Nýtt kvennablað - 19.06.1940, Blaðsíða 12

Nýtt kvennablað - 19.06.1940, Blaðsíða 12
8 NÝTT KVENNABLAÐ Belgíu? Hafa þær eins og þúsundir kvenna í þessum löndum séð heimili sín lögð í rústir og ástvini sína drepna, eða horft á eftir þeim, út í vitfyrring stríðsins? Lifa þær einhversstaðar sem heimihslausar flóttakonur, fjarri öllu, sem þeim er kært. Eða hvert verður iilutslcipti ensku og frönsku kvennanna? Þannig getum við haldið áfram að spyrja um flestar þær, sem þarna voru samankomnar. En við vitum, elckert, ekki einu sinni hvernig dönsku konunum liður, sem sýndu okkur ó- gleymanlegan vináttuhug og vinsemd. Við höf- um ekki einu sinni fengið fundargerð frá þing- inu, því að áður en hún liefir verið fullgerð, var ófriðarblikan orðin það uggvænleg, að allt annað en nauðsynlegustn varnarriáðstafanirvarð að bíða. Við fréttum síðast, að danska Kven- réttindafélagið hefði lánað skrifstofur sínar og allt starfsfólk í þjónustu loftvarnanna. Það er kunnara en svo, að hér þurfi um það að tala, livað gerðist í Danmörku 9. apríl s.l. Það þarf því ekkert sérstaklega lifandi ímynd- unarafl til að geta sér til hvernig umhorfs er i huga dönsku lcvennanna. Þannig er þá ástandið nú og við verðum, að horfast í augu við þann hitra sannleika, að konurnar hera sinn lduta af sökinni. Því jafn- vel þó öll okkar samúð sé með þeim, sem nú berjast fyrir frelsi og lýðræði og orðið liafa fyrir villimannlegum árásum, ])á finnum við, að rót alls þessa hlýtur að liggja dýpra en svo, að það sé grimmd og droltnunarstefna tveggja eða þriggja manna. Það hlýtur að vera mein- semd, sem fyrst þarf að lækna, áður en liægt er að gera sér vonir um betra lif fyrir mann- kynið. Það er ekki nóg að tala fögur orð um jafn- rétti og frið, og umbætur á öllum sviðum. Það hefir ekki skort á alþjóðafúndi, friðarþing og afvopnunarráðstefnur, en það hefir skort á heilindi. Einhverjar veigameslu röksemdir lcarlmann- anna fyrir því, að þeir séu til þess fæddir að stjórna heiminum eru þær, að þeir séu í mjög mildu ríkara mæli gæddir rökréttri hugsun og rólegri dómgreind. Má vel vera að svo sé. En þá hlýtur sú spurning að vakna: Ef það er rök- vísi og kaldhyggja, sem komið hefir mannkyn- inu á ])á vonarvöl, sem það nú cr á, mundi þá saka þó m,inna gætti þeirra eiginleika og meira umburðarlyndis og kærleika, sem hvorttveggja er talið kvenlegar dyggðir. Hlédrægni er eiginleiki, sem flestar konur hafa fengið í vöggugjöf og sem sízt má lasta. En hlédrægni getur verið um of. Orsakist hún af minnimáttarkennd, hlýtur hún að vera Þránd- ur i Götu konunnar til jafnrar stöðu við lcarl- manninn. Og sé það af lilédrægni að konurnar eftirláta hræðrum sínum að ráða flestum þjóð- félagsmálum, þá er liún liæltuleg, því að við verðum að skilja, að um leið og við höfum öðlazt stjórnmálalegt jafnrétti við karlmenn- ina, þá berum við einnig ábyrgð á því hverjir stjórna og hvernig stjórnað er. Þótt útlitið sé nú svart megum við ekki ör- vænta. Ef lífið á þessari jörð á að vera þess virði, að því sé lifað, verðum við að vona, að jafnvel upp af þjáningum mannanna og ógnum styrj- aldarinnar geti vaxið eitthvað gott, sem kon- urnar hafi djörfung og dug til að vera með í að skapa. María J. Knudsen. Stór fjársöfnun mun hefjast í bænum næstu daga á vegum nefndar þeirrar, er á að skipu- leggja og sjá um að sem flest Reykjavíkur- börn fái að dvelja í sveit einhvern tíma af sumr- inu. Nefndina skipa fulltrúar frá ríki og bæ og Rauða Krossinum. Mörg kvenfélög bæjarins liafa gengið sem sjálfboðaliðar inn í starfið. Konur skipta a<5 öðru jöfnu við þá, sem auglýsa í blaði þeirra. Munið handsápuna de /Daría. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.