Elding - 01.03.1934, Síða 4
Hagsmunamál
sendisveina.
%
Eins og þið vitið, þá er stétt
hér í bæ og öðrum bæjum, er
neínist sendisveinastétt. Þessi
stétt hefir lægsta kaup af öllum
stéttum landsins. Sendisveinar eru
látnir vinna langt fram á nætur
og sagt að koma með fyrstu
mönnum í búðirnar á morgnana.
Sendisveinar hafa lágt kaup, þeir
hafa 50—75 kr. á mánuði. Ef
sendisveinar hefðu ekki foreldra
sína á bak við sig, þá gætu þeir
ekki lifað á kaupi sínu. Sumir
sendisveinar hafa varla nóg til
að borða, þeir eru í slitnum
klæðnaði og er alltaf kalt. Og
kaupmenn þeir, sem þeir vinna
hjá, banna sendisveinum að ganga
í nokkurt sendisveinafélag. Það
gera þeir vegna þess, að þeir vita,
að' sendisveinafélög starfa að því
að reyna að koma á kauphækkun
meðal sendisveina. Þessir maura-
púkar fylla heldur pyngjuna, en
að borga sendisveinum 100 krón-
ur á mánuði.
Ég get gefið eitt dæmi, það er
ein fjölskylda hér í bæ, faðirinn
er atvinnulaus, konan liggur fyrir
dauðanum og sonurinn þrælkar
hjá einum mesta maurapúka bæj-
arins. Þessi drengur hefir ekki
nema 40—50 kr. á mánuði, og
vinnur frá kl. 8 á morgnana til
kl. 83/2 á kvöldin, verður að skúra
gólfin og sendast með allar pant-
anirnar á slæmu hjóli. Svona
hafa kaupmenn það. Þeir kúga
þessa stétt undir sig. En vonandi
verður þessi stétt ofan á.
Eflið samtökin og gangið í
Sendisveinadeild Merkúrs, sem
berst fyrir hagsmunamálum ykk-
ar. Gunnar Gunnarsson.
Fuglafræ
Nýkomið fyrir canarifugla, sel-
skapspáagauka og páagauka.
Laugavegs Apotek.
werzluxiixi Vísir
IVIatvöruverzluu
Vaxandi viðskifti sanna, að þeir, sem kaupa nauðsynjar sínar í
\ erzluninni „Vísir“, fá beztar vörur fyrir lægst verð.
Gerið innkaup þar.
Sendisveinar Vísis eins og Elding um a 11 a borgina.
FJÖLNISVEG 2.
Sími 2555.
Kaupið og notið Álafoss-föt.
_A_ lafoss
Þingholtsstræti 2.
Krisfján Guðmundsson
er einn þeirra manna, sem stétt
sína hefir svikið, og gengið á mála
hjá olíuauðvaldi bæjarins. Það
mun sannast hið fomkveðna, „að 1
sér grefur gröf þó grafi“, um
þenna ungling, sem gekk úr
Sendisveinadeild Merkúr og vóg
]>ar með aftan að samtökum stétt-
ar sinnar á svívirðilegan hátt.
Annars mega þessir ungu
menn, sem undir fölsku flaggi
sigla nú og þykjast vinna að
samtökum stéttar sinnar í S. F.
R. , en eru sem afturgengnir
draugar með rýting í hendi, að
læðast að baki Sendisveinadeildar
Merkúr, eina stéttarfélags sendi-
sveina í Reykjavík, vita það, að
S. D. M. lifir og eflist, en S. F.
R. er andvana fætt. A.
Maðurinn með 19 atkvæðin
er Sigurður Jóhannsson fra
Brautarholti almennt kallaður síð-
an hann var „kosinn“ fomiaður
í Heimdalli á fjölmennum aðal-
fundi í félaginu, þar sem mættir
voru 22 „meðlimir" af þeim 800,
sem skráðir eru í bækur félags-
ins. Mun eiga að taka þessa ráð-
stöfun þannig, að Heimdallur eigi
að deyja, eins og öll önnur félög,
sem Sigurður hefir komið nálægt,
samanber „Mjöll“ í Borgarnesi og
„Merkúr“. Blástakkur.
LAUGAVEG 1.
Sími 3555.
Hjálparsjóður
sendísveína.
Nýlega var á fundi í S. D. M.
stofnaður hjálparsjóður sendi-
sveina að tilhlutun Jóns Ólafs-
sonar. Enn hefir ekki verið sam-
in reglugerð fyrir sjóðinn, en það
mun bráðlega gert. Tilgangur
sjóðsins á að vera sá, að útvega
fátækum sendisveinum skjól og
hlífðarfatnað í hinu erfiða og vos-
búðasama starfi þeirra, og skal
þeim annaðhvort lánað úr sjóðn-
um til slíkra kaupa til einhvers
ákveðins tíma eða þá veittur
styrkur úr honum. Sjóðurinn
hyggst að fá starfsfé sitt með
frjálsum samskotum sendisveina
sjálfra og þeim velviljuðum bæj-
arbúum. Gjaldkeri S. D. M., Ein-
ar Bjamason, er jafnframt gjald-
keri sjóðsins og veitir móttöku
gjöfum í hann. Styrkið sjóðinn
og eflið samtökin. K. Þ.
Skráning
atvinnulausra sendisveina.
Atvinnulausir sendisveinar!
S. D. M. hefir opna skrifstofu,
sém oft getur útvegað ykkur
pláss og þess er vænst, að þið
notfærið ykkur skrifstofuna, sem
opin er allan daginn á Lækjar-
torgi 1 og hefir síma 4292.
Sendisveinum daglega útveguð
atvinna.
Ábyrgðarmaður:
Friðrik Sigurbjörnsson.
Prentsmiðjan Acta. -