Morgunblaðið - 02.03.2009, Blaðsíða 3
Íþróttir 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MARS 2009
Hjalti Gylfa-son gat
ekki tekið þátt í
úrslitaleik bik-
arkeppninnar
með félögum sín-
um í Val á laug-
ardaginn eins og
til stóð. Um há-
degið á laugardag
fór hann í skyndingu með eiginkonu
sinni á fæðingardeildina. Kristján
Þór Karlsson var þar með kallaður
inn í hópinn hjá Val á elleftu stundu.
Ingvar Árnason tók út leikbann íbikarúrslitaleiknum og mátti því
ekki leika með Valsliðinu. Hann lét
sig hins vegar ekki vanta í Höllina
og studdi við bakið á félögum sínum.
Hlynur Morthens, hinn reyndimarkvörður Gróttu, ætlar að
leika áfram með liðinu á næstu leik-
tíð takist því að vinna sér sæti í N1-
deildinni eins og góðar líkur eru fyr-
ir um þessar mundir.
Snorri Steinn Guðjónsson og Ás-geir Örn Hallgrímsson gerðu 5
mörk hver fyrir GOG sem tapaði á
heimavelli fyrir Kolding, 36:35, í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik á laugardaginn.
Arnór Atlasonskoraði 2
mörk fyrir FCK
Håndbold þegar
liðið sigraði
Nordsjælland,
32:23, og komst
þar með í efsta
sæti. Guðlaugur
Arnarsson komst
ekki á blað fyrir FCK.
Þorri Björn Gunnarsson skoraði2 af mörkum Ringsted sem
hafði betur gegn Ajax, 28:25, í sann-
kölluðum botnslag. Ringsted er í
næstneðsta sæti deildarinnar með 6
stig en Ajax á botninum með 5.
Jón Þorbjörn Jóhannsson skoraði8 mörk fyrir Sönderjyske í sigri
liðsins á Odder, 37:30, í dönsku 1.
deildinni. Sönderjyske er í þriðja
sæti deildarinnar.
Auður Jónsdóttir skoraði 6 afmörkum Ringköbing þegar lið-
ið sigraði Hjörrring, 35:24, í dönsku
1. deildinni. Rut, systir Auðar, skor-
aði 1 mark fyrir Tvis Holstebro í
sigri liðsins á Nordköbenhavn,
36:22.
Ragnar Ósk-arsson
skoraði 2 mörk
fyrir Dunkerque
þegar liðið sigraði
Aurillac, 28:24, í
frönsku úrvals-
deildinni í hand-
knattleik í gær.
Dunkerque er í
fimmta sæti deildarinnar.
Björgvin Páll Gústavsson lands-liðsmarkvörður og félagar hans
í Bittenfeld biðu lægri hlut fyrir
Bergischer, 33:31, í suðurhluta
þýsku 2. deildarinnar í handbolta.
Þórir Ólafsson skoraði 3 mörkfyrir TuS N-Lübbecke þegar
liðið sigraði Hannover-Burgdorf,
28:24, á útivelli í norðurhluta þýsku
2. deildarinnar í handbolta. Hannes
Jón Jónsson skoraði 4 mörk fyrir
Hannover og Heiðmar Felixson 2.
Sturla Ásgeirsson skoraði 3 mörkfyrir Düsseldorf í stórsigri liðs-
ins á Bietigheim á útivelli, 37:25, í
suðurhluta þýsku 2. deildarinnar.
Fólk sport@mbl.is
Gull Axel Kvaran, Guðmundur Gíslason og Guðmundur Harðarson fengu
gullmerki SSÍ. Hörður Oddfríðarson formaður óskar þeim til hamingju.
Þrír fengu
gullmerki SSÍ
GUÐMUNDUR Gíslason,
Guðmundur Harðarson og
Axel Kvaran fengu gullmerki
Sundsambands Íslands á 57.
