Morgunblaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 2
2 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2009 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Eftir Einar Sigtryggsson sport@mbl.is NÚ er heldur farið að lifna yfir körfuboltaunn- endum á Akureyri því eftir svartnætti mikið og tíu tapleiki í röð virtist ekkert geta bjargað Þór frá falli úr úrvalsdeildinni. Með tveimur sigrum um helgina er staðan orðin nokkuð væn og sigur gegn ÍR á fimmtudag gæti dugað Akureyringum til að halda sæti sínu. Í gær mættu Skallagrímsmenn norður með algjört skrap, aðeins átta menn og höfðu þrír þeirra ekkert spilað með liðinu í vetur. Ekki var því von á góðu fyrir þá enda voru Skallarnir hreinlega kjöldregnir. Þeir spiluðu varla vörn og Þórsarar áttu náðugan dag í 140:66 sigri. Leikurinn var aðeins jafn fyrstu mínúturnar en síðan var bara eitt lið á vellinum. Að vísu reyndi Landon Quick eitthvað að klóra í bakkann fyrir Skallagrím með skemmtilegum töktum en hann mátti ekki við margnum. Það er skemmst frá því að segja að munurinn jókst nánast til enda en Skalla- grímur lagaði stöðuna örlítið í lokin og enduðu Borgfirðingar leikinn á frábærri flaututroðslu frá húmoristanum Sveini Davíðssyni en hann skemmti sér greinilega vel þrátt fyrir mótlætið. Þórsarar buðu upp á mikla skotsýningu og settu þeir samtals nítján þrista, m.a. fimm í röð í fjórða leikhluta. Skoraði Baldur Ingi Jónasson átta slíka og Hrafn Jóhannesson fjóra í jafnmörgum skotum. Þórsarar voru virkilega hressir í leikslok en þeir komust allir á blað fyrir utan Bjarka Oddsson. Bjarki hafði þetta að segja eftir hressandi sturtuna: „Það var nú hálffúlt að halda ekki haus í restina en við hefðum viljað fá meiri mótspyrnu í kvöld. Það var lítið að marka þetta en skytturnar okkar fá kannski aukið sjálfstraust enda hittu þær vel. Þú sérð það að Skallagrímur var að vinna Tindastól fyrir stuttu og það var allt annað lið en við mættum í dag. Við þurfum okkar undirbúning fyrir ÍR- leikinn og þar ætlum við að vinna. Ef Baldur Ingi verður svona heitur áfram þá erum við í góðum málum,“ sagði stigalaus Bjarki kotroskinn. Í búningsklefa Skallanna ríkti glaumur og gleði þrátt fyrir skipbrotið og þar varð Sveinn Davíðsson fyrir svörum. „Igor Beljanski var ekki með en hann og nokkrir yngri guttar voru í bikarúrslitum fyrir sunnan í dag. Við fengum ekki frestun á leiknum og urðum því að smala í bænum, fengum meðal annars nýkjörinn formann körfuboltadeildarinnar með okkur. Þetta var nánast hans fyrsta verk,“ sagði Sveinn nokkuð brattur. Skraplið Skallagríms átti aldrei möguleika vel. Ég tapaði til dæmis boltanum á mikilvægu augnabliki þegar Hreggviður skoraði og kom ÍR yf- ir, 81:78. Ég er samt stoltur af baráttunni hjá okkur og það vant- aði bara herslumuninn hjá okkur. Ég hélt að við myndum hafa þetta en svo skoraði Eiríkur mjög mik- ilvæga þriggja stiga körfu og jafn- aði leikinn 78:78. Leikurinn var að mestu í járnum í síðasta leikhlut- anum,“ sagði Sævar. Breiðhyltingar eru komnir með 18 stig þegar tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni en FSu er með 14. ÍR situr í sjötta sæti deild- arinnar en FSu í því áttunda: ,,Við skulum vona að þessi sigur tryggi okkur inn í úrslitakeppnina. Þessi deild hefur spilast alveg ótrúlega jafnt í vetur en ætli við séum ekki komnir langleiðina með að tryggja okkur eitt af átta efstu sætunum. Við stefnum á sjötta sæti sem er raunhæfur möguleiki ef við klárum okkar leiki með sigri. Ég held að með þessum sigri höfum við stigið stórt skref í átt- ina að úrslitakeppninni. Leikirnir sem við eigum eftir eru þó þeir erfiðustu sem við gátum fengið. Annars vegar Þór fyrir norðan en