Morgunblaðið - 22.06.2009, Page 1
SAMTÖK atvinnulífsins vilja að rík-
isvaldið selji ríkisbankana til er-
lendra aðila, svo bönkunum sé kleift
að þjóna atvinnulífinu og þörfum
þess. Þetta kom fram í viðræðum að-
ila vinnumarkaðarins og ríkisstjórn-
arinnar í gærkvöldi, þar sem rætt
var um gerð stöðugleikasáttmála.
Þar var einnig fjallað um stór-
framkvæmdir og hugsanlega þátt-
töku lífeyrissjóðanna í fjármögnun.
Framkvæmdir eru taldar mik-
ilvægar svo halda megi atvinnustig-
inu.
Vilhjálmur Egilsson formaður SA
segist bjartsýnni nú en fyrir helgi um
að lending náist í samningamálum.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ tók í
svipaðan streng og sagði fundinn í
gærkvöldi hafa verið árangursríkan.
„Nú hafa menn náð þræði, en spurn-
ingin er sú hvort úr verði klæði,“
sagði Gylfi. sbs@mbl.is | 2
Hafa náð
þræði í við-
ræðunum
Bjartsýni ríkjandi
Morgunblaðið/Heiddi
Umkringdur Uppnám varð hjá lögreglu og slökkviliði vegna málsins. Maðurinn reyndi einnig að keyra inn í Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar.
ÖKUMAÐUR á jeppa ók um níuleytið í gær að
slökkvistöðinni við Skógarhlíð og þar í gegnum all-
ar hurðir sem snúa að Skógarhlíðinni. Þær eru sex
talsins og eru nú allar ónothæfar utan ein, en þar
var opið. Slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins segir þetta mikið tjón og áfall. Hann
segir ómögulegt að vita hvað manninum gekk til.
Slökkviliðsmenn reyndu að króa manninn af
með því að keyra á hlið bílsins á sjúkrabifreiðum,
án árangurs. Eltingarleiknum lauk við lögreglu-
stöðina á Hverfisgötu þar sem hann var handtek-
inn. Þangað hafði hann ekið, sýnilega til þess að
keyra á lögreglustöðina. Tveir lögreglubílar eru
stórskemmdir, annar sem kom að Skógarhlíð og
hinn sem stöðvaði loks ökumanninn við Hverfis-
götu. Auk þess ók hann á fólksbíl á leiðinni.
Kristján Ólafur Guðnason, staðgengill yfirlög-
regluþjóns, sagði að maðurinn yrði í haldi yfir
nóttina og að rannsókn stæði nú yfir. Ekkert væri
hægt að staðfesta um tildrög eða ástæður að svo
stöddu. halldorath@mbl.is
Ók í gegnum fimm hurðir
Morgunblaðið/Júlíus
Skemmdir Tveir lögreglubílar skemmdust verulega í eltingarleiknum.
Morgunblaðið/Heiddi
Náðist Maðurinn var loks króaður af við lögreglustöðina við Hverfisgötu.
Ökumaður olli stórtjóni hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins Lögreglan elti
manninn frá Skógarhlíð að Hverfisgötu Tvær lögreglubifreiðar stórskemmdar
M Á N U D A G U R 2 2. J Ú N Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
167. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«FLUGAN SVEIMAÐI UM BORGINA
SÖNGUR, DANS OG
KAFFI Í HLJÓMSKÁLANUM
«HEILSUHÚS KATTA OG HUNDA
DÝRIN FÁ HÓMÓ-
PATAMEÐFERÐ
ÓMAR Stefánsson, oddviti framsóknarmanna í Kópa-
vogi, kveðst ekki hafa átt von á ákvörðun Gunnars I.
Birgissonar sem kom fram í yfirlýsingu bæjarstjórans í
gær.
Gunnar sendi fjölmiðlum yfirlýsingu þar sem hann
kveðst munu víkja sæti sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúi
í Kópavogi á meðan lögreglurannsókn fer fram á mál-
efnum Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Hann
treysti því að rannsókninni verði flýtt eins og kostur sé.
Gunnar segist ekki hafa tekið ákvörðunina vegna
þrýstings frá framsóknarmönnum um áframhaldandi
samstarf í bæjarstjórn. Hann ítrekar að enginn glæpur hafi verið framinn
og hafnar yfirlýsingum Flosa Eiríkssonar og Ómars Stefánssonar um að
hann hafi vísvitandi borið rangar upplýsingar fyrir Fjármálaeftirlitið.
Ómar sagðist ekki myndu gefa út neinar tilkynningar um samstarfið fyrr
en eftir fund í fulltrúaráði flokksins sem haldinn verður í kvöld. | 6
Gunnar I. Birgisson í tímabundið leyfi
Kom Framsókn á óvart
Gunnar Birgisson
Jóni Steinari
Gunnlaugssyni
hæstaréttardóm-
ara þykir það að-
alatriði í Icesave-
málinu að fá úr
því skorið hvort
íslenska þjóðin
skuldar inni-
stæðueigendum
fé að lögum. Með
samningnum sem
nú liggur fyrir sé verið að afsala Ís-
lendingum rétti til að fá úrlausn
dómstóla í málinu. Þennan rétt seg-
ir Jón Steinar helgan í öllum sið-
menntuðum ríkjum.
Jón Steinar telur það skyldu ís-
lenskra stjórnvalda að tryggja
þjóðinni rétt til að fá úrlausn máls-
ins fyrir óháðum og óhlutdrægum
dómstólum. »15
Skylda ráðamanna að láta
dómstóla fjalla um Icesave
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Fjórir leikir fóru fram í Pepsideild
karla í fótbolta í gær. Sigur Grind-
víkinga gegn Fylki kom á óvart.
Fram lagði KR örugglega. FH og
Keflavík lönduðu sigrum.
Grindavík lyfti
sér af botninum
Ísland og Eistland skildu jöfn í und-
ankeppni EM í handknattleik í gær.
Athygli vakti að Hreiðar L. Guð-
mundsson markvörður lék með
Man Utd derhúfu í síðari hálfleik.
Hreiðar var með
derhúfu í markinu
Hermann Hreiðarsson hefur fengið
tilboð frá enska 1. deildarliðinu
Middlesbrough. Landsliðsmaðurinn
ætlar að ákveða á næstu dögum
hvar hann leikur næstu árin.
ÍÞRÓTTIR
Hermann er með
tilboð frá „Boro“