Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 01.09.1926, Blaðsíða 4

Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 01.09.1926, Blaðsíða 4
4 FJELAGSBLAÐ ÍÞRÓTTAFJELAGS RBYKJAVIKUR hefir stokkiS 4,íi st.). Vogarkast Hagemeisler 9,30 st. Kúluvarp Fritz Rasmussen 24,23 st. (nýtt danskt met) ; betri hendi 12,63 st- Spjótkast Fritz Rasmussen 99,805 st. (nýtt danskt met) ; betri hendi 58,80. Svend Gjörling kastaSi meS betri hendi 59,22 st. — Braut- irnar voru þungar, vegna undanfarinna rigninga, og eru því afrekin Uetri en tölurnar sýna. Fjelagið. Björn Jakobsson, fimleikakennari fór utan í júlí- mánuöi, en kom heim aftur 8. þ. m. Hann feröaöist víöa um í Noregi og Danmörku, og mun síöar hjer í blaðinu skýra frá því helsta úr þessu feröalagi. Fimleikaæfingar hefjast í byrjun næsta mánaöar. Verið reiðubúin að mæta þegar á fyrstu æfingu. Miðstöövarhitun er nú i ráði að setja í fimleikahús Mentaskólans. Er það öllum hinum mörgu, sem nota fimleikahús þetta, hið mesta gleðiefni. Keppni í frjálsum íþróttum fyrir yngri fjelaga og innanfjelags meistarastigsmót verður háð á íþrótta- vellinum 25. og 26. þ. m. Stjórnin hafði áöur auglýst að mótin færu fram sinn hvorn sunnudaginn, en nú hefir því veriö breytt þannig, að þau fara fram sömu dagana. Skemtifundur verður haldinn laugardaginn 2. októ- ber í Iðnó, og þar afhent verðlaun frá mótunum. Aðalfundur í. R. verður haldinn mánudaginn 18. október kl. 8)4 í Iðnó. Dansleik heldur fjelagiö laugardaginn 18. þ. m. í Iðnó. Er eigandi Iðnó’s nú að láta setja nýtt tiglagólf í húsiö, og verður það vígt með dansleik þessum. Þórarinn Arnórsson, gjaldkeri fjelagsins, verður fyrst um sinn afgreiöslumaður blaðsins. Gerið honum. því aðvart, ef vanskil verða á blaðinu. Einnig ber að tilkynna honum bústaðaskifti. Meistarastigsorður fyrir I. R. eru nú i smíðum, Verða þær mikið myndarlegri og fegurri, en orður fyrir íþróttir hingað til hafa verið. Meistarastigiö gildir fyrir eitt ár í senn. Verður því kept árlega um innanfjelags meistaranafnbótina i hverri íþrótt. Skrifstofu opnar fjelagið mánud. 20. þ. m. í Kirkju- stræti 10, niðri, þar sem er biðstofa Matth. læknis Einarssonar. Verður hún opin fyrst um sinn mánu- dags-, miðvikudags- og föstudagskvöld frá kl. 8)4— 10 í september og október. Þar geta fjelagarnir hitt stjórnina að máli. Sími 139. Fjelagar í. R. eru ámintir um að greiða ársgjöld sín til gjaldkera hið allra fyrsta. Næsta blað kemur út um miðjan október. Meistarastigfsmót innanfjelags, i frjálsumi íþróttum, fer fram á Iþrótta- vellinum laugardaginn 25. og sunnudaginn 26. þ. m. Kept veröur í þessum íþróttum: Hlaup: 100 m., 200, 400, 800, 1500, 4 X 100 boðhlaup og 110 m. grindahlaup. Stökk: Langstökk, hástökk, þrístökk. Köst: Spjótkast, kringlukast, kúluvarp. Sund: 50 og 100 st., frjáls aðferö, (verður auglýst siðar hvenær það fer fram). Sömu daga fer fram keppni í írjálsum iþróttum fyr- ir yngri fjelaga. Kept veröur i þessum iþróttum: Hlauj): 80 m., 400 og 1500 m. Stökk: Langstökk, hástökk, stangarstökk. Köst: Spjótkast, kringlukast. Sund: 50 og 100 st., frjáls aðferö. Þátttakendur gefi sig fram sem allra fyrst við Jón Kaldal, og taki fram í hvaða iþróttum þeir ætla aö keppa. (stofnaö II. mars 1907). Innan íþróttasambands íslands. Ifthar limleika. frjálsstr íþróttir og teimis. Formaður: Haraldur Johannessen, Kirkjustræti 10, Sími 35. Varaformaður: Sigurliði Kristjánsson, Laugaveg 95. Sími 1861. Gjaldkeri: Þórarinn Arnórsson, Lokastíg 22. Sínii 251 og 1142. Ritari: Sigursteinn Magnússon, V'onarstræti 2. Jón Kaldal, Laugaveg n. Sími 811. Utanáskrift fjélagsins er: Pósthólf 3 5. • Aflið í. R nýrra fjelaga. ZIZZZI Fjelagsprenlsmiðjun.

x

Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur
https://timarit.is/publication/760

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.