Morgunblaðið - 06.02.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 06.02.2009, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2009 2 Bílar BETRA START Rafgeymar í allar gerðir farartækja mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík, Selfossi og Barðanum Skútuvogi VEGNA tapreksturs og slæms gengis í Dakar-rallinu nýafstaðna hefur japanski bílaframleiðandinn Mitsubishi ákveðið að hætta allri keppni í svonefndu utanvegaralli. Mitsubishi hefur keppt í Dakar- rallinu undanfarin 26 ár og hrósað sigri 12 sinnum, þar af sjö sinnum í röð. Í ár varð lið fyrirtækisins í aðeins tíunda sæti sem olli jap- anska bílsmiðnum miklum von- brigðum. Það ásamt samdrætti í sölu nýrra bíla síðustu misserin segir fyrirtækið vera ástæður þess að hætt verður keppni í utanvega- akstri um ótiltekinn tíma. Það hef- ur orðið að draga saman fram- leiðslu í Japan vegna efnahagskreppunnar og bílasala þess hefur verið á stöðugri nið- urleið frá því í september 2007. Velgengni Mitsubishi í Dak- arrallinu og HM í ralli hefur átt sinn þátt í að auka tiltrú á bíla þess. Ekki síst á Mitsubishi Lancer Evo og Shogun. Allt bendir til að tap Mitsubishi Motors á rekstrarárinu, sem lýkur í mars, muni nema um 60 milljörðum jena. Er það fyrsta tap félagsins í þrjú ár og skýrist af samdrætti í sölu og styrkingu jensins. Tap Mitsubishi nam 17,6 milljörðum jena á þriðja ársfjórðungi rekstrarársins, októ- ber-desember, en á sama tíma árið áður var hagnaður þess 27,3 millj- arðar jena. Meðal mótvæg- isaðgerða sem Mitsubishi grípur til er að lækka laun stjórnenda um 40%. Mitsubishi hættir utanvegaralli Utanvegar Mitsubishi hefur tólf sinnum hrósað sigri í Dakar-rallinu. Sebastien Loeb hóf atlögu að sjötta heimsmeistaratitlinum í ralli í röð með sigri í fyrsta móti ársins, í Írlandi um síðustu helgi. Citroën tók væna forystu í keppni liða þar sem liðsfélagi Loeb, Spánverjinn Dani Sordo, varð annar. Næsta rall fer fram í Noregi og þar eru bílar Ford taldir standa betur að vígi. Loeb byrjaði rallið ekki vel, valdi röng dekk undir bíl sinn og tapaði 42 sekúndum á fyrstu sérleið. Finninn Jari-Matti Latvala á Ford vann þá leið en laskaði bílinn það mikið á þeirri næstu að hann varð að hætta keppni. Þriðji í írska rall- inu að lokum varð liðsfélagi hans Mikko Hirvonen. Enn einn Finn- inn, Urmo Aava hjá Stobart Ford, tók óvænt forystu á annarri leið- inni, enda hafði hann valið grófustu dekkin á fyrstu leiðunum eins og Latvala. Loeb dró Aava fljótt uppi er hann komst á heppilegri dekk og eftir það var ekki að sökum að spyrja, hann vann hverja sérleiðina af annarri og jók forskotið jafnt og þétt. Liðsstjóri Citroën, Olivier Quesnel, segir sigur Loeb mik- ilvægan vegna fækkunar móta á malbiki í ár. Loeb hefur verið ósigrandi á malbiki frá því Marcus Grönholm lagði hann að velli í Mónakó í jan- úar 2006, eða í þrjú ár. Í ár hafa mótin í Mónakó, Þýskalandi og Korsíku verið felld út en í þeim hefur eingöngu verið ekið á mal- biki. Quesnel segir mikilvægt fyrir Citroën að nýta malbiksröllin tvö á mótaskránni sem best. Mistök í þeim gætu reynst dýrkeypt í bæði keppni ökuþóra og bílsmiða. Því hafi drottnun Loeb og Sordo í Ír- landi verið ánægjuleg. Búist er við að keppnin í Noregi eftir viku fari fram á snævi þöktum brautum. Síðasta snjórallið sem Loeb vann var sænska rallið árið 2004. Reuters Ökuþór Sebastien Loeb (hægri) hefur átt mikilli velgengi að fagna. Loeb byrjar titilvörnina með sigri Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Vandi bílaframleiðenda vegna fjár- málakreppu á heimsvísu er síst að lagast. Þannig áætlar Martin Win- terkorn, forstjóri Volkswagen, að fjórðungs samdráttur hafi orðið í bílasölu í janúar frá því í sama