardropar sátu á hári hans og skeggi, og þar sem hjartað hafði titrað, lá fagurt blóm, og um varir hans lék bros, er sýndi óendanlega mildi. (Endir.) Vinston Spencer CbiircIiiU. Vinston Churchill má vafa- laust telja einhvern merkasta stjórnmálamann Englendinga. Saga hans ber þess vitni, að hann hafi mörg eínkenni mik- ilmennisins. Hann var orðinn hermaður, áður en hann náði tvítugs- aldri. Og næstu 6 árin, fram að 25 ára aldrinum, tók hann þátt í öllum þeim styrjöldum, sem hann gat. Hann sat um hvert tækifæri, sem hægt var að eygja, til þess að vera með, taka þátt í styrjöldunum. Þegar hann var liðlega tvi- tugur, fór hann að fást við blaðamensku. Og var sendur til vígvallanna sem fregnritari blaðanna. Hann notaði þá hvert tækifæri til þess að berj- ast enda þótt það tilheyrði ekki fregnritarastarfinu. Þegar hann var 26 ára að aldri, komst hann á þing. — Hann hafði boðið sig fram sem íhaldsmaður, en brátt yfirgaf hann þann flokk og gekk í frjálslynda flokkinn. — Hann hækkaði brátt í tigninni. Þeg- ar ófriðurinn gaus upp 1914 var hann flotamálaráðherra. En lánið er hverfult. Eins og kunnugt er, var Kitehener lávarður gerður að hermálaráðherra Englands. Allir glöddust yfir þessu. — Englendingar treystu Kitchener betur en nokkrum öðrum til þess að stjórna hermálunum. En hermálaráðherrastarfinu er svo háttað, að það krefst stjórn- málavits, fremur en hernaðar- vits. Þessu gleymdu Englend- ingar. — Kitchener var eng- inn stjórnmálamaður. Hann var eingöngu hermaður. Kitchener vildi beita öllu afli enska hersins gegn Þjóð- verjum á vestur-vígstöðvun- um. — Churchill óttaðist Tyrki. Hann leit svo á, að enska rik- ið væri i hættu statt í Austur- löndum, ef Tyrkir yrðu ekki eyðilagðir. Hann vildi senda her tíl Gallipolis. — Kitchener barðist lengi á móti þessu. — Tyrkir vissu hvað var á seyði og bjuggu sig þess vegna sem bezt til varnar. Kitchener lét undan að lokum og stjórnaði i raun réttri Gallipoli-herför- inni, en hún mistókst alveg. Ghurchill var kent um þetta, allir réðust á hann og hæddu hann. — Að lokum var hann rekinn úr embætti. Þegar Asquith lét af völdum og Lloyd George tók við, varð Churchill ráðherra að nýju. — Hann átti að sjá um allan herbúnað Englendinga. Þegar Lloyd George fór frá völdum og frjálslyndi flokkur- inn fór i mola, var Churchill í nokkrum vafa hvað gera skyldi. — Hann hafði verið í ráðherrasæti fyrir frjálslynda- flokkinn í 16 ár og átti þar i raun réttri heima. — Aðal- áhugamál hans voru: Umbæt- ur á öllum sviðum og trjáls verzlun. Hann reyndi enn þá einu sinni að komast að sem frjálslyndur maður, en það mistókst. — Og þá sneri hann aftur til ihaldsins, sem hann hafði yfirgefið fyrir 25 árum. Tvent olli þessu aðallega. 1. Churchill er metorðagjarn og er sannfærður um, að hann sé í heiminn borinn til þess að stjórna enska ríkinu og gera það stærra og voldugra en það er nú. 2. Hann hatar kommúnism- ann meira en alt annað, og þóttist hafa betra tækifæri til þess að eyða honum, ef hann gengi í hinn sterka í íhalds- flokk Englands, heldur en ef hann væri í litlum flokk. En þar að auki gaf hann ekkert upp af skoðunum sin- um og þykir lélegur flokks- maður enska ihaldsins. Stanley Baldwin tók fegins- hendi við Churchill. Hann var settur í sterkt íhaldskjördæmi, náði kosningu og varð þegar í stað fjármálaráðherra Eng- lands. Og i þvi sæti situr hann nú. Churchill hefir marga góða hæfileika. Hann hefir fram úr skarandi mikla rithöfundar- hæfileika. — Og þrátt fyrir þau miklu störf, sem hann hefir á hendi i þágu þjóðarinnar, hefir hann fengist all mikið við ritstörf. Af bókum eftir hann má nefna: My African Journey, Lord Randolph Churchill og The World Crisis. Churchill er vafalaust einhver sá allra snjall- asti ræðumaður á þingi Eng- lendinga. En hann er ekki fæddur mælskumaður. Fyrst framan af marg skrifaði hann ræður sínar. — Og »æfingin gerir meistarann«. — Hann er fynd- inn, hæðinn og ofsafenginn sem ræðumaður. Englendingar telja þó Lloyd George snjallari ræðumann en Churchill. Orðaval og framsetn- ing Lloyd George’s stendur þó að baki Churchill’s, en Lloyd George er meiri mannþekkjari og kann betur þá list að leika á strengi mannlegra tilfinninga en Churchill. Churchill er ekki eins viðsýnn og Lloyd George. — Hann vill sjálfur gera krafta- verkin, en Lloyd George vill sameina krafta margra til þess að gera þau. Churchill er ekki samvinnu- þýður. Hann á enga vini og enga fylgismenn, er fylgja honum lengur en meðan hann hefir völdin. — Af þessum ástæðum hefir hann aldrei verið íoringi flokkssíns. — Hinirfrægu ensku stjórnmálamenn: Gladstone, Salisbury, Champbell-Banner- mann, Lloyd George, Bonar Law og Baldwin, hafa allir átt

x

Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísland
https://timarit.is/publication/747

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.