Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2009 8 LesbókBÆKUR M argir rithöfundar hafa skrifað út frá hryðjuverkunum 11. september og af- raksturinn er misjafn. Bandaríski rithöf- undurinn John Updike, sem var flestum fremri í að skrá tíðarandann í bandarísku samfélagi, gerði atlögu að 11. september í bókinni The Terrorist, sem kom út haust- ið 2007. Þungamiðja sögunnar er Ah- med Mulloy Ashmawy, sonur egypsks skiptinema og bandarískr- ar konu af írskum uppruna. Hún gerist í gömlum iðnaðarbæ í New Jersey, sem nú er að grotna niður og hvítir íbúar hafa að miklu leyti vikið fyrir svörtum. Updike dregur miskunn- arlaust fram ófullkomleika sögupersón- anna og umhverfis þeirra. Það er því ekki að furða að Ahmed, klár strákur, sem gengur vel í skóla, skuli ósáttur við tilveru sína. Það nýtir sér herskár múslíma- klerkur, sem vill fylla líf söguhetjunnar nýjum til- gangi, elur á skömm hans og gefur fyrirheit um óspilltan heim. Updike notar skáldsöguna til að gagn- rýna stríðið gegn hryðjuverkum og enda- lausan hræðsluáróður um að þá og þegar megi búast við því að hryðjuverkamenn láti til skarar skríða. Inn í þetta blandar hann sálarstríði ungs manns, sem er að berjast við langanir sínar og kenndir með tilraunum til að hefja sig yfir aðstæður sínar, sem leiðir hann inn í heim hryðjuverkanna. Í niðurníddum heimi Updikes er hins vegar enginn málstaður, sem ástæða er til að taka alvarlega, hvorki bókstafstrúin né frelsið. Allt hefur látið á sjá og kald- hæðnin er aldrei langt undan. Þ etta fyrirbrigði sem ég er að lýsa verður alltaf til staðar. Í augna- blikinu eru það hryðjuverkamenn sem tilheyra svæði annarleikans [otherness], einnig bókstafstrúarmenn- irnir og þeir sem leita hælis sem flótta- menn. Við getum líka sagt að barnaníð- ingar séu á þessu svæði, allt eftir því hvað er „í tísku“ hverju sinni. Sem slíkur er annarleikinn því augljóslega mjög mik- ilvægt umfjöllunarefni. En þótt við lítum á viðfangsefnið og það sem skilið er undan og tilheyrir ann- arleikanum sem andstæður, þá má ekki gleyma því að þessir tveir þættir eiga einnig mikið sameiginlegt. Bandarísk bókstafstrú eins og sú sem Bush boðar er í grundvallaratriðum nánast alveg eins og bókstafstrú múslima. Það eru mjög djúp- stæðar samsvaranir á milli Bush og Osama bin Laden hvað snertir málefni á borð við kynhneigð og viðhorf til fjöl- skyldunnar. Að sjálfsögðu eiga þeir það svo sammerkt að hata alla sem eru frjáls- lyndir, það er varla til nokkur bókstafs- trúarmaður sem hatar frjálslyndi jafn- mikið og George Bush.“ Svið annarleikans Rithöfundurinn Hanif Kureishi hefur gert bókstafstrú að efnivið í verkum sínum. Í við- tali, sem Fríða Björk Ingvarsdóttir tók á bókmenntahátíð í Reykjavík í september 2003, kvaðst hann lít- inn mun sjá á banda- rískri bókstafstrú og bókstafstrú múslíma. Hanif Kureishi Einn gesta bók- menntahátíðar 2003. Morgunblaðið/Þorkell E ftir árásirnar í Bandaríkjunum 11. sept- ember 2001 eru hryðjuverk oftast tengd við íslam og múslíma. Rætur þeirrar hug- myndafræði, sem liggur að baki hryðjuverkum, er hins vegar að miklum hluta að finna í öðrum menningarheimi. Joseph