Morgunblaðið - 29.05.2009, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2009
Bílar 3
ar sú að þó slíkt geti átt við um ein-
staka gerðir þá eru til bílar inn á
milli, eins og Alfa Romeo 75, sem eru
með því áreiðanlegasta sem fyrir-
finnast. Dale segir það einmitt vera
ástæðuna fyrir því að 75 Experience
notast við Alfa Romeo 75 en að auki
hafi bíllinn góða þyngdardreifingu,
afturhjóladrif og skotheldar vélar
auk þess sem hann er léttur, býr yfir
mátulega miklu afli fyrir byrjendur
og er jafnframt ódýr. Ekki er heldur
verra að nóg er til af slíkum bílum.
Á tæplega tíu ára ferli fyrirtæk-
isins hefur aldrei bilað vél í Alfa Ro-
meo 75 bíl og telst það vera nokkuð
gott þar sem mest notaði bíll fyrir-
tækisins er ekinn 226 þúsund kíló-
metra og þar af 120 þúsund bara á
slaufunni en þar jafnast hver kíló-
metri á við marga kílómetra á venju-
legum vegum. Sá bíll hefur verið í
stanslausri notkun síðan 2001.
Öryggisins vegna eru bílarnir
endurbyggðir og fá þeir við þá með-
ferð veltibúr, stálofnar bremsu-
leiðslur, körfustóla og fjögurra
punkta öryggisbelti, sérhönnuð stýri,
betri bremsur, keppnisdekk og sér-
stillta fjöðrun svo eitthvað sé nefnt.
Niðurstaðan er sú að bílar sem venju-
lega kosta tvö til þrjú þúsund evrur
kosta þegar upp er staðið um fimm til
sex þúsund evrur en þá eru þeir líka
klárir til útleigu.
Göngutúrinn mikilvægastur
Stóra spurningin er hins vegar sú
hvað kostar að leigja bílana. Fyrir
1800 evrur fæst tveggja daga nám-
skeið með sérkennslu þar sem allt er
innifalið. Það er líka algengt að ganga
um brautina, sú þjónusta kostar 49
evrur en hver sem er getur reyndar
tekið þátt í því. Dale segir að göngu-
túrinn um brautina sé eitt það mik-
ilvægasta sem hægt er að gera því í
göngutúrnum falli öll púslin í þessari
flóknu braut á sinn stað. Það ætti að
vera nokkuð góður möguleiki að ná í
það minnsta 20 hringjum á slaufunni
þessa tvo daga og til samanburðar
má geta þess að 25 hringir á svoköll-
uðu Touristfahren, en þar er hægt að
kaupa einn hring í einu á 22 evrur,
kosta 390 evrur. Þá má ekki gleyma
því að 20 hringir eru 440 kílómetrar
og bensín og allur annar kostnaður
er innifalinn. Það má vera ljóst að við
svona akstur eyðir bíll einhvers stað-
ar í kringum 20 lítrum á hundraðið
eða meira og því er augljóst að það
fæst nokkuð mikið fyrir peninginn
hjá 75 Experience.
Þá er vissulega hægt að leigja bíla
áfram eftir svona viðkynningu. Hver
dagur kostar að sögn Dale 299 evrur
á Alfa Romeo 75 en einnig er hægt að
leigja dýrari bíla eins og Renault Clio
197, Renault Megane R26.R, BMW
M3 CSL og Porsche 911 GT3 af 996
gerð. Fyrir Porsche kostar dagurinn
1749 evrur en Renault Megane bíll-
inn, sem er hraðskreiðasti framhjóla-
drifsbíllinn á slaufunni, kostar 699
evrur.
Túr í druslunni
Dale var svo vænn að fara með
blaðamann í bíltúr á slaufunni í elsta
leigubílnum. Fyrst fékk blaðamaður
hjálm og svo er fundinn bíll sem ekki
er frátekinn. Frá aðstöðu fyrirtæk-
isins eru ekki nema nokkur hundruð
metrar að inngangi brautarinnar og
svo er bara ekið að næsta hliði og inn
á brautina.
