Morgunblaðið - 08.03.2009, Page 5

Morgunblaðið - 08.03.2009, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. MARS 2009 B 5 Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun á sviði heilbrigðisvísinda» Stjórnunarreynsla í heilbrigðisþjónustu» Leiðtogahæfileikar» Samskiptahæfni» Almennar kröfur til stjórnenda Vera leiðtogar við framkvæmd á stefnu spítalans» Helga sig sýn og markmiðum spítalans til framtíðar» Hæfni og vilji til að líta á starfsemi spítalans sem eina heild» Vinna kerfisbundið að þróun og einföldun verkferla» Vinna að stöðugum umbótum í starfsemi spítalans» Styrkja kennslu- og vísindastarf á spítalanum» Ábyrgð Framkvæmdastjórar heyra beint undir forstjóra og eiga sæti í» framkvæmdastjórn Fjárhagsleg ábyrgð» Ábyrgð á starfsmönnum» Fagleg ábyrgð með þeím takmörkunum sem greinir í lögum» um heilbrigðisþjónustu 2007 nr. 40 27. mars Nánari upplýsingar Ráðið er í stöðurnar frá 1. maí 2009, til 5 ára» Umsóknum skal skila í tvíriti í síðasta lagi 23. mars 2009 á» skrifstofu forstjóra, Eiríksgötu 5, 101 Reykjavík. Umsækjendur geta sótt um fleiri en eitt starf. Fram komi í umsókn um hvaða framangreint starf eða störf er sótt Umsókn fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu» af stjórnunarstörfum og kennslu og vísindavinnu eftir því sem við á Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um» ráðningu í störfin á þeim og innsendum gögnum Nánari upplýsingar um störfin veitir Hulda Gunnlaugsdóttir» forstjóri í síma 543 1101 eða í tölvupósti huldgunn@landspitali.is Ábyrgðarsvið stjórnenda og frekari upplýsingar um störfin eru» á vef Landspítala, www.landspitali.is Starfskjör byggjast á kjarasamningum og lögum um starfsmenn ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. „Landspítali er helsta sjúkrahús landsins og háskólasjúkrahús. Þar starfar öflugt fagfólk sem hefur sótt menntun sína og reynslu innan- lands og utan. Samstillt átak starfsfólks og landsmanna hefur styrkt spítalann í áranna rás þannig að hann stenst að mörgu leyti samanburð við bestu sjúkrahús erlendis. Nú stendur Landspítali á tímamótum. TIl að verða enn betra háskólasjúkrahús sem stöðugt eflir þjónustu við sjúklinga, kennslu og vísinda- starf þarf hann að geta tekið breytingum. Mestu máli skiptir að bæta innra skipulag og verkferla en til að ná þeim markmiðum hefur nýtt skipurit verið gert í náinni samvinnu við starfsmenn. Helstu einkenni skipurits- ins eru aukið vægi þjónustu við sjúklinga, stuttar boðleiðir og skýr ábyrgð. Gert er ráð fyrir meiri dreifingu ábyrgðar og áhersla lögð á að ábyrgð og völd fari saman. Klínísk svið verða 6 talsins og einn framkvæmdastjóri yfir hverju þeirra. Nýrra framkvæmdastjóra bíða krefjandi og spennandi verkefni enda eiga störf þeirra að leiða til skilvirkrar þjónustu við sjúklinga, eflingar kennslu og vísindastarfs og bestu nýtingar fjármagns, sjúklingum og öllum almenningi til hagsbóta.“ Framkvæmdastjóri bráðasviðs Bráðasvið annast þjónustu við bráðveika og slasaða. Meginverkefni sviðsins á næstunni verður sameining slysa- og bráðadeildar í Fossvogi og bráðamóttöku við Hringbraut. Önnur starfsemi á bráðasviði verður neyðarmóttaka, áfallahjálp, viðbragðsáætlun við hópslysum og miðstöð um skil- virkt flæði. Á sviðinu verða um 350 starfsmenn og áætluð velta þess er um 1,9 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs Á kvenna- og barnasviði verður veitt þjónusta vegna kvensjúkdóma, meðgönguvandamála og fæð- inga-, nýbura- og barnalækninga. Barna- og unglingageðdeild verður einnig starfrækt á sviðinu. Að auki mun sviðið þjóna langveikum börnum með rekstri Rjóðursins. Á því verða um 600 starfsmenn og áætluð velta þess er um 3,3 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri lyflækningasviðs Á lyflækningasviði verður veitt þjónusta í öllum helstu greinum lyflækninga. Sviðið er umfangs- mikið og nær einnig til þjónustu blóð- og krabbameinslækninga auk öldrunarlækninga og endur- hæfingar. Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar tilheyra sviðinu en veita einnig þjónustu á öðrum klínískum sviðum spítalans. Á lyflækningasviði verða um 1.490 starfsmenn og áætluð velta þess er um 8,8 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri geðsviðs Geðsvið annast þjónustu vegna geðrænna vandamála fullorðinna og hæfingar. Þjónustan mun færast í æ ríkari mæli í dag- og göngudeildir og vinnu við búsetuúrræði fyrir fjölfatlaða og langveika geð- fatlaða. Sálfræðingar og félagsráðgjafar tilheyra sviðinu en veita þjónustu á öðrum klínískum sviðum spítalans. Á sviðinu verða um 670 starfsmenn og áætluð velta þess er um 3,3 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs Á skurðlækningasviði verður veitt þjónusta í öllum helstu greinum skurðlækninga á legu-, dag- og göngudeildum. Öll þjónusta er varðar svæfingar og gjörgæslu tilheyrir sviðinu auk reksturs skurðstofa og Blóðbankans. Sviðið er umfangsmikið en á því verða um 1.060 starfsmenn. Áætluð velta þess er um 7,9 milljarðar króna. Framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs Á rannsóknarsviði eru m.a. rannsóknarstofur í blóðmeinafræði, erfðalæknisfræði, litningarannsóknum, meinafræði, ónæmisfræði, sýklafræði og veirufræði. Öll myndgreiningarþjónusta spítalans tilheyrir þessu sviði. Þar verða um 420 starfsmenn og áætluð velta þess er um 3,8 milljarðar króna. Framkvæmdastjórar á Landspítala Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri Landspítala Fagmennska Jafnræði Virðing Öryggi Þekking Lykiltölur um Landspítala Fjárlög: Um 34 milljarðar Starfsmenn eru um 5.000» Einstaklingar sem leita þjónustu á ári eru um 107.000» Komur á dag- og göngudeildir eru um 435.000» Komur á slysa- og bráðamóttökur eru rúmlega 95.000» Innlagnir eru um 29.000» Skurðaðgerðir eru um 15.000» Fæðingar eru um 3.400» Nemendur á ári eru um 1.100» Vísindagreinar í alþjóðlegum tímaritum á ári eru um 200»

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.