Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Síða 2
Þ að gerist ekki á hverjum degi, núorðið, að fræðimenn á Vesturlöndum boði til ráðstefnu- halds um hlutverk kommúnismans í samtím- anum. Kommúnismi er líklegri til að vera um- fjöllunarefni sagnfræðinga með sérstakan áhuga á kalda stríðinu en stjórnmálaheimspekinga sem eru að „hugsa samtíð sína“. Sú er engu að síður raunin á ráð- stefnu sem Slavoj Zizek stendur fyrir nú um helgina við Birkbeck College í London. „Af hugmyndinni um kommúnisma“ er yfirskrift ráðstefnunnar, og koma þar saman sumir af helstu fræðajöfrum heims – stjörnur á borð við Alain Badiou, Antonio Negri og Michael Hardt. Hefur þurft að stækka ráðstefnusal- inn tvisvar í kjölfar þess að miðar seldust upp á auga- bragði. Þegar hefur skapast nokkurt fjölmiðlafár í kringum ráðstefnuna; að vísu ekki vegna umfjöllunarefnisins heldur vegna óhóflegs aðgangseyris. Hann er 100 sterlingspund fyrir launamenn en 45 fyrir stúdenta. Þetta þótti nemendum við School of Asian and Orien- tal Studies í London óboðlegt, og sendu frá sér harð- orða ályktun gegn hinum hræsnisfullu sófa- eða kampavínskommum sem munu ræða málin fjarri hungurópum og vélanið verksmiðja. Á vefmiðlum vinstrisinnaðra heyrist rætt um mótmælaaðgerðir við fundarsali, en Zizek og félagar þykjast hafa friðþægt lýðinn með því að bjóða upp á ókeypis aðstöðu í öðrum borgarhluta til að fylgjast með ráðstefnunni í gegnum fjarfundabúnað. Sumir breskir fjölmiðlar hafa hleypt brúnum yfir kommúnistatalinu. Financial Times gekk svo langt að leggja heila síðu í helgarútgáfu sinni undir viðtal við hinn fjölmiðlavæna ráðstefnuhaldara, Slavoj Zizek. Í viðtalinu segir Íslandsvinurinn undan og ofan af sín- um hugðarefnum, og vekja þau að vanda undrun og skemmtun hjá blaðamanninum. Umgjörð viðtalsins er léttúðug – í efnisflokknum „Lunch with the FT“ – en það er athyglivert að gaspri Zizeks um blóðugar bylt- ingar og erindi marxismans við daglegt líf er leyft að njóta sín alfarið án kaldhæðinnar innrömmunar af hálfu blaðamanns. Af lestrinum mætti nánast álykta að á ritstjórnarskrifstofum Financial Times sitji menn á yfirveguðum rökstólum um hvort kommúnisminn sé –gæti það verið? – hugmynd sem taka beri alvarlega. Fjölmiðillinn grandvari slær þó alvarlegri tón með því að birta – daginn eftir að viðtalið við Zizek birtist – föðurlegan pistil eftir John Lloyd, virtan íhaldsblaða- mann og einn af ritstjórum FT. Yfirskriftin, í formi spurningar, er að vísu til marks um frjálslynda víðsýni blaðsins: „Kommúnismi: valkostur gagnvart kapítal- ismanum á ný?“ er spurt. Að afloknum vangaveltum er spurningunni – öllum að óvörum! – svarað neitandi. Ekki sé hægt að hugsa sér kommúnisma, segir Lloyd, án þess að upplýst fámennisstjórn sitji ein að völdum og píni lýðinn. Fámennisstjórninni takist aldrei að koma á hinni lýðræðislegu draumsýn kommúnismans, og í millitíðinni hrynji allt vegna ofskipulagningar og sigurviss kapítalisminn bíði handan við hornið, þess albúinn að taka við þrotabúinu. Þannig sé það alltaf. Gömul saga og ný. Ekki er annað hægt en að skynja eilítinn dragsúg, vott af