Morgunblaðið - 08.03.2009, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 8. MARS 2009 MORGUNBLAÐIÐ
Vanir sölumenn
Alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki óskar eftir
kröftugum sölumönnum með mikil tengsl inn í
atvinnulífið. Mikil sölureynsla nauðsynleg.
Sala á nýstárlegum námskeiðum og markaðs-
lausnum á Íslandi. Góð sölulaun.
Umsóknir sendist á petur@img-global.com
Veffang: www.img-global.com
Vélstjóra og
stýrimann
vantar á rækjubát (27m), sem gerður verður út
frá Siglufirði . Stærð vélar er 732 kW.
Upplýsingar í síma 868 9826.
mbl.is er mest sótti vefur landsins og býður upp á framsækið og fjölbreytt starfsumhverfi.
Nýjungar á vefnum eru byggðar í Django/Python vefumhverfi og leitum við að öflugum
einstaklingi til að taka þátt í endurmótun vefsins til framtíðar.
Við leitum að einstaklingi sem...
• er framsækinn og tileinkar sér bestu mögulegu tækni hverju sinni og finnur nýjar og betri leiðir til að leysa verkefnin
• hefur gífurlegan metnað fyrir smáatriðum í viðmóti, virkni og hönnun vefja
• hefur gagnrýnið hugarfar, er sjálfstæður og sýnir frumkvæði í vinnubrögðum
• hefur húmor, er góður í samskiptum og á auðvelt með að vinna í hópum
• hefur yfirgripsmikla þekkingu á helstu tæknilegu úrlausnum í vefgeiranum:
skriptunarmálum (Perl, Python eða Ruby), HTML, CSS, Javascript (þ.m.t. jQuery) og SQL-gagnagrunnum.
Það er mikill kostur ef viðkomandi er hagvanur Linux og öðrum open-source hugbúnaði, s.s. Apache, PostgreSQL og Git.
Auk enduruppbyggingar vefsins í Django mun viðkomandi koma að viðhaldi eldri vefhluta í Perl/Mason umhverfi og hugsanlega tilteknum kerfisstjórnunarverkefnum.
Ef þessi starfslýsing vekur áhuga þinn, sendu þá umsókn og starfsferilslýsingu á starf@mbl.is.
Frekari upplýsingar veitir netstjóri mbl.is, Ingvar Hjálmarsson (s. 569 1308).
leitar að öflugum VEFFORRITARAmbl.is
Landgræðsla ríkisins
Verkefnisstjóri
Landgræðsla ríkisins hefur samkvæmt lögum
nr. 91/2002 umsjón með framkvæmdum og
ráðstöfun fjár á fjárlögum til varna gegn land-
broti. Landgræðslan óskar eftir að ráða verk-
efnisstjóra til að hafa umsjón með slíkum
framkvæmdum.
Helstu verkefni:
Hanna framkvæmdir.
Semja við verktaka og aðra um
framkvæmdir.
Hafa yfirumsjón með framkvæmdum.
Annast samskipti við landeigendur.
Meta umsóknir og forgangsraða.
Annast úttektir á framkvæmdum og hafa
umsjón með uppgjöri.
Færa upplýsingar í gagnagrunn.
Þessi verkefni eru unnin í samráði og sam-
vinnu við aðra starfsmenn stofnunarinnar s.s.
héraðsfulltrúa, sviðsstjóra landverndarsviðs
og landgræðslustjóra.
Æskileg menntun, reynsla og hæfni:
Menntun sem nýtist vel í starfi, t.d. verkfræði
eða tæknifræði.
Reynsla af verklegum framkvæmdum.
Þekking á eðli straumvatna.
Góð tölvukunnátta og tölvufærni.
Reynsla af notkun landupplýsingakerfa.
Almenn, góð íslenskukunnátta.
Góð færni í mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins.
Skrifstofa og önnur starfsaðstaða er í Gunnars-
holti, en reikna má með að talsverð ferðalög
innanlands fylgi starfinu. Upplýsingar um verk-
efnið eru á vefsíðu Landgræðslunnar,
www.land.is
Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðmund-
ur Stefánsson sviðsstjóri landverndarsviðs í
síma 899 3096 eða á gudmundurst@land.is
Skriflegar umsóknir, ásamt staðfestum próf-
skírteinum og ferilskrá, skulu berast til
Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hellu.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 2009.
Landgræðsla ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hellu
www.land.is, sími 488 3000.
Ertu að leita þér að vinnu?
Vantar þig starfskraft?
Farðu inn á mbl.is/atvinna