Tuðran - 01.01.2001, Qupperneq 2

Tuðran - 01.01.2001, Qupperneq 2
2 Fylgt úr hlaði í blaðinu sem þú hefur nú í höndunum lesandi góður er kynning á starfsemi Knattspyrnudeildar UMF Selfoss. Deildin heldur úti mjög öflugu starfi í nánast öllum flokkum bæði karla og kvenna. Allir flokkarnir eru kynntir hér í blaðinu. I barna og unglingaflokkunum er unnið gríðarlega gott starf, en því er stýrt af unglingaráði deildarinnar. Við erum mjög stolt af því að geta boðið unga fólk- inu okkar kost á því að stunda knattspyrnu undir mjög hæfra og vel menntaðra þjálfara. Þetta starf hefur m.a. borið þann ávöxt að á síðasta ári eignuðumst við unglingalandsliðsmann og nú stunda tveir 15 ára drengir æfingar með U17 ára landsliðinu. MEISTARAFLOKKUR KARLA SUMARIÐ 2001 Leikdaaur Mót Völlur Heimalið Gestir fös. 18. maí. 2001 - 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Skallagrímur þri. 22. maí. 2001 - 20:00 Coca-Cola bikar karla Ásvellir HaukarU23 Selfoss fös. 25. maí. 2001 - 20:00 2. deild karla Ásvellir Haukar Selfoss mán. 04. jún. 2001 - 14:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Léttir fim. 07. jún. 2001 - 20:00 2. deild karla Garðsvöllur Víðir Selfoss þri. 19. jún. 2001 - 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss KÍB þri. 26. jún. 2001 - 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Afturelding lau. 30. jún. 2001 - 14:00 2. deild karla Sindravellir Sindri Selfoss þri. 03. júl. 2001 - 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Leiknir R. lau. 07. júl. 2001 - 14:00 2. deild karla Akureyrarvöllur Nökkvi Selfoss fim. 12. júl. 2001 - 20:00 2. deild karla Skallagrímsvöllur Skallagrímur Selfoss fim. 19. júl. 2001 - 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Haukar fim. 26. júl. 2001 - 20:00 2. deild karla Ármannsvöllur Léttir Selfoss mið. 01. ágú. 2001 - 20:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Víðir lau. 11. ágú. 2001 - 14:00 2. deild karla Skeiðisvöllur KÍB Selfoss fim. 16. ágú. 2001 -19:00 2. deild karla Varmárvöllur Afturelding Selfoss lau. 25. ágú. 2001 -14:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Sindri sun. 02. sep. 2001 - 14:00 2. deild karla Leiknisvöllur Leiknir R. Selfoss lau. 08. sep. 2001 - 14:00 2. deild karla Selfossvöllur Selfoss Nökkvi Töluverðar breytingar hafa orðið á meistaraflokki karla frá því í fyrra og er meginbreytingin fólgin í því að nú er liðið eingöngu skipað heimamönnum, en í fyrra léku þó nokkrir aðkomumenn með liðinu. Nokkrir ungir og bráðefnilegir leikmenn hafa bæst í hópinn og verður gaman að fylgjast með hvernig þeim vegnar, raunar hafa þeir sýnt og sannað í við liðinu á miðju síðasta leiktíma- bili. Kristinn er þrautreyndur og vel menntaður knattspyrnuþjálfari og vænta Selfyssingar sér mikils af störfum hans. Með meistaraflokki starfar sérstakt meistarflokksráð sem sér um alla umgjörð leikja liðsins , auk þess eru liðinu til aðstoðar í leikjunum tveir liðsstjórar. utan unglinga- og meistarflokksráðin, sem áður voru nefnd, þá starfar sérstakt 2. flokksráð með 2. flokki karla og mikið foreldarastarf fer fram með öllum yngri ílokkunum. Fyrir öllu starfinu fer síðan stjórn deild- arinnar, en hana skipa; Þorvarður Hjaltason formaður, Katrín Karlsdóttir varaformaður, Grímur Sigurðsson gjaldkeri, Óskar Arilíusson ritari og Þröstur Hafsteinsson meðstjómandi. í varastjórn sem raunar tekur fullan þátt í störfum stjórnarinnar eru; Brynhildur Jónsdóttir, Þorsteinn G. Þorsteinsson og Sævar Sverrisson. Með því að gefa út þetta blað vildum við kynna fyrir fólki það þýðing- armikla starf sem fram fer á vegum deildarinnar og um leið að hvetja fólk til að styðja starf deildarinnar með einhverjum hætti. Okkur munar ekki síst um það að fólk sýni starfi okkar áhuga með því að koma á leiki bæði yngri og eldri flokka og hvetja íþróttafólkið til dáða. Með kveðju, Þorvarður Hjaltason fyrstu leikjum Islandsmótsins að þeir Fjöldi fólks vinnur mikið og óeigin- eru fyllilega traustsins verðir. Þjálfari gjarnt starf fyrir deildina, auk liðsins er Kristinn Björnsson, sem tók íþróttafólksins og þjálfaranna. Fyrir Vormót knattspyrnudeildar Umf. Selfoss Mánaðarmótin apríl - maí varhaldið knattspyrnumót á grasvöllum víðsvegará Suðurlandi. Spilað var á