grunsemdum eða hreinlega feimnislegan áhuga í skrifum FT um kommúnistaráðstefnuna. Eitt- hvað er varið í þetta fyrst það er þrisvar sinnum upp- selt á ráðstefnuna, stúdentar hóta mótmælaaðgerð- um, og allir eru alltaf að tala um þennan Zizek. Lloyd reynir að sannfæra sjálfan sig: „Að líkindum þarf meira en málþingið í Birkbeck til að kommúnisminn virðist betri valkostur [en kapítalisminn],“ skrifar hann í lok greinarinnar. Gott og vel. En gæti hrun kapítalismans breytt einhverju þar um? Í næstum þrjá aldarfjórðunga gekk stór hluti at- kvæðisbærra manna á Vesturlöndum með þá hug- mynd í kollinum að kapítalisminn væri ekki hið eina mögulega þjóðskipulag. Að hægt væri að ímynda sér, og búa til, allt annars konar fyrirkomulag þar sem lífs- kjör væru ekki ofurseld dutlungum fjármagnshreyf- inga, og heimsvaldastríð og örbirgð heyrðu sögunni til. Þegar Zizek og félagar halda ráðstefnu í nafni kommúnismans er þetta auðvitað draumsýnin sem þeir vísa til, draugurinn sem hefur virst svo dauður í gröf sinni að það þarf að kalla til hið ómögulegasta allra nafna til að særa hann fram: Kommúnismi. Ungir róttæklingar hvísla nú um það sín á milli að þrír af gestum ráðstefnunnar með nafnið illræmda muni heiðra land og þjóð með komu sinni til Íslands í maí og júní. Gaman verður að fylgjast með því á hvaða bekk íslenskir fjölmiðlar skipa nafninu þegar þar að kemur. Þá gæti tvennt ráðið úrslitum: annars vegar hversu þungt kalda stríðið hvílir á hjörtum fjölmiðla- manna, og hins vegar hversu fúsir þeir eru að horfast í augu við alvarleika kreppunnar sem nú er að hefjast. vidart@simnet.is Hið ómögulega nafn FJÖLMIÐLAR EFTIR VIÐAR ÞORSTEINSSON Morgunblaðið/ÞÖK Umdeildur Financial Times gekk svo langt að leggja heila síðu í helgarútgáfu sinni undir viðtal við hinn fjölmiðlavæna ráðstefnuhaldara, Slavoj Zizek. Ekki er annað hægt en að skynja eilítinn dragsúg, vott af grunsemdum eða hreinlega feimnislegan áhuga í skrifum FT um kommúnistaráðstefnuna. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2009 2 LesbókSKOÐANIR U m þrjúleytið á sunnu- dögum leggja margir við hlustir yfir þætt- inum „Hvað er að heyra?“ í Ríkisútvarpinu. Eins og flestir vita er þetta spurningaþáttur um tónlist sem er þeim kost- um gæddur að flestir sem á annað borð hafa farið á tón- leika eða eignast hljómdisk geta spreytt sig í huganum. Þar fyrir utan er þátturinn bæði fróðlegur og afslapp- aður, stundum nánast eins og rannsóknarleiðangur – því leiðin að réttu svari getur verið býsna snúin og löng. Samvinna þeirra Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur og Gauts Garðars Gunnlaugs- sonar er til fyrirmyndar og þáttastjórnandinn Arndís Björk Ásgeirsdóttir er rétt mátulega þolinmóð til að hlustendur heima í stofu eigi möguleika á að standa sig. fbi@mbl.is Hvað er að heyra? MÆLT MEÐ Rannsóknarleiðangur um lendur tónlistar Mér þótti skrýtið hvað síldarstúlkan gamla var hrærð og jafnvel klökk þegar Haukur var settur á fóninn. Aldrei sagði hún mér þó sögur úr síldinni á Sigló, en þar söng Haukur og skemmti á vertíðum – ætli hann hafi ekki sjálfur kynnst indælu andvökunóttunum