Morgunblaðið - 06.02.2009, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2009
Bílasmáauglýsingar
Bílar til sölu
TIL SÖLU FORD ESCAPE XLS ÁRG. 2006
Mjög vel með farinn, sjálfskiptur,
dráttarkrókur, ekkert áhvílandi, skipti yfir í
ódýrari. Sími 557-3587.
TILBOÐ 990Þ
FORD RANGER DÍSEL 4X4, Árg. 2003,
ekinn 169 þ.km, mjög góð þjónusta. DÍSEL,
5 gírar. Ásett verð 1.580 þ. TILBOÐ 990 Þ.
Til sýnis og sölu hjá Bílalíf, Kletthálsi 2,
S:562-1717. Sjá fleiri myndir á
www.bilalif.is. Rnr.112614
TILBOÐ 1.890Þ.
FORD F150 LARIAT 5.4.
Árg. 2004, ekinn 92 þ.km, Sjálfsk. leður,
lúga, pallhús, vel útbúinn bíll. Ásett verð
2.580þ. Tilboð 1.890þ. Til sýnis og sölu hjá
Bílalíf, Kletthálsi 2, S:562-1717. Sjá fleiri
myndir á www.bilalif.is Rnr. 241207
NISSAN PATROL ÁRG. '00
ssk. leður. sóllúga, 33”dekk, 7 manna.
Auðveld kaup 100% lán S.693 8587.
JEEP WRANGLER 4.0.
Árg. 2005, ekinn aðeins 14 þ.km, bensín, 6
gírar. Verð aðeins 1.990Þ. Til sýnis og sölu
hjá Bílalíf, Kletthálsi 2, S .562-1717. Sjá
fleiri myndir á www.bilalif.is. Rnr.240931
GULLMOLI
TOYOTA LAND CRUISER 90 VX DÍSEL.
Árg. 2000, ekinn aðeins 134 þ.km, Þjónustu
og smurbók frá upphafi, DÍSEL Turbo
Intercooler. Leður, sjálfskiptur. Verð
1.980 þ. Til sýnis og sölu hjá Bílalíf,
Kletthálsi 2, S:562-1717. Sjá fleiri
myndirá www.bilalif.is. Rnr.241324
Sendibílar
TRANSPORTER - ÓSKA EFTIR TILBOÐUM
Bíllinn er árg. 2001, ekinn 88 þús. km.
Hann er með bilaða sjálfskiptingu og kom-
ið að tímareimarskiptum. Ásett á bílasölu
er um 890 þús., fer langt undir því verði.
Reynir, s. 869-1027, tezi_86@hotmail.com
Bílar óskast
VANTAR ÓDÝRAN SMÁBÍL
með góðu krami
Óska eftir smábíl með góðu krami, má
hafa útlitsgalla. Staðgreiðsluverð 50 -
70.000 kr. Uppl. í síma 841-1978.
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Eftir Ágúst Ásgeirsson
Tilraunir bandaríska
bílrisans Ford und-
anfarin misseri til að
selja Volvo hafa ekki
borið tilætlaðan árang-
ur. Bílsmiðir víða úr
heiminum hafa sýnt
áhuga en samningar
ekki tekist. Meðal
þeirra var franski bíl-
smiðurinn Renault sem
taldi Ford ofmeta Volvo
og hætti því við kaup.
Í millitíðinni hefur
verið rætt við fleiri en
nú hefur þráðurinn ver-
ið tekinn upp að nýju
milli Ford og Renault. Mjög lítið
vantaði á að Volvo og Renault rynnu
saman í eina sæng árið 1993. And-
staða innan Volvo og samtaka
sænskra hlutafjáreigenda varð þó til
þess að úr því varð ekki.
Samruni var talinn henta hags-
munum beggja þar sem þungamiðja
starfsemi Renault var í smíði smærri
bíla en kjarni framleiðslu Volvo í
smíði stærri og dýrari bíla. Athygli
vakti að franska fyrirtækið lagði í
haust til hliðar áform um nýja kyn-
slóð stærri fólksbíla, en hermt er að
samband hafi verið á milli þess og við-
ræðnanna við Ford.
Heimildir herma að kaupi Renault
sænska fyrirtækið renni það inn í Re-
nault fremur en að verða sjálfstæð
eining í Renault-Nissan-samsteyp-
unni.
Á síðasta fjórðungi nýliðins árs
varð 1,5 milljarða dollara halli á
rekstri Volvo vegna hruns í bílasölu.
Á sama tíma var tap Ford fjórfalt
meira, eða sex milljarðar dollara.
Mun bandaríski risinn áfram um að
losa sig við dótturfyrirtækið og fá fyr-
ir það harðan gjaldeyri.
Af hálfu bæði Ford og Volvo hefur
verið varist allra fregna síðustu daga
af hugsanlegri sölu síðarnefnda fyr-
irtækisins. Sérfræðingar sögðu í síð-
ustu viku að Ford vildi losa sig sem
fyrst við það og líklegast væri að
Volvo yrði selt aðilum á svonefndum
nýmarkaðssvæðum; fjársterku og
metnaðarfullu indversku eða kín-
versku fyrirtæki. Í sænskum fjöl-
miðlum hefur verið veðjað á að kín-
verskur samstarfsaðili Volvo,
Changan Automobile Group, hefði
áhuga á kaupum. Changan rekur
samsetningarsmiðjur í Chongqing í
Kína þar sem settir eru saman bílar
frá Volvo, Mazda og Ford.
Reuters
Alþýðlegur Steingrímur J. Sigfússon ekur Volvo.
Volvo gæti fengið
franskt heimilisfang