Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.2009, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.2009, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009 Lesbók 11 Draugasetrið Stokkseyri Draugar fortíðar, hljóðleiðsögn og sýning Opið allar helgar frá kl. 14-18 Opnum fyrir hópa á öðrum tímum www.draugasetrid.is draugasetrid@draugasetrid.is sími 483-1600 895-0020 Icelandic Wonders Safn um álfa, tröll og norðurljós Opið allar helgar frá kl. 14-18 www.icelandicwonders.com info@icelandicwonders.com sími 483 1600, 895 0020. Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík og nýjasta margmiðlunartækni. Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni. Opið alla daga frá kl. 10-17. www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS Endurfundir – fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna! Þrælkun, þroski, þrá? Ljósmyndir af börnum við vinnu. Opið alla daga kl. 10-17. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is Söfnin í landinu Görðum, 300 Akranes Sími: 431 5566 / 431 1255 www.museum.is museum@museum.is Listasafn: Í húsi sársaukans - Olga Bergmann Byggðasafn: Völlurinn Bátasafn: 100 bátalíkön Bíósalur: Verk úr safnkosti Opið virka daga 11.00-17.00, helgar 13.00-17.00 Ókeypis aðgangur reykjanesbaer.is/listasafn LISTASAFN ASÍ Listamannaspjall sunnudaginn 17. maí kl. 15:00 Þóra Sigurðardóttir Teikningar, grafík, videó og texti. Sólrún Sumarliðadóttir Potthljóð í Gryfju. Opið 13-17 alla daga nema mánud. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is 16. maí - 21. júní 2009 Vættir - Jónína Guðnadóttir Madame Lemonique & Madame Lemonborough - Guðný Guðmundsdóttir Opið 11-17, fimmtudaga 11-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis LEIFTUR á stund hættunnar 2. maí – 28. júní Sunnudag 17. maí kl. 15:00 Leiðsögn með Pétri Thomsen Opið alla daga kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS Hveragerði HRAFNKELL SIGURÐSSON / KRISTJÁN GUÐMUNDSSON 15.5.-28.6. 2009 Sýning Listasafns Íslands á Listahátíð í Reykjavík 2009. LEIÐSÖGN sunnudag kl. 14 í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra ÞÓRÐUR BEN SVEINSSON Borg náttúrunnar, 1981-2009 og fleiri verk til sýnis á 2. hæð 18.4.-28.6. 2009 Hádegisleiðsögn þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10 - 12.40 Opið kl. 11-17 alla daga, lokað mánudaga Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Sýningar opnar alla daga: Handritin - sýning á þjóðargersemum, saga þeirra og hlutverk. ÍSLAND::KVIKMYNDIR, 100 íslenskar kvikmyndir til að horfa á. Að spyrja Náttúruna - dýrasafn og aðrir munir í eigu Náttúrugripasafnsins. Þjóðskjalasafn Íslands - 90 ár í Safnahúsi. Merk skjöl úr sögu þjóðarinnar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Setrin í landinu F yrir nokkru sá ég kvikmynd sem hreyfði svo við mér að ég fór rakleitt úr bíóinu og keypti bókina. And when did you last see your fat- her? er uppgjör Bla- kes Morrisons við föður sinn sem var jafnheillandi og hann gat verið óþol- andi. Það var samt ekki lýsingin á litrík- um föðurnum sem snart mig mest, heldur innsæi og einurð Morrisons þeg- ar hann fjallar um tilfinningar sonar í garð föður síns. Mér fannst svo frísk- andi að fá innsýn í hugarheim karl- manns sem er fluglæs á tilfinningar sínar og kann að koma þeim í orð að ég leitaði uppi aðra bók eftir Morrison, As if. Sú er af öðrum toga en skrifuð af sama hugrekki og sjaldséðri mannúð. Hún hverfist um réttarhöld yfir tveimur 10 ára drengjum sem kvöldu og drápu James Bulger tveggja ára gamlan í Eng- landi árið 1993. Á þeim tíma hrópuðu margir á hefnd, drengirnir væru ómennsk skrímsli sem ættu skilið sömu örlög og fórnarlamb þeirra, og enn í dag safnar fólk undirskriftum á netinu til að ítreka þá kröfu. En Morrison er knúinn áfram af einni spurningu: Hvers vegna? Til að svara henni fylgist hann með því sem fram fer í dómsal en hann gerir meira; hann mátar sig við hverja ein- ustu manneskju sem á einhvern hátt tengdist málinu, setur sig í spor henn- ar, finnur hliðstæður úr eigin lífi og hlíf- ir sér hvergi. Niðurstaða hans er að hægt sé að skilja hvers vegna fór sem fór. Jafnframt færir hann sannfærandi rök fyrir því að samfélag sem snýr blinda auganu að fátækt, ofbeldi og vanrækslu barna, kynslóð fram af kyn- slóð, kalli beinlínis yfir sig harmleiki á borð við þennan. Lesarinn | Sæunn Kjartansdóttir Mér fannst svo frískandi að fá innsýn í hugarheim karlmanns sem er fluglæs á tilfinningar sínar og kann að koma þeim í orð að ég leitaði uppi aðra bók eftir Morrison. Höfundur er sálgreinir. O rðið hlustari finnst ekki í orðabók Árna Bö. Þar má hins veg- ar finna hlustanda. Hann er sá sem hlustar. Og hver hef- ur ekki hlustað? Við, sem komin erum á miðjan aldur, geymum innra með okkur leiktjöld æsku okkar. Við eigum sameiginlegan arf; við ólumst öll upp við það sama. Hljóðmyndir sem dregn- ar voru upp í húsi við Skúlagötuna og ómuðu um landið frá morgni til kvölds. Fólkið sem starfaði á útvarpinu sat líka við eldhúsborðið heima hjá okkur og hélt okkur félagsskap; hafði ofan af fyrir íslenskri þjóð. Við hlustuðum á útvarpið. Veðurfregnir, framhalds- sögur og fimmtudagsleikrit. Stundum djass á fóninum á milli atriða. Þó ekki gerður neinn meiri háttar grein- armunur á Ellington og Ingibjörgu Þor- bergs, Count Basie eða Baldri og Konna. Íslenskir bændur mjólkuðu morgunmjaltir við Mozart, Mendels- sohn og Mulligan. Allt jafngott. En ef hlustari er til, þá er ég hann. Ég hef hlustun að atvinnu. Í því felst starf dagskrárgerðarmannsins. Að hlusta. Til að velja lögin sem hljóma í út- varpinu árið 2009 þarf fyrst að hlusta. Afrita lakkplötur, vinda gömul seg- ulbönd, leita að minnst rispuðu vín- ylplötunum, yfirfæra nýjustu geisla- diskana inn í stafræna útvarpskerfið. Og hlusta. Það er trúnaðarstarf að vera ábyrgur fyrir leiktjöldum nú- tímans. Sem „hlustarinn“ hefði ég getað far- ið í geisladiskastaflana sem spretta um alla skrifstofuna mína, en í staðinn fór ég að hlusta á þetta útvarp sem alltaf ómar innra með mér. Íslenskir bændur mjólkuðu morgunmjaltir við Mozart, Mendelssohn og Mulligan. Allt jafngott. Hlustarinn | Lana Kolbrún Eddudóttir Höfundur er dagskrárgerðarmaður

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.