Conrad fjallar í bókinni Under Western Eyes um byltingarástandið í Rússlandi á tímum keisarans. Bókin kom út 1911, sex árum fyrir rússnesku byltinguna. Þar segir frá ungum námsmanni, Raz- umov, sem fær skyndilega inn á gafl hjá sér skólabróður, sem hefur ráðið innanríkisráðherrann af dög- um. Engin uppreisn er í unga mann- inum, en atburðarásin hrifsar hann með sér og skyndilega er hann orðinn útsendari rússnesku lögreglunnar í ver- öld uppreisnarmanna í útlegð í Sviss. Hann kynnist óútreiknanlegum og miskunnarlausum forsprakka þeirra. Skiptast á svikráð og sekt- arkennd. Conrad lýsir hugsunarhætti uppreisn- armannanna og ástandinu í Rússlandi á þessum tíma. Bókin er spennandi af- lestrar og um leið ádeila á forræð- ishyggju. Í raun ber Conrad hvorki virð- ingu fyrir byltingarsinnunum, né kúgurum þeirra, varðhundum keis- arans. Þetta kemur fram í orðum, sem hann skrifaði um bókina eftir byltinguna, um „… þá skrýtnu sannfæringu að grundvallarbreyt- ing á hugarfari hljóti að fylgja hruni stofnana mannanna. Þetta fólk er ófært um að sjá að það eina, sem það getur kallað fram, er að skipt verður um nöfn“. Under Western Eyes | Joseph Conrad Það eina er að skipt er um nöfn H ryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. sept- ember 2001 höfðu svipuð áhrif á heimsbyggðina og 6. október 2009 á ís- lenskt efnahagslíf. Á einum degi átti sér stað allsherjar hugarfarsbreyting og Bandaríkjastjórn skipti um kúrs. Forsetinn, sem í kosningabaráttu sinni fann því allt til for- áttu að senda bandaríska hermenn til að berj- ast og gæta friðar í framandi löndum, tók upp stefnu fyrirbyggjandi árása. Í fyrstu virtist hin nýja stefna ætla að ganga upp. Skamma stund tók að koma valdhöfunum frá í Afganistan og Írak, en fljótlega fór að síga á ógæfuhliðina. Glundroðinn, sem George W. Bush varð valdur að í Pakistan, Afganistan og Mið-Asíu er um- fjöllunarefni bókarinnar Descent into Chaos eftir pakistanska blaðamanninn Ah- med Rashid. Enginn stendur Rashid á sporði í þekkingu á pólitík- inni á þessu svæði. Fyrri bækur hans tvær, Taliban, sem fjallar um það hvernig Talibanar náðu völdum í Afgan- istan, náin tengsl þeirra við pak- istönsk stjórnvöld og sérstaklega leyniþjónustuna þar í landi, og Ji- had, sem snýst um það hvernig herskáum íslamistum hefur vaxið fiskur um hrygg, gefa báðar frá- bæra innsýn í flókin stjórnmál þessa heimshluta. Rashid fylgist ekki með úr fjarlægð, hann lýsir heimsóknum til afganskra stríðsherra, sem eru blóðugir upp að öxlum, og kapphlaupi olíufyrirtækja um að gera samninga við talibana frá fyrstu hendi. Í Descent into Chaos fjallar hann um það hvernig Bandaríkjamenn hafa með afskiptum sínum skapað verra ástand en fyrir var. Þeir réðust inn í Afganistan og Írak án þess að und- irbúa sig, fáfróðir um siði og hefðir hjá fólkinu, sem þeir hugðust hjálpa. Ekki bætti úr skák að stór hluti hernámsins var í verktöku. Verktak- arnir sinntu verkefnum, sem herinn hafði áður á sinni könnu, rökuðu til sín fé, en þurftu ekki að standa neinum reikningsskil gerða sinna. Pyntingar eru sérstakur kapítuli, sem jók and- úðina á Bandaríkjamönnum. Bandaríkjamönnum