Elding - 01.03.1934, Page 2
þýðunnar, en halda henni í raun
réttri niðri í eymd og' volæði.
■Sendisveinar voru fyrstir til að
sjá, að alþýðuf oi'ingj arnir eru
ekki til orðnir fyrir alþýðuna,
liéldur alþýðan fyrir þá, til að
sjúga úr henni merg og blóð.
Sendisveinar aðhyllast ekki slíka
foringja. Sendisveinar eru yngstu
verkamenn landsins, og jafnframt
fremstir í flokki gegn alþýðu-
broddunum, sem lifa á sult og
seyru verkalýðsins.
Fagurgali og hræsni broddanna
dugir ekki lengur, sendisveinar
vita og hafa sýnt hvað þeir geta
og berjast gegn blóðsugunum á
þjóðarlíkamanum, sem eru hinir
svokölluðu kratabroddar. S.
Til starfa.
Sendisveinadeild Merkúr hefir
ekki starfað í nokkum tíma, eftir
að Marxistarnir höfðu klofið
hana, en nú er félagsskapurinn
myndaður aftur og nú verðum við
að standa þétt saman og beita
okkur fyrir velferð sendisveina og
bættum kjörum fyrir þá. En það
er nú samt ekki einhlítt. Við
verðum að gera það líka að okk-
ar áhugamálum, að hver standi
vel í sinni stöðu og læri að vera
ábyggilegur og stundvís.
Nú hefir verið ákveðið, að gefa
út blað innan félags okkar og við
skrifum í það og ræðum okkar
málefni.
Æskilegt væri það, að blaðið
gæti verið laust við pólitík, en
ég get nú samt ekki fyllilega bú-
ist við því, það er ekki hægt að
takmarka skoðanafrelsi hjá nein-
um. En eitt er hægt að gera, að
rugla ekki saman mönnum og mál-
efnum og forðast persónulegar á-
rásir.
Og að endingu, kæru félagar!
Þá vil ég minna ykkur á, að ef
við erum trúir og dyggir sendi-
sveinar, meðan við erum ungir,
þá verður okkur trúað fyrir á-
byrgðamieiri störfum þegar við
verðum eldri. J. Ó.
Þar hitti fjandian
ðmmu sína.
Pótur Pétursson og Svavar
Guðjonsson.
Einn ógeðslegasti og ruddaleg-
asti unglingur, í olíudeild Héðins
V., sem hann hefir skýrt S. F. R.
(sjúkrafélag Reykjavíkur), er
Pétur Pétursson, bróðir Jóns
Axels P. lóðs.
Eins og þessi náungi á ætt til
að rekja, er hann montinn með
sig og rausgefinn mjög.
Ilann þóttist heldur hafa dott-
ið í lukkupottinn, þegar hann
með hjálp annara sér álíkra
þokkapilta gat sprengt að nokkru
stéttarfélag sendisveina, S. D. M.
í vor (1933). Hann ætlaði sér að
verða mikill maður á meðal stétt-
arsvikaranna og ganga næst
Héðni. En Pétur greyið misreikn-
aði sig, hann hélt sig fyrirfram
ákveðinn aðalmann sjúkradeildar-
innar, S. F. R., vegna hæfileika í
lymsku og glamri, en hitti þá
fyrir sér annan ennþá færari og
æfðari í þessum efnum báðum,
sem sé, Svavar Guðjónsson, sem
aldrei hefir verið sendisveinn
nema viku og viku í einu, af
sérstökum ástæðum. Hann á vel
við gamli málshátturinn, þegar
talað er um kynni Péturs og
9
Svavars, að þar hafi fjandinn hitt
ömmu sína.
Svavar varð liðhlaupi um líkt
leyti og Pétur. Síðan hafa þeir
barizt um völdin í liðhlaupadeild-
inni, S. F. R., og þá sérstaklega
um það, að láta Héðinn keyra
sig heim í luxusbílnum, á kvöldin.
Mælt er að Svavar hafi oftar
fengið að sitja í, og þar af dreg-
ið, að honum hafi gengið skár í
■valdabaráttunni. Enda grunnt á
því góða milli Japls bróður Pét-
urs og Héðins.
S'. D. M. getur hrósað happi yf-
ir að hafa ekkert með slíka ná-
unga að gera, sem Pétur og
Svavar, þeir eru öllum góðum
drengjum hvimleiðir, og eiga því
ekki heima annarsstaðar en í
sviknradeildinni, SFR. Sendill.
Frá Merkúrfundinum
Merkúrfundur var í gær. Þar
voru allmargir sendisveinar, og
heyrðu hljóðið í málpípum krata
og kommúnista, sem þar urðu sér
náttúrlega til stórrar skammar.
Frk. Laufey kvakaði þar sinn
sorgarsöng yfir sínu eigin dug-
leysi og aumingjaskap. Frk. Guð-
ný var heldur gleiðari, en þó
ámátleg mjög og lá við að flestir
sofnuðu í salnum meðan á mál-
flutningi hennar stóð. Lakastur
var þó litli kratabroddurinn Pét-
ur Halldórsson, sveitamaður að
austan, sem með offorsi réðist að
S. D. M. og þeim mönnum, sem
fyrir sendisveina hafa starfað.
En iítið varð úr vindbelgingi Pét-
m - þegar á átti að herða, og
gafsi hann algj 'mlega upp við sví-
virðingariðju sína, þegar send;
sveinninn Gunnar Gunnarssou
Jia.’ði staðið upp og tekið duglega
í lurginn á honum. Fundarstjóvi
var Sigurður Jóxiannsson, og
tókst mjög sæmilega að sitja á
rétti allra fundarmanna annara en
kommúnista.
Sendisveinar! Bráðlega verður
aðalfundur í Merkúr að nýju.
Mætið þar og látið engum líðast
að traðka á rétti ykkar. En það
mun kommúnistasamfylkingin,
íhalds-, krata- og Framsóknar-
liðið reyna að gera á framhalds-
aðalfundi Merkúrs, en það hindrið
þið og mætið allir.
15. marz.
H. R.
Kaupi íslenzk frímerki
hæsia verði.
Gísli Sigurbjörnsson,
Lækjariorgi 1. — Sími á292.