Morgunblaðið - 29.05.2009, Qupperneq 1
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
bílar
Ökumenn BMW-bifreiða eru taldir hegða sér einna
verst í umferðinni og vera ögrandi í aksturslagi 4
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
S
tutt er síðan þátttaskil
urðu í sólarhringskapp-
akstrinum í Le Mans í
Frakklandi. Byltingar-
kennt þótti er Audi og
síðar Peugeot tefldu fram bílum
knúnum dísilmótorum. Og gangi
áætlanir svissneska fyrirtækisins
GreenGT upp er þess ekki langt að
bíða að rafmagnsbílar keppi í kapp-
akstrinum sögufræga.
Nýr hugsunarháttur
Audi hefur gjörbreytt hugsunar-
hætti í keppnisgeiranum gagnvart
dísilvélum með R10-bílnum. Hefur
hann verið ósigrandi í Le Mans und-
anfarin þrjú ár en dísilbíll Peugeot
hefur ógnað veldi Audi og unnið
mörg mót í ár og fyrra í Le Mans-
mótaröðinni svonefndu austan hafs
og vestan.
Og nú hyggst GreenGT verða
álíka múrbrjótur með bíla sem
knúnir eru raforku og hefur það
smíðað hugmyndabílinn Twenty-4
2011. Bíllinn er hannaður af nem-
endum hönnunarskólans í Val-
enciennes í Frakklandi og byggist á
undirvagni frumgerðar keppnisbíls
sem GT smíðaði til prófunar í ár.
Straumfræði Twenty-4 2011 bíls-
ins byggjast á því að hann verði sem
hraðskreiðastur og dragi sem
lengst. Ráðgert er að hann verði
knúinn tveimur 100 kílóvatta raf-
mótorum er skili 2000 Nm togi og
allt að 450 hestöflum.
Ásækið útlit
Aðalhönnuður bílsins er Frakkinn
Thomas Clavet en hann segir bílinn
eiga að geta náð 10 km hraða á innan
við fjórum sekúndum og 275 km/klst
hámarkshraða. Útlitið er ásækið,
beinlínis óeirið, með ýktum uggum
hér og þar út úr yfirbyggingunni. Og
þetta er ekki einvörðungu ímynd-
unarbíll, því GreenGT heitir því að
koma með bíl er byggir á hug-
myndabílnum til keppni í Le Mans
eftir tvö ár, 2011.
Efasemdarmenn hafa ekki setið á
sér – ekki frekar en er Audi undirbjó
komu dísilbílsins. Þeir segja að bíl-
inn muni skorta drægni til að geta
haft roð við bensín- og dísilbílunum.
Það fer eftir þróun rafgeyma-
tækninnar hvenær þaggað verður
niður í þessum röddum, en
GreentGT treystir á að henni hafi
fleygt mjög fram að tveimur árum
liðnum frá því sem nú er.
Keppnisbíll Bílnum góða verður teflt fram í Le Mans 2011, fyrstum rafbíla.
Hraðskreiður rafbíll GreenGT Twenty-4 hugmyndabíllinn er trúr ímyndinni um hraðskreiða og langdrægra Le Mans-bíla.
Ætla að keppa á rafbíl í Le Mans 2011
Norski bílaframleiðandinn Think
braut blað í sögunni í vikunni er
hann hlaut fyrstur bílsmiða vottun
er gildir samtímis í öllum aðildar-
ríkjum Evrópusambandsins (ESB).
Í vottuninni er skrifað upp á að
Think City EV-bíllinn sé öruggur til
aksturs á hraðbrautum og öðrum
þjóðvegum. Til þess að hljóta viður-
kenninguna gekkst bíllinn undir
próf þar sem rúmlega 40 þættir í
honum voru reyndir.
Þar á meðal var árekstrarpróf,
prófanir á bremsuvirkni, ljósabún-
aði, útblæstri og ýmsum verk-
fræðilegum atriðum. Þar sem um
rafbíl er að ræða losar Think City
EV ekkert gróðurhúsaloft í út-
blæstri sínum.
Umrædd vottun er sögð munu
greiða fyrir mun fljótari innleið-
ingu Think City EV-bílsins á
Evrópumarkaði en ella.
Öruggur bíll Gefin var út vottun
upp á að Think City EV bíllinn sé
öruggur til aksturs á hraðbrautum.
Think fær
vottun fyrir
hraðbrautir
Sjö ára stúlka settist undir stýri
fjölskyldubílsins og ók eftir hjálp,
eftir að faðir hennar beið bana í
umferðaróhappi.
Varðstjóri í bænum Clovis segir
að stúlkan hafi áttað sig á hvern-
ig komið var fyrir föður hennar
eftir að bíllinn valt.
Stúlkunni tókst að koma bílnum
af stað og hafði ekið um 5 km er
bílstjóri tók eftir henni. Hún og
fjögurra ára bróðir hennar
meiddust aðeins lítilsháttar í at-
vikinu. Stúlkan sagði að faðir
hennar hefði ætlað til Clovis að
kaupa bjór en talið er að hann
hafi verið undir áhrifum áfengis
undir stýri.
Bílvelta Sjö ára stúlka ók eftir
hjálp eftir að faðir hennar velti
bílnum sem þau voru í.
7 ára stúlka
ók eftir hjálp