Hellu, Eyrarbakka, Hvolsvelli og í Árnesi. Meistaraflokksráð knattspyrnudeildar sá um framkvæmd mótsins. Alls voru spilaðir 10 leikir og voru úrslitin eftirfarandi: Þór Ak,- FH 4 - 2 KA - ÍR- 4 - I Breiðablik - Fylkir 0-2 Selfoss -Þór Ak. 0-8 FH - Selfoss 8 - I Breiðablik - ÍR 0-0 Fylkir - Þór Ak 2-0 Breiðablik - Þór Ak. 2- l Selfoss - KA 0-4 ÍR - Fylkir I -4 Eins og sjá má gekk okkar liði ekki nógu vel, en ýmsar ástæður liggja þar fyrir. Sú ákvörðun var tekin af stjórn í vetur að notast einungis við heimamenn í liðinu. Því er liðið mjög ungt og reynslulítið í samanburði við hin liðin sem flest hafa innanborðs landsliðs- og fyrrverandi atvinnumenn. Þetta var þó góð reynsla fyrir okkar menn, sem nánast eru á byrjunarreit í upp- byggingu framtíðarliðs meistarflokks karla. Upphaflega stóð til að spila 16 leiki í mótinu. en vetur konungur hafði aðrar hugmyndir og plataði aðstandendur mótsins, þannig að nokkrir af fyrirhuguðum völlum voru ekki búnir að losa úr sér frostið og því úrskurðaði óleikhæfír. Þrátt fyrir fækkun leikja reyndust þjálfarar liðanna ánægðir með að fá tækifæri til að taka þátt í mótinu, þar sem mjög æskilegt er að komast á grasvelli sem fyrst í undirbúningi liðanna fyrir Islandsmót. Við höfum lært mikið af framkvæmd þessa móts og erum stórhuga fyrir næsta vor, en þá munum við halda mótið að nýju með einhverjum breytingum. Meistaraflokksráð vill þakka öllum sem komu að framkvæmdinni, vallarhöldurum, dómurum, þjálfurum og leikmönnum, ásamt öðrum þeim sem lögðu hönd á plóginn. ÁFRAM SELFOSS Meistaraflokksráð Ábyrgð: Knattspyrnudeild U.M.F. Selfoss Setning og umbrot: Eygló Pétursdóttir Prentun: Prentsmiðja Suðurlands Það er kraftur í knattspyrnunni Síðastliðið haust var blásið til sóknar í knattspyrnunni á Selfossi með þvf að hópur áhugafólks um framgang hennar kom saman í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss. Þessi kröft- ugi hópur stóð síðan að undirbúningi framhaldsaðalfundar þar sem markmið voru sett um metnaðarfulla uppbyggingu íþrótta- og félagsstarfs innan knattspyrnudeildar Umf Selfoss á traustum félagslegum grunni. Stór og metnaðarfull verkefni í hönd fór undirbúningur starfsins sem hefur blómstrað í vel skipulögðum æfingum og keppnisferðum barna, unglinga og fullorðinna í vetur. Og nú fer sumarstarfið í hönd hjá þeim stóra hópi sem heldur utan um starfið, skipuleggur það og atlar fjár til þess. Einnig eru verkefnin stór og metnaðarfull hjá yngri og eldri knattspyrnumönnum og konum sem horfa til vel undirbúins sumarstarfs þar sem nóg er að gera á æfingum, í keppnum og í félagsstarfi sem metnaðarfullir þjálfarar og skipuleggjend- ur í unglinga- og flokksráðum halda utan um. Öflugasta forvarnarstarfíð Það er sókn í Ungmennafélagi Selfoss sem stendur að viðamiklu íþrótta- og félagsstarfi á Selfossi, félagatalan er ríflega 1440 einstaklingar sem að langmestu leyti eru ungir iðkendur. Það mikla íþrótta og æskulýðsstarf sent fram fer í deildum félagsins er mjög dýrmætt, svo dýrmætt að við megum alls ekki missa þar niður dampinn. Sú mikla vinna og það starf sem haldið er úti er öflugasta forvarnarstarfíð sem unnið er í okkar sam- félagi. Mikilvægt samfélagsverðmæti Málefni þessa starfs eru ekki bara íþróttafélaganna heldur eru á ferðinni sam- félagsverðmæti sem forystumenn ríkis og sveitarfélaga ásamt embættismönnum þeirra þurfa að hugsa um að styðja og efla. Það verður best gert með því að styðja sjálft þjálfara og kennslustarfið og með öflugri uppbyggingu mannvirkja og aðstöðu. Einn vel útbúinn nútíma sparkvöllur, upphitaður með gervigrasi, hefur gífurleg áhrif. Það hefur líka vel slegin grasflöt með góðum mörkum. Styðjum starfið - fylgjumst með Krafturinn í knattspyrnunni á Selfossi er öllum hvatning lil sóknar og ég hvet alla drengi og stúlkur til þess að taka þátt í æfingum og vera með í félagsstarfinu. Sá sem mætir á æfingu er um leið orðinn félagi. Ég hvet einnig foreldra til að fylgjast með og taka þátt í að efla heilbrigt félagsstarf. Starfsemi Umf. Selfoss er öllum opin. Lokshvetég alla þá sem hafa tök á, að styðja þetta þróttmikla starf, í orði og verki. Umf Selfoss er félagið okkar. Sigurður Jónsson l'ormaOur Umf. Selfoss.

x

Tuðran

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.