Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.2009, Page 1
„Þú getur ekki verið trúr Shakespeare.“ Svo mælir Benedict Andrews leikstjóri sem hefur hleypt
nýju blóði í leikhúsið í Sydney. Nýjasta sýning hans, War of the Roses, er sjö klukkutíma sýning sem
byggist á öllum sagnfræðiverkum Williams Shakespeare og hefur sú sýning gengið fyrir fullu húsi í
Ástralíu í marga mánuði. Uppsetningin skartar leikkonunni Cate Blanchett sem hér sést. »6-7
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
STOFNUÐ 1925
19. TBL. 85. ÁRGANGUR
LESBÓK
Sagnakonan Hulda Mynd af íslensku
þjóðinni eins og hún leggur sig. »8
Radiohead:
Óseljanlegur
andskoti3
4Myndir vikunnar:Sérstakur ráðgjafi íblótsyrðum ráðinn
11Lesarinn:Fluglæs á tilfinningar sínar
S
töðugt streymi erlendra listamanna úr
öllum greinum undanfarin ár hefur
opnað margvíslegar gáttir í íslensku
menningarlífi – eiginlegar og óeig-
inlegar. Í vefútgáfu nýjasta tölublaðs The Art
Newspaper (sem hefur gríðarlega útbreiðslu
meðal þeirra sem starfa í listum um heim allan)
sem kom út sl. miðvikudag, er ítarleg grein um
ástand myndlistarheimsins á Íslandi í kjölfar
kreppunnar. Niðurstaða greinarhöfundar er sú
að hér eigi listamenn í erfiðleikum, fé stuðn-
ingsaðila meðal fyrirtækja og einstaklinga sé að
verða uppurið og opinber söfn sjái fram á um-
talsverðan niðurskurð. Ein afleiðing þeirra
þrenginga sem þarna er lýst er sú að mögu-
leikar á alþjóðlegu samstarfi fara minnkandi;
einangrun vofir aftur yfir eftir mikið átak í þeim
efnum á tiltölulega stuttum tíma.
Sú tilhneiging sem einkennir nýhafna
Listahátíð í ár, þar sem mjög ber á innlendum
listamönnum, er reyndar eins og töluð inn í þá
tíma sem við nú lifum. Íslenskir listamenn hafa
verið að kveðja sér hljóðs með margvíslegum
hætti undanfarin ár og fyllilega tímabært að
þeir stígi fram á sjónarsviðið með jafn sterkum
hætti og Listahátíð býður þeim nú. En því má
ekki gleyma að ein forsenda þess hversu vel ís-
lenskum listamönnum hefur gengið undanfarið
er sú að þeir hafa haft tækifæri til að eiga verð-
ugan orðastað við umheiminn. Heimavöllur
þeirra hefur ekki einungis verið afmarkaður við
landsteinana – þeir hafa verið virkir þátttak-
endur í stærra samhengi en því sem fyrirfinnst
hér á landi. Fyrir vikið er staða þeirra sterk og
þeir samkeppnishæfir hvar sem þeir bera niður
heima og að heiman.
Ef landið einangrast í menningarlegu tilliti til
langframa mun þess fljótt sjá stað í afturför. Og
íslensk menning mun líða að sama skapi.
fbi@mbl.is
Einangrun er afturför
ORÐANNA HLJÓÐAN
FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR
Listamenn eiga í erf-
iðleikum, fé stuðning-
aðila er uppurið og söfn
sjá fram á niðurskurð.