Morgunblaðið - 22.06.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
SKÓLAGJÖLD við íslenska há-
skóla hækka í haust, þar sem þau
eru innheimt. Kostnaðurinn við að
stunda grunnnám í heilan vetur
hjá Háskólanum í Reykjavík, Há-
skólanum á Bifröst og Listaháskóla
Íslands hækkar nú um 34 til 38
þúsund krónur. Það svarar til 8-
12% hækkunar frá fyrra ári.
Skráningargjöld í Háskóla Ís-
lands, Háskólanum á Akureyri og
Landbúnaðarháskólanum á Hvann-
eyri verða áfram 45 þúsund krón-
ur.
HR er einkahlutafélag, en LHÍ
er sjálfseignarstofnun, eins og Há-
skólinn á Bifröst. Skólarnir hafa
frjálsar hendur um fjárhæð skóla-
gjalda.
Skólagjöld fyrir veturinn 2009-
2010 verða 308 þúsund krónur í
HR, og 320 þúsund krónur í LHÍ.
Dýrasta grunnnámið er á Bifröst,
nú mun kosta 510 þúsund krónur
að stunda fullt nám þar.
Hafa verið óbreytt í þrjú ár
„Skólagjöldin hjá okkur hafa
verið óbreytt í þrjú ár, nú hækka
þau um 8%. Þegar litið er til
hækkunar á verðlagi á sama tíma
er því um raunlækkun að ræða,“
segir Ágúst Einarsson, rektor á
Bifröst. Þegar gjöldin hafi verið
óbreytt svo lengi sé ekki óeðlilegt
að hækka. Þá hafi húsaleiga á
nemendagörðum á Bifröst verið
lækkuð á móti um 20%. Skólagjöld
í meistaranámi og frumgreinanámi
séu svipuð eða lægri en hjá öðrum
skólum.
„Ástæða þess að grunnnámið er
dýrara hjá okkur er sú að kennsl-
an er með allt öðrum hætti. Við
leggjum áherslu á verkefna- og
hópvinnu í litlum hópum. Nám-
skeið í grunnnámi eru ekki haldin í
stórum fyrirlestrasölum og því er
allt önnur nálgun við námsefnið,
sem miðar að meiri virkni nem-
enda í tímum.“
Þrátt fyrir að hart sé í ári virðist
hækkun á skólagjöldum ekki hafa
áhrif á aðsókn í háskólanám.
„Við merkjum það ekki í aðsókn
hjá okkur,“ segir Ágúst. „Lána-
sjóðurinn lánar bæði fyrir fram-
færslu og skólagjöldum og stuðn-
ingur hans er forsenda þess að svo
margir geta stundað nám, ekki síst
nú.“
Skólagjöld hækka um 8-12%
Skráningargjöld
ríkisreknu háskól-
anna verða óbreytt
eða 45 þúsund
krónur
Skólagjöld fyrir grunnnám
eitt skólaár
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn á Bifröst
Listaháskóli Íslands
2008-2009 2009-2010
274.000
308.000
472.500
510.000
285.000
320.000
12%
hækkun
8%
hækkun
12%
hækkun
Morgunblaðið/Jim Smart
Skólagjöld Hækka í haust, líkt og
leiga á ýmsum stúdentaíbúðum.
FJÓRAR langreyðar eru komnar á
land í Hvalfirði, en þar vinna um
70 manns að hvalskurði og vinnslu
hvalafurða. Þoka og lélegt
skyggni er nú á miðunum þar sem
Hvalur 9 var staddur í gærkvöldi,
djúpt suður af Reykjanesi. Stefnt
er að því að Hvalur 8 fari út í
næstu viku. Nægur hvalur er á
miðunum en sæmilega þarf að
viðra til að hvalveiðimenn geti at-
hafnað sig.
Um 70 manns starfa í hvalstöð-
inni í Hvalfirði þessa dagana, um
30 manns eru í áhöfn hvalbátanna
og um 20 við frystingu á Akranesi.
Samkvæmt reglugerð sjávar-
útvegsráðherra má í ár veiða 150
langreyðar.
Fjórir
hvalir á
land
Morgunblaðið/Kristinn
Hvalur Hvalskurður kominn á fullt.
VERÐLAUNAHRYSSAN Pandra kastaði á laugardagskvöldið folaldi í
haga skammt frá bænum Hjarðartúni í því sem ljósmyndari Morgunblaðs-
ins kom aðvífandi. Um er að ræða merfolald sem líklega mun hljóta nafnið
Sæborg en hún er komin undan stóðhestinum Vilmundi frá Feti.
Verðlaunahryssan Pandra kastar folaldi sínu og Vilmundar frá Feti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nýtt líf lítur dagsins ljós í Hjarðartúni
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
MIKILVÆGT er að halda dampi í verklegum
framkvæmdum til að tryggja atvinnu og fjár-
festingar. Í því augnamiði er nú horft til líf-
eyrissjóðanna um þátttöku og viðræður við þá
vegna málsins hefjast væntanlega nú í vik-
unni. Þetta kom fram á fundi aðila vinnumark-
aðarins og ríkisstjórnarinnar í gærkvöldi.
„Við þokumst alltaf nær markmiðinu. Hér
hefur verið rætt um hvort menn geti á næsta
sólarhring þroskað með sér samkomulag sem
dugar til samstarfs,“ sagði Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ, eftir fundinn. Þar sagði hann
hafa verið þrýst á um ákvarðanir af hálfu rík-
isstjórnar sem gætu stuðlað að því að Seðla-
bankinn tæki fyrr og hraðar en ella ákvörðun
um vaxtalækkun. „Með slíku væri komið til
móts við atvinnulífið svo það axli þær byrðar
sem okkar kjarasamningur felur í sér. Það er
vilji til að vinna áfram á þessum nótum og sjá
hvort við náum ekki til lands,“ sagði Gylfi.
Einnig sagði hann að fjallað hefði verið um
ráðstafanir í ríkisfjármálunum á árunum 2011
og 2012 sem ASÍ hefði þótt vanta inn í band-
ormsfrumvarpið.
Mikilvægt að hafa vonir
„Okkur er mikilvægt að hafa vonir um að ná
atvinnulífinu í gang. Starfsskilyrði fyrirtækja
þurfa að vera þess eðlis að þau geti hafið fjár-
festingar á nýjan leik og ráðið starfsfólk. Í við-
ræðunum í kvöld var annars margt undir, svo
sem ríkisfjármál, vextir, bankamál, gjaldeyr-
ishöftin og fleira,“ sagði Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Einkaframkvæmd góður kostur
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
sagðist að fundi loknum vænta þess að hægt
væri að ná einhverskonar stöðugleikasáttmála.
Aðspurður um hvort honum – af pólitískum
ástæðum – hugnaðist einkaframkvæmd stór-
verkefna almennt, það er með þátttöku lífeyr-
issjóðanna, sagðist Steingrímur ekki vilja láta
brjóta á slíku. „Þar sem við á tel ég einka-
framkvæmd góðan kost,“ sagði fjármálaráð-
herra og bætti við að við núverandi aðstæður
þyrfti að nálgast mál með öðrum hætti en venj-
an byði.
Við þokumst alltaf nær markmiðinu
Ríkisfjármál, vextir, bankamál og gjaldeyrishöft í deiglunni á fundi aðila vinnumarkaðarins og SA
Fjármálaráðherra jákvæður um einkaframkvæmd verkefna og þátttöku lífeyrissjóðanna þar
Morgunblaðið / Sigurður Bogi
Samtaka Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri SA, og Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra eftir fundinn í gærkvöldi.