Morgunblaðið - 06.01.2009, Page 1

Morgunblaðið - 06.01.2009, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 2009 íþróttir Safna dósum Meistaraflokksfólk í körfuknattleik í Grindavík tekur þátt í dósasöfnun fyrir félagið. Fyrirliði karlaliðsins segir að bæjarbúar taki sér og liðsfélögum sínum afar vel 2 Íþróttir mbl.is Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is FRANSKA hand- knattleiksliðið Nantes hefur sýnt áhuga á að fá Andra Berg Haraldsson, leik- stjórnanda úr Fram, í sínar raðir fyrir næsta tímabil. Andri staðfesti við Morgunblaðið í gær að hann vissi af fyrirspurnum frá Nantes og kvaðst mundu skoða það vel ef í ljós kæmi að um alvöru væri að ræða hjá Frökkunum. „Það er engin spurning að ég mun skoða þá möguleika sem kunna að opnast erlendis. Það er hins vegar að mörgu að hyggja, ég er í góðri vinnu hér heima og svo er stórmál að rífa upp fjölskylduna og setjast að erlendis,“ sagði Andri, sem er 25 ára gamall og er annar markahæsti leikmaður Fram í úr- valsdeildinni í vetur með 58 mörk í 11 leikjum. Hann er samningsbundinn Fram til vorsins 2011 og Frakkarnir þyrftu því að ná samkomulagi við Safamýrarfélagið um kaupverð ef til kæmi. Nantes er nýliði í frönsku 1. deildinni, efstu deildinni þar í landi. Þegar keppnin er hálfnuð er liðið í 12. sæti af fjórtán liðum og á því í harðri baráttu fyrir áframhaldandi veru í hópi þeirra bestu. Nantes vann góðan útisigur á París Hand- ball, 27:25, í síðustu umferð ársins 2008 og komst með því úr fallsæti. Nantes vill fá Andra Berg frá Fram Andri Berg Haraldsson DANINN Lars Henriksen, sem er 4. dan, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Ka- ratefélaginu Þórshamri og mun hann sjá um þjálfun bæði unglinga og full- orðinsflokka auk keppnisliðs Þórshamars á komandi misseri. Lars heimsótti Þórshamar í tvær vikur í september 2008 og vakti mikla lukku meðal félagsmanna. Lars hefur verið í fremstu röð í Danmörku undanfarin ár, bæði í kata og kumite. Hann varð Danmerkurmeistari í kata á síðasta ári, varð í öðru sæti í sínum þyngdarflokki í kumite á sama móti og er nýkominn frá Jap- an þar sem hann keppti fyrir hönd Dana í kata á nýafstöðnu heims- meistaramóti í karate. skuli@mbl.is Dani til Þórshamars Lars Henriksen Reuters Eiginhandaráritun Það getur oft verið mikið að gera hjá frægu íþróttafólki við að gefa eiginhandaráritanir og hér er það bandaríski tennisleikarinn Andy Roddick sem gefur tökumanni hjá sjónvarpsstöð í Qatar eiginhandaráritun á linsu vélar hans. Hann er kominn áfram á ATP Opna Quatar-mótinu. Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „ÞAÐ hefði óneit- anlega verið gam- an að vera á La Manga á Spáni núna,“ sagði kylf- ingurinn Ragn- hildur Sigurð- ardóttir úr GR í gær en úrtöku- mót fyrir Evr- ópumótaröð kvenna í golfi hefst á La Manga á morgun. Þar hafði Ragnhildur hugsað sér að vera, en ýmsar ástæður urðu til þess að hún verður ekki meðal keppenda. „Það var vissulega ætlunin að keppa á úrtökumótunum, en af því varð ekki núna af ýmsum ástæðum. Það eru viðsjárverðir tímar og mað- ur veit ekki hvernig hlutirnir verða. Ég var búin að fá styrk hjá Orku- veitunni og fékk að geyma hann þannig að ef ég fer á úrtökumótin á næsta ári þá bíður styrkurinn frá þeim eftir mér, nú en ef ég fer ekki þá fær Orkuveitan bara styrkinn sinn til baka,“ sagði Ragnhildur í samtali við Morgunblaðið í gær. Hún sagði ýmsar ástæður vera fyrir því að hún ákvað að sleppa því að reyna við Evrópumótaröðina í ár. Dýrara og meiri óvissa „Það var ekki bara að allt er orðið miklu dýrara en áður, heldur líka og kannski ekki síður óvissan um fram- haldið. Ég er að reyna að vera skyn- söm því það hefði til dæmis ekki ver- ið gaman að fara á úrtökumótin, ganga vel þar og komast inn á móta- röðina, og geta síðan ekki fylgt því eftir vegna efnahagsástandsins,“ sagði Ragnhildur sem var að leggja lokahöndina á að flytja innan Mos- fellsbæjar. „Þetta er eiginlega besti tíminn og kannski eini tíminn fyrir golfkennara að flytja, þó svo að það hafi verið fínt veður síðustu daga til að spila golf,“ segir Ragnhildur. Hún segir alls ekki vera að hætta í golfi og ekkert á leiðinni að leggja kylfunum. „Nei, nei, þeim verður aldrei lagt. Það er alveg á tæru. Ég held svei mér þá að fyrr frjósi í neðra en að maður leggi kylfunum! Þetta er svo skemmtilegt að það er ekki hægt að hætta í þessu.“ Ung og finnst gaman að leika mér Ragnhildur segist stefna áfram að því að fara í úrtökumótin á næsta ári. „Já, já, stefnan er sett á úrtöku- mótin á næsta ári. Ég er ung og finnst gaman að leika mér. Ef eitt- hvað er þá verða tækifærin fleiri hjá manni eftir því sem maður verður eldri og börnin stækka,“ segir hún. Það er enginn uppgjafartónn í Ragnhildi þó svo hún hefði viljað vera meðal keppenda á Spáni næstu dagana. „Ég vann ekki mikið síðari hluta sumars þar sem ég var þá að æfa mig enda ætlaði ég að fara á úr- tökumótin. En maður setur bara stefnuna á næsta ár í staðinn og von- ar að aðstæður verði þá hagstæðari en þær eru núna,“ sagði Ragnhildur. Mótið sem hefst á La Manga á morgun er fyrra stig úrtökumótsins en það síðara verður á sama stað í næstu viku. Keppendur eru 133 og berjast þeir um 30 laus sæti á móta- röðinni á næsta tímabili. Enginn ís- lenskur kylfingur er meðal keppenda að þessu sinni. Ragnhildur hætti við og Ólöf María Jónsdóttir úr Keili, sem náði ekki að halda keppnisrétti sínum á mótaröðinni, ætlar að gefa keppnisgolfinu frí á þessu ári. Hún hefði annars getað farið beint inn á annað stig úrtökumótsins. „Reyni að vera skynsöm“  Ragnhildur Sigurðardóttir hætti við úrtökumótið í golfi  Óvissa um fjárhags- legt framhald réð úrslitum  Ætlar að reyna sig á úrtökumótunum síðar Ragnhildur Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.