þeir eru að berjast fyrir sæti sínu í deildinni og hins vegar Grindavík sem er næstbesta liðið í dag,“ sagði Sveinbjörn Claessen, bak- vörður ÍR, í samtali við Morg- unblaðið að leiknum loknum. Ömurleg vörn Hann tekur undir það að skemmtanagildi leiksins hafi verið talsvert: ,,Áhorfendur hafa vissu- lega skemmt sér á þessum leik í kvöld en það er engan veginn ásættanlegt að fá á sig körfu í hverju einustu sókn í nánast heil- an leikhluta. Þetta var líklega öm- urlegasta vörn sem ÍR-ingar hafa spilað í áraraðir. Ég tel þó að betra liðið hafi unnið í dag en FSu er vissulega með áhugavert og gott lið.“ ,,Kláruðum ekki sóknirnar“ Sævar Sigurmundsson fór fyrir liði FSu í sókninni og skoraði 26 stig í leiknum. Hann var ánægður með baráttuna í sínu liði og fannst einungis vanta herslumuninn til þess að sigra. ,,Maður fær nú yf- irleitt það sem maður á skilið í þessu. Baráttan var góð þegar okkur tókst að komast aftur inn í leikinn. Við náðum ekki að klára þetta undir lok leiksins. Þá klár- uðum við sóknirnar ekki nægilega Morgunblaðið/Ómar Átök Eiríkur Önundarson fór fyrir liði ÍR í gær gegn FSu í Seljaskólanum. ,,Stigum stórt skref að úrslitakeppninni“  ÍR-ingar í góðum málum eftir sigur á FSu í spennuleik ÍR-INGAR eru komnir með annan fót- inn inn í úrslitakeppnina í Iceland Ex- press-deild karla í körfuknattleik, eftir sigur á FSu, 83:80, þegar liðin mættust í Seljaskóla í gærkvöldi. Leikurinn var mjög skemmtilegur á að horfa, þá sérstaklega í síðasta leikhlutanum þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna og þriggja stiga körfurnar gengu á víxl. Í HNOTSKURN »Með sigrinum eru ÍR-ingarlíklega með öruggt sæti í úrslitakeppninni. »Eiríkur Önundarson skor-aði 26 stig fyrir ÍR. Sævar Sigurmundsson skoraði 26 fyrir FSu. Eftir Kristján Jónsson sport@mbl.is KR 19 18 1 1855:1428 36 Grindavík 20 17 3 1959:1601 34 Snæfell 20 14 6 1650:1468 28 Keflavík 19 12 7 1643:1469 24 Njarðvík 19 10 9 1564:1642 20 ÍR 20 9 11 1640:1647 18 Stjarnan 19 8 11 1625:1659 16 FSu 20 7 13 1625:1650 14 Tindastóll 19 7 12 1572:1644 14 Breiðablik 19 7 12 1464:1685 14 Þór A. 20 6 14 1693:1777 12 Skallagrímur 20 2 18 1265:1885 4  Þrír leikir fara fram í kvöld kl. 19.15. KR - Tindastóll. Keflavík - Njarðvík. Breiðablik - Stjarnan. Staðan Þór Ak. – Skallagrímur 140:66 Akureyri, úrvalsdeild karla, Iceland Ex- press-deildin, sunnudaginn 1. mars 2009. Gangur leiksins: 6:4, 16:7, 28:12, 35:14 35:24, 47:26, 58:32, 66:38, 78:42, 94:42, 100:46, 113:50, 120:54, 135:54, 140:66. Stig Þórs: Konrad Tota 27, Baldur Ingi Jónasson 24, Daniel Bandy 20, Óðinn Ás- geirsson 18, Guðmundur Jónsson 13, Hrafn Jóhannesson 12, Sigurður Sigurðsson 8, Jón Orri Kristjánsson 8, Baldur Már Stef- ánsson 6, Sigmundur Eiríksson 2, Björgvin Jóhannesson 2. Fráköst: 38 í vörn – 20 í sókn. Stig Skallagríms: Landon Quick 36, Sveinn A. Davíðsson 15, Þráinn Ásbjörnsson 11, Hörður Unnsteinsson 2, Sigurður Sigurðs- son 2. Fráköst: 23 í vörn – 5 í sókn. Villur: Þór Ak. 25 – Skallagrímur 14. Dómarar: Jóhann Gunnar Guðmundsson og Hákon Hjartarson, stóðu sig vel. Áhorfendur: 150. ÍR – FSu 83:80 Seljaskóli, úrvalsdeild karla, Iceland Ex- press-deildin, sunnudaginn 1. mars 2009. Gangur leiksins: 5:0, 7:2, 7:9, 12:16, 17:17, 22:19, 22:21, 27:21, 27:25, 35:25, 40:33, 45:35, 50:43, 53:51, 58:51, 58:54, 58:56, 62:60, 64:65, 68:68, 72:73, 75:74, 75:78, 78:78, 81:78, 83:80. Stig ÍR: Eiríkur Önundarson 26, Hregg- viður Magnússon 22, Sveinbjörn Claesson 20, Ómar Örn Sævarsson 9, Ólafur Þór- isson 2, Ólafur Ingvason 2, Ásgeir Hlöð- versson 2. Fráköst: 20 í vörn – 14 í sókn. Stig FSu: Sævar Sigurmundsson 26, Cri- stopher Caird 18, Tyler Dunaway 14, Árni Ragnarsson 11, Vésteinn Sveinsson 10, Björgvin Valentínusson 1. Fráköst: 26 í vörn – 10 í sókn. Villur: ÍR 20 – FSu 21. Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og Einar Þór Skarphéðinsson. Áhorfendur: Tæplega 200. Snæfell – Grindavík 89:88 Stykkishólmur, úrvalsdeild karla, Iceland Express-deildin, sunnudaginn 1. mars 2009. Gangur leiksins: 5:2, 13:13, 22:16, 30:20, 32:25, 39:35, 42:38, 50:45, 56:49, 60:53, 65:59, 70:65, 72:70, 75:76, 80:81, 85:82, 87:85, 89:88. Stig Snæfells: Lucious Wagner 22, Sigurð- ur Á. Þorvaldsson 20, Jón Ólafur Jónsson 17, Hlynur Bæringsson 15, Slobodan Suba- sic 6, Atli Rafn Hreinsson 5, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 4. Fráköst: 25 í vörn – 9 í sókn. Stig Grindavíkur: Brenton Birmingham 48, Þorleifur Ólafsson 11, Arnar Freyr Jónsson 10, Páll Axel Vilbergsson 10, Nick Bradford 4, Helgi Jónas Guðfinnsson 3, Páll Kristinsson 2. Fráköst: 15 í vörn – 4 í sókn. Villur: Snæfell 18 – Grindavík 24. Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og Rögnvaldur Hreiðarsson komust vel frá erfiðum leik. Áhorfendur: 215. Helena Sverr-isdóttir var stigahæst í liði TCU sem tapaði gegn San Diego State á útivelli, 68:63, í banda- rísku há- skóladeildinni í körfuknattleik á laugardag. Íslenski landsliðsmað- urinn skoraði 19 stig og tók 12 frá- köst en hún tapaði boltanum 8 sinn- um í leiknum. TCU hefur unnið 19 leiki en tapað 9 á keppnistímabilinu.    GIUF, sem Kristján Andréssonþjálfar, sigraði Ystad, 35:28, í sænsku úrvalsdeildinni í handknatt- leik í gærkvöld. GUIF er í öðru sæti deildarinnar, er stigi á eftir Hreiðari Guðmundssyni og félögum hans í Sävehof.    Andri Steindórsson, Íslands-meistari í skíðagöngu, varð fyrstur íslensku þátttakendanna í Vasagöngunni í Svíþjóð sem fram fór um helgina. Andri gekk 90 km vegalengdina á tímanum 5:02:45 og var nr. 501 af fimmtán þúsund sem þátt tóku göngunni. Með þessum góða árangri bætti Andri sig um þrjár mínútur frá Vasagöngunni í fyrra. Hann varð nr. 492 í Vasagöngunni í þá.    Carlo Ancelotti þjálfari AC Milanþykir orðinn valtur í sessi eftir tap liðsins gegn Sampdoria, 2:1, í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í gær, þremur dögum eftir að liðið féll úr leik í UEFA-bikarnum. Pato minnkaði muninn fyrir Mílanóliðið þegar 10 mínútur voru til leiksloka en þrátt fyrir nokkra pressu að marki Sampdoria á lokamínútunum tókst AC Milan ekki að jafna metin.    Inter hefur sjö stiga forskot á Ju-ventus í efsta sæti ítölsku A- deildarinnar en liðið komst í hann krappan gegn Roma á útivelli í gær- kvöld. Liðin skildu jöfn, 3:3, eftir að Roma hafði komist í 2:0 og 3:1. Arg- entínumaðurinn Hernan Crespo jafnaði metin fyrir Inter 10 mínútum fyrir leikslok. Hin tvö mörk Inter gerði Mario Balotelli. Fólk sport@mbl.is ÓlAFUR Stefánsson og félagar hans í Evrópumeistaraliði Ciudad Real tryggðu sér í gærkvöld farseðilinn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar með því að bera sigurorð af Barce- lona, 32:29, í fimmtu umferð í milli- riðli keppninnar. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en staðan í leikhléi var jöfn, 14:14. Ólafur var öflugur og var marka- hæstur í liði Ciudad Real með 6 mörk og þeir Alberto Entrerríos og Luc Abalo skoruðu 5 mörk hvor. Sterbik, markvörður Ciudad Real, átti mjög góðan leik og varði 20 skot. Hjá Börsungum var ungverski landsliðsmaðurinn Lazlo Nagy markahæstur með 7 mörk en tapið gerði það að verkum að Barcelona situr eftir ásamt GOG. Þegar ein umferð er eftir hefur Kiel 10 stig, Ciudad Real 8, Barcelona 2 og GOG rekur lestina með ekkert stig. gummih@mbl.is Ólafur öfl- ugur með Ciudad Real

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.