mán- uði í fyrra. Samdrátturinn er misjafn eftir framleiðendum en var t.a.m. 42,1% hjá Ford. Fækkunin var ekki eins mikil hjá VW, eða 15%, en vegna versnandi af- komu hefur verið hrundið í fram- kvæmd aðgerðum til að lækka kostn- að um á annað hundrað milljónir evra. Meðal annars verða verksmiðj- ur VW og Porsche lokaðar 19 dögum lengur fram að sumarhléi en áður var ákveðið. Bílasala Porsche dróst saman um 27% á fyrri helmingi rekstrarársins sem lauk um nýliðin mánaðamót. Á heimsvísu varð sölusamdráttur 18% í desember og er því hlutfalls- lega meiri í nýliðnum janúar. Grein- ingarfyrirtækið J.D. Power áætlar að heildar samdráttur í bílasölu árið 2009 verði 11% en fulltrúi þess segir óvissuþætti marga er gætu fremur átt eftir að verða bílsmiðum í óhag. Frakkar styðja íhlutasmiði Af þessum sökum er búist við að bílaframleiðendur og partasmiðir eigi eftir að sækja enn harðar á stjórnvöld um fjárhagslega fyrir- greiðslu. Franska stjórnin boðaði í vikunni að krefjast þess í skiptum fyrir fjárhagsaðstoð, að Peugeot, Citroën og Renault beini kaupum á tilteknu magni íhluta og annarri þjónustu til franskra fyrirtækja. Þrátt fyrir aðgerðir til að örva bílasölu auk annars stuðnings við bílaframleiðendur drógust nýskrán- ingar saman um 41,6% á Spáni í jan- úar miðað við sama mánuð í fyrra. Í Frakklandi var samdrátturinn 7,9%. Þó hlutfallslega meiri hjá frönsku bílsmiðunum stóru, eða 11,2% hjá Peugeot-Citroen og 20,9% hjá Re- nault. Frjálst fall í Bandaríkjunum Og í Bandaríkjunum var sölusam- drætti líkt við frjálst fall í janúar, en í heildina nam hann 37%. Auk 42,1% samdráttar hjá Ford, sem að framan segir, dróst fólksbílasalan saman um 66% hjá Chrysler, um 49% hjá Gene- ral Motors og 30% hjá bæði Toyota og Nissan. Ástandið er skýrt með því að bandarískir neytendur haldi að sér höndum um flest útgjöld af ótta við að halda ekki atvinnu sinni í óvissu efnahagsástandi. Kreppa bílaframleiðenda dýpkar Reuters Fall Í Bandaríkjunum var sölusamdrætti líkt við frjáls fall í janúar, en í heildina nam hann 37% BRM var stofnað árið 1948 og á sér bæði frækna sögu í kappakstri og líklega eina flóknustu kappaksturs- vél sem smíðuð hefur verið, hina 16 strokka, þriggja lítra vél sem knúði BRM P38 þegar Jackie Stewart var upp á sitt besta. Vélin sú var í rauninni tvær átta strokka boxer- vélar sem settar voru saman og var hún gríðarlega flókin, algjör lista- smíði og langt á undan sinni sam- tíð. Vélin var notuð um nokkurt skeið með ágætis árangri þó að Jackie Stewart hafi talið vélina gagnlegri sem akkeri fyrir skip en vél í kappakstursbíl. Nick Mason, trommari Pink Floyd, hefur hins- vegar haft meiri trú á bílnum því hann hefur verið iðinn við að kynna sitt eigið eintak fyrir bílaáhugafólki um langt skeið. BRM er sem sagt fyrirtæki sem fer ótroðnar slóðir og nú hefur það fengist staðfest að BRM mun aftur keppa í brekkukappakstri (Hill Climb) á næsta ári með afar sér- stökum aflgjafa. Um er að ræða rafmagnsbíl sem mun verða knúin fjórum rafmagns- mótorum sem verða staðsettir inni í felgum bílsins og telur BRM að með þessu fyrirkomulagi verði hægt að smíða bíl með afkastagetu á við 700 hestafla kappakstursbíl. Vélin var þróuð í Oxford-háskól- anum og er sögð hafa 97% orkunýt- ingu, mikið tog og litla þyngd. Hún er því augljóslega ákjósanleg í kappakstursbíl og svo er bara að vona að bíllinn verði ekki eins plag- aður af tæknilegum vandamálum og hinn sextán strokka BRM var þrátt fyrir að vera álíka langt á undan sinni samtíð. British Racing Motors gengur aftur Flókið Síðasta frækna keppnisvél BRM var 16 strokka vél samsett úr tveimur 8 strokka boxer vélum og fékk hún því bókstafinn H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.