Árdís - 01.01.1962, Side 9

Árdís - 01.01.1962, Side 9
Ársrit Bandalagas lúterskra kvenna 7 auðug fjölskylda, vel metin og vinsæl. Dóttirin Ethel er á háskóla og þar kynnist hún japanískri stúlku. Nemendurnir nefndu hana sín á milli Cherry Blossom, hún minnti á blómstrin hvítu með því nafni, sem springa út á heimalandi hennar. Cherry Blossom var falleg, fjörug og kát, var hrifin af öllu í skólanum og dáðist að öllu, sem hún hafði séð í 'þessu landi auðs og velmegunar. — Ethel Clarkson, sem áður er nefnd, gerðist brótt góður vinur japanísku stúlkunnar, og er jólin nálguðust, fannst henni það ömurlegt fyrir hana að vera í heimavist skólans, er aðrir fóru heim. Skrifaði hún móður sinni' og bað um leyfi að bjóða Cherry Blossom heim með sér um jólin. Var það auðfengið og á heimili Clarksons fjölskyldunnar var Cherry Blossom hrifin af gestrisni og glæsimennsku fjölskyldunnar. Daginn, sem stúlkurnar fóru af stað aftur til skólans, spurði Mrs. Clarkson hana hvemig hún hefði unað sér hjá þeim og hvað henni fyndist um heimili þeirra, og Cherry Blossom svaraði: „Það hefir verið elskulegt að vera hér og get ég ekki þakkað þér eins og skyldi. Ég hef aldrei séð svona fagurt og ríkmannlegt heimili og allir hafa verið svo góðir við mig — en — en“ svo beit hún á vörina og þagnaði. „En hvað, góða, segðu mér hvað þú ert að hugsa um,“ sagði Mrs. Clarkson. „Það er eitt, sem ég skil ekki — ég hef verið með ykkur í kirkjunni, þar sem þið tilbiðjið Guð, ég hef hlustað á jólboðskap- inn þar — ég hef séð ykkur beygja höfuðið þar í bæn. En mér finnst, að þið hafið Guð ykkar bara í kirkjunni, en ekki hérna á heimilinu. Er Guð kristna fólksins aðeins að finna í kirkjum? Má hvergi biðja til hans nema þar? Mig langar svo mikið að fræðast um svo margt, sem ég ekki skil hérna í þessu landi.“ Mrs. Clarkson setti hljóða. Eftir nokkra stund sagði hún: „Þú hefir gefið mér nokkuð til að hugsa um, Cherry Blossom — nokkuð sem ég get ekki svarað.“ INGIBJÖRG J. ÓLAFSSON

x

Árdís

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.