ársþingi SSÍ sem fram fór
um helgina í Reykjavík. Fjór-
ir aðilar fengu silfurmerki
SSÍ: Örn Ólafsson, Hrafnkell
Marinósson, Kristbjörn Óli
Guðmundsson, Svanhvít G.
Jóhannsdóttur. Að auki fékk
íþróttadeild Morgunblaðsins
silfurmerki SSÍ fyrir vand-
aða umfjöllun um sundíþrótt-
ina.
Morgunblaðið/hag
Morgunblaðið/hag
Góður Konrad Tota lék vel í liði Þórs.
Í GÆR fóru fram úrslitaleikirnir í
bikarkeppni yngri flokka í hand-
bolta og var leikið við glæsilegar
aðstæður í Laugardalshöllinni.
Gríðarleg spenna var í leik HK
og Akureyrar í 2. flokki karla. Ak-
ureyringar virtust vera með pálm-
ann í höndunum þegar langt var
liðið á síðari hálfleik og HK var 7
mörkum undir, 24:17. Barátta HK á
lokakaflanum skilaði árangri því
liðið náði að jafna metin einni sek-
úndu fyrir leikslok, 26:26. Leik-
urinn var því framlengdur og enn
var jafnt í lok framlengingarinnar,
30:30. Í annarri framlengingu náði
Kópavogsliðið að tryggja sér sigur,
38:35. Sveinbjörn Pétursson, mark-
vörður HK, var valinn maður leiks-
ins af dómnefnd en hann gerði sér
lítið fyrir og varði 30 skot.
Fylkir og Grótta áttust við í úr-
slitum í 4. flokki kvenna. Leikurinn
var jafn og spennandi og aðeins eitt
mark skildi liðin að í hálfleik, 11:10
fyrir Fylki. Árbæjarliðið náði síðan
yfirhöndinni í síðari hálfleik og
landaði 22:19-sigri. Sara Sigurð-
ardóttir, úr Fylki, var valin maður
leiksins.
Úrslit | 6
HK fagnaði sigri
í rafmögnuðum leik
Morgunblaðið/Ómar
Dauðafæri Það var ekkert gefið eftir í leik ÍR og Þórs í 3. fl. karla.
Eftir Skúla Sigurðsson
sport@mbl.is
ÞAÐ var mikið um að vera hjá yngri
flokkum í körfuknattleik um helgina
þar sem leikið var til úrslita í bik-
arkeppni KKÍ.
Í 9. flokki kvenna voru það erki-
fjendurnir Keflavík og Njarðvík sem
mættust. Keflavíkurliðið hóf leik með
mikilli grimmd og komst fljótlega í
forystu. Pressuvörn þeirra sló lið
Njarðvíkur algerlega út af laginu og
voru yfirburðir Keflavíkur strax í
fyrri hálfleik algerir. 43:14 var staðan
í hálfleik. Svo fór að lið Keflavíkur
sem leitt var af Evu Rós Guðmunds-
dóttur sigraði örugglega, 75:41. Eva
skoraði 23 stig og tók 18 fráköst og
var valin maður leiksins. Lovísa Fals-
dóttir, fyrirliði Keflavíkur, var að
vonum gríðarlega sátt við sitt.
„Vörnin hjá okkur skilaði þessum
bikar í hús. Við vorum mættar frá
fyrstu mínútu og ætluðum okkur að
vinna þennan bikar. Þjálfarar okkar
undirbjuggu okkur líka mjög vel fyrir
þennan leik og eiga þeir hrós skilið.
Annars var það auðvitað liðsheildin
gamla góða þar sem engin í liðinu var
að hugsa um sjálfa sig heldur allar að
spila hver fyrir aðra,“ sagði Lovísa
kampakát við Morgunblaðið.
Eva Rós Guðmundsdóttir var mað-
ur úrslitaleiksins í 9. flokki en hún var
einnig valin maður leiksins í stúlkna-
flokki þar sem Keflavík lagði Njarð-
vík. Keflavík fagnaði fjórum bik-
artitlum í kvennaflokki en KR sigraði
í unglingaflokki kvenna þar sem
meistaraflokksleikmaðurinn Margrét
Kara Sturludóttir fór fyrir liði KR.
