Bókmenntaskrá Skírnis - 01.01.1969, Qupperneq 6

Bókmenntaskrá Skírnis - 01.01.1969, Qupperneq 6
ársins 1968, þar sem einhver von var bókmenntalegs efnis. Örðugra var að hafa uppi á því, sem erlendis birtist. Hefur verið leitað til ým- issa aðila um liðsinni í þeim efnum. Eigi að síður vantar áreiðanlega talsvert á, að nægjanleg skil hafi orðið. Því vil ég heita á þá, sem verða varir við efni um íslenzkar síðari tíma bókmenntir í erlendum ritum, að senda undirrituðum upplýsingar um það. Oft fá skáld og rithöfundar sendar umsagnir um eigin verk, og vil ég því ekki sízt beina þessum tilmælum til þeirra. Reynt hefur verið að ganga þannig frá skránni, að verulegar leið- beiningar um notkun hennar séu óþarfar. Tekið skal íram, að heiti rila, sem vísað er til, eru annað hvort birt óstytt eða skammstöfuð þannig, að auðskilið sé flestum lesendum við fyrstu sýn. En aftast er skrá um öll blöð og tímarit, sem efni er tekið úr, flokkuð eftir löndum. Að lokum þakka ég öllum, sem stuðlað hafa að öflun efnis eða lagt mér á annan hátt lið við samantekt þessa rits. Einar Sigurðsson Háskólabókasafn Reykjavík

x

Bókmenntaskrá Skírnis

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókmenntaskrá Skírnis
https://timarit.is/publication/754

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.