Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 14.03.2009, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MARS 2009 Lesbók 11 Draugasetrið Stokkseyri Draugar fortíðar, hljóðleiðsögn og sýning Opið allar helgar frá kl. 13–18 Opnum fyrir hópa á öðrum tímum www.draugasetrid.is draugasetrid@draugasetrid.is sími 483-1600 895-0020 Icelandic Wonders Safn um álfa, tröll og norðurljós Opið allar helgar frá kl. 18.30–20.30 www.icelandicwonders.com info@icelandicwonders.com sími 483 1600, 895 0020. Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík og nýjasta margmiðlunartækni. Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni. Opið alla daga frá kl. 10-17. www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS Endurfundir - fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna! Þrælkun, þroski, þrá? Ljósmyndir af börnum við vinnu. Leiðsögn á íslensku alla sunnudaga kl. 14. Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is Söfnin í landinu Görðum, 300 Akranes Sími: 431 5566 / 431 1255 www.museum.is museum@museum.is Listasafn: Það sem gerðist, ný verk Huldu Vilhjálmsdóttur. Bátasafn: 100 bátalíkön Bíósalur: Verk úr safneign Opið virka daga 11.00-17.00, helgar 13.00-17.00 Ókeypis aðgangur reykjanesbaer.is/listasafn LISTASAFN ASÍ ÍVAR VALGARÐSSON Hringir, hámarksstærð Verk unnin með innanhúss- málningu, neon, myndbandi og áherslupenna Aðgangur ókeypis Opið 13-17 alla daga nema mánud. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is SKART OG SKIPULAG Danska skartgripaskrínið Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir Hveragerði – nýr miðbær 1. feb.- 19. apr. OPIÐ: fim. – sun. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS Hveragerði NOKKRIR VINIR 13.2.–3.5. 2009 DIETER ROTH - PUZZLE Heimildarmynd Hilmars Oddssonar um myndlistarmanninn Dieter Roth er sýnd í sal 2. LEIÐSÖGN Sun. kl. 14-15 í fylgd Dagnýjar Heiðdal listfræðings Hádegisleiðsögn þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 - 12.40 Safnbúð Listasafns Íslands - Bókamarkaður til 15. mars allt að 70% afsl. Opið kl. 11-17 alla daga, lokað mán. Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR. www.listasafn.is U ndanfarið hef ég verið að missa mig í því að hlusta og horfa á upptökur með flautuleik- urum á YouTube. Þar leynast til dæmis margar skemmtilegar upptökur, sem ég hef aldr- ei áður séð, af gömlum fyrirmyndum eins og Jean-Pierre Rampal og James Galway að sprella í gömlum sjónvarpsþáttum eða bara að spila eins og snillingar. Ég mæli með YouTube sem frábær- um vettvangi fyrir nemendur og aðra til að kynn- ast mismunandi flytjendum og tónverkum. Síðustu daga hef verið að hlusta á annan fiðlu- konsert Prokofievs með Isaac Stern í frábærri upptöku en Prokofiev er eitt af mínum uppáhaldstónskáldum. Sinfónían flutti þennan konsert í vikunni með Elfu Rún Kristinsdóttur og flytur Pétur og úlf- inn um næstu helgi. Það að hlusta á upptökur er mjög skemmtilegur hluti af undirbúningi fyrir vinnu mína sem flautuleikari í Sinfóníunni. Þar sem ég hef tónlist í eyrum og huga allan daginn finnst mér oft best að vera í þögninni í frítímanum. Ég nota tónlist ekki mikið sem bakgrunn nema létta tónlist til að fá réttu stemninguna í matarboð- inu. Svo er endurómur frá Evrópu, tónleikaupptökurnar, virka daga á Rás 1 kl. 19 partur af heimilislífinu. Mér finnst nauðsynlegt að láta hressa tónlist taka völdin þegar ég er að þrífa, úti að skokka með hundinn eða að puða í ræktinni. Þá verður oft fyrir