hefur nú tekist að draga úr ofbeldinu í Írak, þótt pólitískum stöð- ugleika hafi hvergi nærri verið náð. Afganistan sat hins vegar á hakanum og afleiðingin varð sú að talibanar náðu vopnum sínum á ný. Hér- uð Pakistans, sem liggja að Afganistan, urðu að vígjum þeirra. Þar hafa stjórnvöld í Pakistan ekkert að segja og farið er eftir íslömskum lögum, sjaría. Nú ætlar Barack Obama, for- seti Bandaríkjanna að fjölga her- mönnum í Afganistan til að brjóta sókn talibana á bak aftur. Talibanar hafa meðal annars náð fótfestu með því að vernda bændur, sem rækta ópíum. Fyr- ir vikið er Afganistan nú orðið helsta ópíumræktarríki heims og flæða eiturlyf þaðan yfir Vesturlönd, en valda einnig usla víðar, þar á meðal í Íran þar sem heróínneysla er gríðarlegt vandamál. Ras- hid heldur því fram að ein meg- inástæðan fyrir því að uppbyggingin hefur mistekist í Afganistan og Pakistan sé sú að ekki var tekið á eiturlyfjavandanum. Rashid heldur því einnig fram að Banda- ríkjamenn hafi árið 2001 verið í einstakri stöðu til að hafa áhrif í átt til lýðræðis og aukins frelsis í Mið-Austurlöndum. Hann tekur Ús- bekistan sem dæmi um land þar sem tækifæri var til að koma á pólitískum og efnahagslegum umbótum, en Bandaríkjamenn hafi klúðrað því með stefnuleysi og gert að áhrifasvæði Kín- verja og Rússa: „Þegar upp er staðið bar Bush forseti ábyrgð á því að tapa Úsbekistan og Mið-Asíu þar sem Bandaríkjastjórn fylgdi ein- hliða stefnu, sem setti pyntingar fanga ofar þörfinni á að byggja upp þjóðir.“ Það segir sína sögu um afskipti Bandaríkja- manna af Afganistan hvað lífskjörin þar hafa tekið litlum breytingum. Á lista UNDP þar sem lífskjör eru reiknuð út frá menntun, lífs- klíkum og efnahagslegri frammistöðu voru Afganar enn í fimmta neðsta sæti sjö árum eft- ir innrásina. Þriðjungur Afgana hafði ekki nóg að bíta og brenna, 12% kvenna voru læsar og 32% karla. Lífslíkur eru aðeins 43 ár, næstum helmingi minni en á Íslandi. Í lok bókarinnar segir Rashid að hann hafi sýnt fram á að „íslömsk öfgahyggja muni blómstra í pólitísku tímarúmi, á hinum vanþró- uðustu, fátækustu og vanræktustu stöðum, en einnig á meðal fólks, sem er menntað og póli- tískt meðvitað. Mið-Asía er hin nýja framlína hjá al-Qaeda og sem stendur er enginn þar nógu skilvirkur til að veita andspyrnu.“ Raunir íbúa á því svæði, sem Rashid tekur fyrir í bók sinni, hófust ekki hinn örlagaríka 11. september og langt er í að þeim ljúki. Það er kominn tími til að þessu fólki verði gefin von og endi verði bundinn á misheppnuð afskipti mis- viturra ráðamanna stórveldanna. Bush sýndi hversu auðvelt er að klúðra málum. Ætli Obama sér að ná einhverjum árangri gerði hann margt vitlausara en að lesa bók Rashids. kbl@mbl.is Descent into Chaos | Ahmed Rashid Á vit glundroðans Reuters Endalaust ofbeldi Hryðjuverkamenn létu til skarar skríða í Pakistan 3. mars og réðust á landslið Sri Lanka í krikett í borginni Lahore. Á ramma úr myndbandi sjást vopnaðir menn skjóta í átt að lögreglubíl. BÆKUR VIKUNNAR KARL BLÖNDAL The Terrorist | John Updike Hugsjónir í niðurníddum heimi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.