Árroði - 08.11.1933, Page 4
76
Á R R 0 Ð I
Æfintýri
af sa k a m a n ni.
Hér fer á eftir æfintýri af
sakamanni, er dæmdur var til
lífláts og átti að takast af. En
daginn sem pað átti að ske, urðu
menn seint fyrir, svo að fresta
varð aítökunni, og hinn dóm-
feldi maður fékk að ganga til
náða. Voru tveir menn settir til
að gæta hans, og skildu peir
vaka yfir honum, og var annar
þeirra sá, er átti að framkvæma
aftökuna.
Leið svo nóttin og risu menn
úr rekkjum, en eigivaknaði fang-
inn, og fóru sumir að tala uin
það sín á milli, að svefnsamt
væri þeim manni, sem vakna
ætti til dauðans. lJá svaraði ann-
ar vökumaðurinn, sá þeirra, er
átti að taka manninn af, að [lað
verk mætti hver sem vildi vinna
fyrir sér. Var hann harðlega á-
talinn fyrir pítð. En hann kvað
J>að engu skifta, og sagðist alls
ekki vinna þetta verk. Pá hleyp-
ur hinn til og tekur í hár hins
sofandi manns, og ætlar að
rykkja höfðinu fram á stokkinn,
en í pví snerist öxin í hendi
lians, og hljóp hún á handlegg
hans fyrir ofan olnboga og á
á fótinn fyrir ofan kné, og tók
hvorttveggja af, og sannaðist pá
pað, sem stendur í 4. vísu hér
á eftir, að hann skyldi pess
merki bera. Urðu margir ótta-
slegnir, er á petta horfðu. Var
pá hinn maðurinn spurður hvers
vegna hann hefði ei viljað vinna
petta verk, en hann svaraði, að
um kvöldið hefði maðurinn tek-
ið blað, og ritað eitthvað á pað
og lagt pað svo undir höfuð sér
og lagst síðan til svefns og snú-
ist til veggjar. En um miðnætur-
skeið hefði koinið hvítklæddur
maður og gengið að rekkju hins
dæinda manns, flett hann klæð-
um ofan á brjóst, og tekið hvít-
an fugl upp úr sænginni og hul-
ið hann aftur voðum, en gengið
með fuglinn í fangi sér í burtu.
En pegar að var gáð, var roað-
urinn andaður. Var pá gáð und-
ir höfuð hans, og reyndist pað
satt, sem maðurinn sagði. — En
pessi hvíti fugl hefir án efa ver-
ið sál mannsins. En undir höfði
hans fundust pessar vísur:
Iíér skal blunda hægt og rótt
pó hrygðar pylji stefið.
mér hefur hvildar marga nótt
mildur Drottinn gefið.
Sælan gefi inér síðsta blund
svölunar brunnurinn dáða.
Mína dauða dapra stund
Drottinn virstu náða.
Örg mig fýsir öldin senn
illum dauða að blaka.