valinu sjóðheit amerísk danstónlist eins og Lady GaGa eða André 3000. Einu sinni, þegar ég var komin í tímaþröng, reyndi ég að slá tvær flugur í einu höggi og hlustaði á píanókonsert eftir Liszt á hlaupa- bretti – en ég mæli ekki með því. HLUSTARINN | Áshildur Haraldsdóttir Þar leynast til dæmis marg- ar skemmtilegar upptökur, sem ég hef aldrei áður séð, af gömlum fyrirmyndum eins og Jean-Pierre Rampal og James Galway Höfundur er flautuleikari É g er með tvær bækur í takinu eins og er og bera báðar, merkilegt nokk, vindinn í nafni sínu; La Barcelona del viento (Barcelona vindsins) og Vientos de Cuaresma (Vindar á páskaföstu). Vinir mínir Kristjana og Baltasar Samper færðu mér Barcelona vindsins um helgina. Ég þýddi bók- ina Skuggi vindsins eftir Carlos Ru- iz Zafón fyrir nokkrum árum og þau töldu rétt að þýð- andinn fengi að lesa þessa bók. Hún er bráðskemmtileg leiðsögn innfæddra höfunda um Barcelona og ekki síst þá staði hennar sem koma við sögu í Skugga vindsins, sem sannarlega má kallast óð- ur til þessarar höfuðborgar Katalóníumanna. Vindar á páskaföstu er eftir kúbanska höfundinn Leonardo Pad- ura Fuentes. Hann hefur lagt stund á margvísleg skrif, meðal annars um salsatónlist, en er þekktastur fyrir Havanakvartettinn; fjórar bækur um lögreglumanninn Mario Conde, sem gerast allar í Havana árið 1989. Ég datt niður á þá fyrstu á Heathrowflugvelli, fann þá næstu á Borgarbókasafninu og lét það svo eftir mér nú í kreppunni (ekki láta baslið smækka sig!) að panta hinar tvær. Og þær komu s.l. mánudag og góðar stund- ir í vændum því Havana er lifandi komin í lýsingum hans; sólin, kynþokkinn, spillingin, pólitíkin, rommið og músíkin. Vindar á páskaföstu er eftir kúb- anska höfundinn Leonardo Padura Fuentes. Hann hefur lagt stund á margvísleg skrif, meðal annars um salsatónlist, en er þekktastur fyrir Havanakvartettinn. LESARINN | Tómas R. Einarsson Höfundur er tónlistarmaður og þýðandi É g hef verið að horfa á ís- lensku sjónvarpstöðvarnar undanfarið í nýja „HD- ready“ flatskjánum mínum og velti fyrir mér afhverju mynd- gæðin úr honum eru ekki betri en raun ber vitni. Myndgæðin úr gamla túbusjónvarpinu eru meira að segja flottari. Hver sjónvarpsþátturinn af öðrum er pixlaður og óskýr í flatskjánum. Ég hef samt prófað hin ýmsu kerfi. ADSL, breiðbandið, ljósleiðara og hvað þetta heitir allt saman. Það virðist engu máli skipta, myndgæðin eru alltaf hálf döpur. Einhver veitufyrirtækjanna auglýsa engu að síður „bestu mögulegu myndgæði.“ Hvað þýðir það? Bestu mögulegu myndgæði í heimi? Kannski eru þetta bara bestu mögulegu myndgæði sem þau geta boðið uppá? Ætti þá ekki ísbúðin að tala um „besta mögulega“ ísinn? Hjá vini mínum, sem á alveg eins flatskjá, horfði ég svo á útsendingar frá erlendum sjónvarps- stöðvum. Þetta var nákvæmlega sama efni og ég hafði áður séð hjá þeim innlendu. Þá fyrst sá ég ástæðu til að tala um “bestu mögulegu myndgæði.“ Því myndgæðin voru þvílík að maður gat allt eins verið á staðnum. Því spyr ég: Hvernig væri að bjóða okkur íslenskt efni í þessum gæðum? Við eigum jú flest „HD-ready“ flatskjáinn sem við vorum plötuð til að kaupa á Visa raðgreiðslum. En þangað til þetta verður í boði horfi ég bara á gamla túbusjónvarpið. GLÁPARINN | Sævar Guðmundsson Því myndgæðin voru þvílík að mað- ur gat allt eins verið á staðnum. Því spyr ég: Hvernig væri að bjóða okk- ur íslenskt efni í þessum gæðum? Höfundur er kvikmyndaleikstjóri

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.