Félagsblað íþróttafélags Reykjavíkur - 23.04.1931, Síða 1
FJ E lAG S B LAÐ
iM’ómr.nr «is eeykmvíkidir
3. ARG.
2. TÖLUBL.
ÚTGEFANDI: STJÓRN í. R.
ÁBYRGÐARMAÐUR: SIGURLIÐI KRISTJÁNSSON
1. Sumardag'
ur 1931
HvERSU mikil ástæða er það
ekki fyrir okkur Islendinga að
fagna vel hverju sumri, er held-
ur innreið sína. — En það vill oftast nær verða
svo, að við erum varla búnir að átta okk-
ur á því, hvað hefir verið að ske fyrr en sum-
arið er horfið, daginn er farið
að stytta, myrkrið farið að fær-
ast yfir og kuldi og snjór farinn
að gera vart við sig.
Allan veturinn, frá . því
snemma að haustinu til, þegar
við sjáum, að við erum búnir aS
missa af því sumri, sem var að
kveðja, bíðum við í eftirvænt-
ingu eftir því að næsta sumar
’.áti bóla á sér, en svo fer allt á
sömu leið, að við verðum of
sein, of seinir að njóta þessara
táu mánaða, sem eru lífgjafar
þess, sem hefir legið í dái í
kulda og myrkri vetrarins.
Því skyldum við mennirnir
ákki þurfa að íklæðast nýjum
ham eins og jörðin, sem við
göngum á? Því ekki að verða að-
njótandi þess sama, sem gefur
grasinu á jörðinni endurlífgun,
sólarljóssins hreina og heilnæma
fjallaloftsins og vatnsins, sem er
orðið tárhreint af því að brjót-
ast upp úr djúpi jarðarinnar.
Þetta er þess utan sá unaður
sem engu fé þarf að fleygja fyr-
ir, og hann gefur oftast nær mest
varanlegt í aðra hönd.
Hversu meiri ástæða er ekki
fyrir okkur hér heima að fagna
vel sumrinu, heldur en margai
aðrar þjóðir á hnettinum, þar
sem mjög lítil skilgreining er á
vetri og sumri, og þó er þar
uppi fótur og fit.
Fyrir íþróttamanninn er sérstaklega ástæða
til að gdeðjast, því að vetrinum til er starfi hans
of mikið afmarkaður bás, þar sem æfingar þurfa
að mestu leyti að fara fram inn-
anhúss og fjölbreittni afar lítil.
En þegar hlýnar í veðri og jörð-
in tekur stakkaskiptum, þegai
blotinn fer úr jarðveginum og
jörðin íklæðist grænum skrúða
sínum, getur íþróttamaðurinn
víkkað starfssvið sitt. Þá er svo
margt, sem stendur honum til
boða, margt sem laðar: frjálsar
útiíþróttir, knattspyrna, sund,
tennis, hlaup og göngur um fjöll
og firnindi.
Það er því óskandi, að allir
íþróttamenn stígi nú á stokk og
ákveði með sjálfum sér: nú verð
eg að nota komandi sumar vel,
byrja snemma og æfa af kost-
gæfni undir þær keppnir, sem
fram eiga að fara, þegar líður að
miðju sumri, en ekki að láta
kæruleysi og drátt valda þvi
að hann komi óundirbúinn til
keppni, eins og svo oft hefir vilj-
að brenna við.
Það eru ekki einungis meðlim-
ir íþróttafélaga, sem þurfa að
hafa gát á sumrinu. Jafnvel enn-
þá meiri ástæða er fyrir þá bæj-
arbúa, sem sjaldan hafa nokkra
hreyfingu að vetrinum til, að
njóta veðurblíðunnar, ennþá
meiri ástæða fyrir þá að fara
5LKT1RR
Það blotar í fönnum
í jöfcla sal.
Vídananshlaiipsbikar i. R., gefin af
Silla & Valda. — Handhafi Knatt-
spyrnufélag Reijkjaníkur.