Dale byrjar á því að hita dekkin
upp með því að beygja rösklega til
hægri og vinstri. Svo er allt gefið í
botn og druslan fær að finna fyrir
átökunum. Dale er vanur maður og á
þessum eldgamla útjaskaða bíl, er
hann mun sneggri í brautinni en
margir miklu dýrari bílar með
óreyndari ökumönnum innanborðs.
Fórnarlömbin eru tínd upp í hverri
beygjunni á fætur annarri, Porsche
911 bílar, BMW M3 og M5 og nánast
hvað svo sem verður á vegi hans er
létt bráð. Grip bílsins er mikið enda
er hann á hálfsléttum dekkjum (semi
slick) og með fjöðrun sem er sér-
staklega sett upp fyrir slaufuna. Á
beinasta kafla brautarinnar nær
þessi gamli bíll 200 km/klst, nokkuð
sem blaðamaður hefði alls ekki búist
við að hann gæti fyrir það fyrsta.
Allan tímann sat blaðamaður í
mestu rólegheitum í öruggum körfu-
stólnum, vel reyrður ofan í sætið og
fullur trausts á hæfni Dale.
Frómt frá sagt, þá er þetta reynsla
sem allt bílaáhugafólk ætti að upplifa
og því best að byrja að spara sem
fyrst fyrir næsta sumri, nú eða þar-
næsta, því þetta hlýtur að vera ein
besta leiðin til að kynnast slaufunni
nánar og er þetta skynsamlegt skref
til að stíga áður en ákveðið er hvort
farið er út í eigin rekstur á brautar-
bíl.
Morgunblaðið/Ingvar Örn
rskennari frá Bandaríkjunum með mikla
g fé að aka brautina af öryggi.
kynn-
ri
Morgunblaðið/Ingvar Örn
Snöggur ökumaður Dale Lomas í höfuðstöðvum fyrirtækisins. Hann þekk-
ir Nordschleife eins og lófann á sér og er afar snöggur ökumaður.
TENGLAR
..............................................
http://www.rsrnurburg.com/
Hrátt rými Innanrýmið í brautarbíl er heldur hrátt en lausir vírar tíðkast
þó ekki venjulega. Við þetta tækifæri var verið að vinna í bílnum.
Græjur Á versktæði RSR Nürburg er mikið af merkilegum og áhugaverð-
um bílum. Þarna getur að líta forvera Ultima bílsins sem er hannaður af
snillingnum Lee Noble en í dag framleiðir Noble bíla undir eigin nafni.
Maður með dellu fyrir mótorhjólum
og minjagripum vildi ólmur eignast
skírteini yfir keppnisréttindi banda-
ríska leikarans Steves McQueens á
mótorhjólum, sem var falt á uppboði
í Kaliforníu á dögunum.
Hann var ekki einn um hituna, því
fjölmarga aðra langaði líka í skír-
teinið. Því var tekist á um það og
stöðugt hækkuðu tilboðin. Þegar
spurningum uppboðshaldara um
frekari boð var ekki svarað er
42.700 dollara boð lá fyrir sló hann
hamrinum í borðið.
Dellukarlinn varð því að reiða
fram sem svarar 5,3 milljónum ís-
lenskra króna fyrir réttindaskírteini
McQueens. Það var gefið út árið
1964 og hefur að geyma mynd af
leikaranum fræga og undirskrift
hans.
Skírteinið var meðal gripa á
mótorhjólauppboði á vegum Bon-
hams & Butterfields-uppboðshaldar-
anna í Kaliforníu fyrr í maí.
Dýrt gaman Mótorhjólakeppnisleyfi Steve McQueen seldist dýrum dómum
á uppboði í Kaliforníu nýlega eða á um 5,3 milljónir íslenskra króna.
Keypti skírteini
McQueens fyrir stórfé
Frægur Steve McQueen var vel
þekktur hér áður fyrr.
Bremsuhlutir
í alla jeppa
og pickupa
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Diskar
Klossar
Dælur
Borðar
Ísetningarþjónusta
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
E
H
F
.