Úrslit | 6
Keflavík með
fjóra bikartitla
Ljósmynd/Skúli Sigurðsson
Örugg Lovísa Falsdóttir skorar hér af öryggi fyrir Keflavík gegn Njarðvík.
Spenna í bikarkeppni yngri flokka KKÍ
Eftir Ríkharð Hrafnkelsson
sport@mbl.is
Með þessum ósigri Grindavíkur hefur
KR nánast tryggt sér deildarmeist-
aratitilinn. Í öðrum leikhluta fór
Brenton Birmingham hreint á kost-
um, hann hafði reyndar leikið vel frá
upphafi en þarna hófst stórsýning hjá
honum sem stóð þar til hann varð að
yfirgefa leikvöllinn með 5 villur er 30
sekúndur lifðu leiks. Hann var sjóð-
andi heitur allan leikinn og áttu
Hólmarar í hinu mesta basli með
hann. Þegar leiknum lauk hafði Bren-
ton skorað fjörutíu og átta stig og var
með 70% skotnýtingu bæði í þriggja
og tveggja stiga skotum. Brenton
hélt gestunum hreinlega á floti og ef
ekki hefði komið til þessi stórleikur er
eins víst að tap Grindavíkur hefði orð-
ið mun stærra. Í seinni hálfleik komu
Arnar Freyr Jónsson og Þorleifur
Ólafsson með ágæta spretti í leik
Grindavíkur. Leikur Snæfells var að
mestu leyti afar góður og einn þeirra
besti leikur í vetur. Snæfellsliðið hef-
ur verið að sækja mjög í sig veðrið nú
síðla vetrar. Frá því að Snæfell tapaði
fyrir Grindavík 1. desember hefur lið-
ið einungis tapað einum leik, þ.e. fyrir
KR.
Flestir leikmenn Snæfells léku vel,
Sigurður Á. Þorvaldsson átti fínan
leik og var með fjóra af fjórum þrist-
um ofan í og með fjögur skot af fimm
í tveggja stiga skotum ofan í. Lucious
Wagner, Jón Ólafur Jónsson, Hlynur
Bæringsson stóðu sig allir vel og svo
kom Ingvaldur Magni Hafsteinsson
inn með sterkan varnarleik þegar á
leikinn leið.
„Ég var afar sáttur við leik liðsins í
kvöld, heildin var góð nema það komu
smákaflar þar sem við hættum að
hreyfa boltann. Ég var mjög ánægð-
ur með síðustu sóknina þar sem við
náðum klára hana með sniðskoti.
Varnarleikur var í heildina mjög góð-
ur nema það að við réðum ekkert við
Brenton. Það er ótrúlegt hvað þessi
36 ára gamli leikmaður átti frábæran
leik. Það var mjög mikilvægt hjá okk-
ur að ná þessum fyrsta sigri í vetur á
móti toppliðunum tveimur, Grindavík
eða KR, áður en úrslitakeppnin hefst.
Þessi sigur eflir sjálfstraustið hjá
okkur fyrir komandi átök,“ sagði
Hlynur Bæringsson þjálfari og leik-
maður Snæfells að leik loknum
Stórleikur Bren-
tons dugði ekki
Jón Ólafur Jónsson tryggði Snæfelli
sigur gegn Grindavík á lokasekúndunum
SNÆFELL sigraði Grindavík með 89
stigum gegn 88, í tuttugustu umferð
Iceland Express-deildarinnar, í Stykk-
ishólmi í gærkvöldi. Stórleikur um-
ferðarinnar var þegar liðin í öðru og
þriðja sæti deildarinnar, Grindavík og
Snæfell mættust í Stykkishólmi.
Leikur liðanna bauð upp á allt sem
góður körfubolti á að bjóða upp á,
hraðan leik, öflugar varnir og mikla
skotsýningu á köflum.