uppi í Hvanneyrarskál, sem hann söng um í Land- leguvalsinum. Svo kom að því að maður lærði að meta Hauk að hans miklu verðleikum. Bjössi á mjólkurbílnum, Ég er kominn heim, Kaupakon- an hans Gísla í Gröf – hann söng góð lög og söng þau frábærlega. Synd að hann skyldi ekki hafa samið fleiri sjálfur. Hann samdi sjálf- ur Ó borg, mín borg, og Simbi sjómaður, og gott ef hann samdi ekki líka Eldur í öskunni leynist. Þar kemur að mér að klökkna. Ég held að Haukur Morthens fari aldrei úr tísku og að hann verði söngvari allra kynslóða á Íslandi. Elskaði Haukur Morgunblaðið/Sverrir Ef einhver íslenskur söngvari hefur nokkurn tíma átt tilkall þess að kallast ástsæll, er það Haukur Morthens Þ að var einhvern tíma upp úr 1960 sem ég heyrði fyrst í honum. Man þó ekki eftir honum fyrr en ég fór að venja komur mínar í kjallaraherbergi á Víði- melnum þar sem Gróa ömmusystir bjó. Hún hafði verið verkakona og öflug síldarstúlka á árum áður. Herbergið andaði hverfandi tímum, beddi, skápur, brúnofið veggteppi sem hékk niður úr útskorinni hillu. Ég man ekki eftir öðru – nema plötuspilaranum. Meðan hún leyfði mér að stauta fram úr textanum á umslaginu, þar sem stóð Haukur Morthens og Erla Þorsteins, rjátlaði hún við spilarann og tengdi við trans- istortækið. Svo sáum við og hlustuðum: Viltu með mér vaka er blómin sofa, vina mín og ganga suðr’að tjörn. Þar í lautu eigum lágan kofa, lékum við þar okkur saman börn. Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi menningar Fríða Björk Ingvarsdóttir, fbi@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent Æ tli hafi verið gerð á því athugun hvernig sagt er frá skotárásum vestrænna ungmenna á samborgara sína í fjölmiðlum annarra „menningarheima“? Er hugsanlegt að þar sé morð- æðið sett í samhengi við „vestræn gildi“? Fjölmiðlar okkar hafa gert það að reglu fjalla um þessi blóðböð sem ráðgátur eða jaðarhegðun. Þá er horft fram hjá því að ofbeldisdýrkun, róttæk einstaklingshyggja og „náttúruval“ eru hornsteinarnir í siðviti margra Vesturlandabúa. Thomas Hobbes taldi stríð allra gegn öllum vera hið náttúrulega ástand og nýfrjálshyggjan boð- ar afnám siðferðilegrar ábyrgðar á náunganum. Þá eru ógleymdir kennimenn hins svokallaða „sjálfselska gens“ sem þurrkar út menningu og siðferði með vísindalegri hárnákvæmni. Pekka-Eric Auvinen, hinn 18 ára gamli finnski morðingi sem var á allra vörum í nóvember 2007, lýsti viðhorfum sínum á greinargóðan hátt í bréfi áður en hann lét til skarar skríða. Þar kom fram tiltrú hans á náttúruvali, samkeppni og einstaklingshyggju. Þetta manifestó fékk aldrei verðskuldaða athygli. Þess í stað var byrj- að á möntrunni um tölvuleiki, Marilyn Manson, límsniff og þess háttar. Hvernig væri að fjöl- miðlar byrjuðu að fjalla um fjöldamorð ung- menna sem einkenni á vestrænni menningu? Þannig lítur það allavega út utanfrá, hlýtur að vera. vidart@simnet.is ÞETTA HELST Eitt fórnarlambanna. Morð og menning Haukur Morthens Á sviðinu á Hótel Borg. Er hann ekki að syngja: „...ljóð ég kveða vil um þig“ ? Höfundur er heimspekingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.