Morgunblaðið - 04.01.2009, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 B 3
Framkvæmdastjóri Eignastýringar
Nýja Kaupþings banka hf.
Nýi Kaupþing banki leitar að framúrskarandi einstaklingi til að gegna starfi
framkvæmdastjóra Eignastýringar. Framkvæmdastjóri Eignastýringar er
ábyrgur gagnvart bankastjóra. Við leitum að reynslumiklum einstaklingi
sem hefur metnað til að ná árangri.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Dagleg stjórnun sviðsins og ábyrgð á rekstri þess
• Ábyrgð á rekstri sjóða, eignastýringu fagfjárfesta, einkabankaþjónustu
og ráðgjöf til einstaklinga
Hæfniskröfur:
• Próf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærileg menntun
• Mikil stjórnunarreynsla
• Reynsla af störfum hjá fjármálafyrirtækjum æskileg
• Frumkvæði í starfi
• Hæfni til nákvæmra og sjálfstæðra vinnubragða
• Miklir samskiptahæfileikar
• Hæfni og vilji til að vinna að uppbyggingu bankans
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2009.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Fullum trúnaði er heitið.
Nánari upplýsingar veitir Svali H. Björgvinsson, starfsmannastjóri,
sími 444 6383, netfang: svali.bjorgvinsson@kaupthing.com.
Umsækjendur sæki um starfið á vefsíðu bankans, www.kaupthing.is.
Starfskona
Samtök um kvennaathvarf leita að starfskonu í
vaktavinnu. Um er að ræða fjölbreytt og krefj-
andi starf sem felst í því að styðja konur og
börn sem leita til Kvennaathvarfsins og taka
þátt í daglegu starfi athvarfsins. Leitað er að
starfskonu sem er að lágmarki 25 ára, býr yfir
nærgætni, hæfileika til að vinna sjálfstætt og
skipulega, góðri tungumálakunnáttu og getu til
að ráða við krefjandi aðstæður í mannlegum
samskiptum. Í Kvennaathvarfinu er lögð
áhersla á heimilislegt og notalegt andrúmsloft.
Upplýsingar um starfsemina er að finna á
heimasíðunni www.kvennaathvarf.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Guð-
mundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um
kvennaathvarf í síma 561 3740 eða í netfangi
sigthrudur@kvennaathvarf.is.
Umsóknir skulu berast til Samtaka um kvenna-
athvarf í pósthólf 1486, 121 Reykjavík eða í net-
fang framkvæmdastýru ekki seinna en
12. janúar nk.