Morgunblaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 19.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið
með sköttum til Alicante.
Sértiboð 24. júní. Takmarkaður fjöldi
sæta á þessu verði.
Allra síðustu sætin!
Alicante
24. júní
frá kr. 19.990
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin
í sólina við Alicante 24. júní á hreint
ótrúlegu verði. Gríptu tækifærið og
tryggðu þér flugsæti á frábærum
kjörum.
DANSSÝNING, kennsla í hjólastóladansi og
hjólastólarall var meðal þess sem í boði var á al-
þjóðlega MND-deginum sem haldið var upp á í
Hafnarfirði í gær.
Keppt var í þremur flokkum í hjólastólarall-
inu; rafmagnsstólum, handstólum og stjörnu-
flokki. Fyrrnefndu flokkarnir óku 800 metra leið
en í stjörnuflokknum voru þjóðþekktir Íslend-
ingar látnir leysa þrautir sem fólk í hjólastól
þarf að glíma við í sínu daglega lífi. Deginum
lauk með tónleikum á Thorsplani þar sem úrval
tónlistaratriða skemmti gestum.
Haldið var upp á alþjóðlega MND-daginn í Hafnarfirði í gær
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Vöktu athygli á baráttumálum félagsins
Morgunblaðið/Jakob
KÁRI Már Reynisson, 17 ára nem-
andi við Menntaskólann Hraðbraut,
var aðeins 12 ára þegar áhugi hans
kviknaði á byggingu gervitaugar
sem hjálpað gæti þeim sem orðið
hafa fyrir alvarlegum tauga-
skemmdum. Síðan þá hefur hann
þróað hugmyndina og aukið við
þekkingu sína. Hann lýkur stúdents-
prófi í sumar og stefnir á nám í líf-
efnafræði í Háskóla Íslands í haust.
Á dögunum bar verkefni hans,
Líkan að gervitaug, sigur úr býtum í
Landskeppni ungra vísindamanna.
Hann verður fulltrúi Íslands í Evr-
ópukeppni ungra vísindamanna í
París í haust en þar mun hann etja
kappi við efnilega vísindamenn frá
Evrópu, Ameríku og Asíu.
Leiðbeinandi Kára Más við sigur-
verkefnið var Hilmar Pétursson,
kennari við Menntaskólann Hrað-
braut. Líkan að gervitaug byggir á
hugmynd um hönnun tækis sem geti
lesið taugaboð í enda taugar sem
hefur farið í sundur, flutt þau
ákveðna vegalengd og komið boðun-
um til skila til líffæris, s.s. vöðva eða
inn í fjarlægari taugaenda. Lagðar
eru fram hugmyndir að því hvernig
tengja megi saman lifandi taugavef
og dauðan hlut úr ólífrænum efnum
og gerviefnum.
Fullt af hugmyndaauðgi
Í umsögn dómnefndar kemur m.a.
fram að verkefni Kára sé fullt af
hugmyndaauðgi og útfærsluhug-
myndir hans frumlegar. „Hugmynd-
ir eins og þessar hjá mjög ungum
vísindamanni á að skoða gaumgæfi-
lega og hvetja hann til frekari dáða á
þessu sviði. Hver veit nema upp úr
þeim hugmyndum vaxi raunverulegt
tæki sem eigi eftir að bæta líf þeirra
sem fást við alvarlegar tauga-
skemmdir.“ ylfa@mbl.is
17 ára menntaskólanemi
þróar líkan af gervitaug
Tekur þátt í Evr-
ópukeppni ungra
vísindamanna
Morgunblaðið/Ómar
HÍ Þar fór Landskeppni ungra
vísindamanna fram á dögunum.
STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir við fréttavef
breska blaðsins Telegraph í gær, að
viðræður standi yfir við alþjóðleg
matsfyrirtæki um endurmat, sem
nú stendur yfir á lánshæfiseinkunn
íslenska ríkisins. „Við höfum aug-
ljóslega áhyggjur og fólk í fjár-
málaráðuneytinu og Seðlabank-
anum hefur átt fundi með mats-
fyrirtækjunum, ekki aðeins Fitch,
og rætt þessa hluti,“ hefur Tele-
graph eftir Steingrími.
Fitch og Standard & Poor’s gefa
íslenska ríkinu einkunnina BBB,
sem er stigi fyrir ofan einkunn sem
flokkar skuldabréf sem „ruslbréf“.
Viðræður í gangi
við matsfyrirtækin
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
HLJÓTI væntanlegt frumvarp
um ríkisábyrgð á innistæðum Ice-
save-reikninganna ekki meirihluta á
Alþingi þýðir það endalok núver-
andi ríkisstjórnar að mati Gunnars
Helga Kristinssonar, prófessors í
stjórnmálafræði. Stefnt er að því að
frumvarpið verði lagt fyrir í vikunni
en á þingflokksfundi Vinstri grænna
fyrr í mánuðinum greiddu þrír þing-
menn flokksins atkvæði gegn samn-
ingnum. Auk þess hefur Atli Gísla-
son lýst sig andvígan samningnum.
Leggist öll stjórnaraðstaðan auk
þessara fjögurra stjórnarliða gegn
frumvarpinu fellur það með einu at-
kvæði.
„Ég get ekki séð að stjórnin sé
starfhæf ef hún kemur ekki í gegn
jafnmiklu grundvallarmáli og
þessu,“ segir Gunnar Helgi. Standi
stjórnarliðar ekki sameinaðir að
málefnum stjórnarinnar hefur
stjórnin ekki traustan þingmeiri-
hluta og verður þar með ekki fær
um að sinna hlutverki sínu, að mati
Gunnars Helga. Verði það raunin sé
óhjákvæmilegt að stjórnin falli og
sér hann ekki
fyrir sér að hún
myndi sitja áfram
nema ef til vill
sem bráðabirgða-
stjórn. „En hvað
nákvæmlega tæki
við er ekki auð-
velt að sjá.“
Öfugsnúið,
segir Bjarni
„Forsætisráðherra var með það
sem sitt helsta kosningamál að
koma Sjálfstæðisflokknum frá völd-
um, það er eitthvað öfugsnúið ef
hún ætlar núna að fara að halla sér
að honum,“ segir Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins
en Jóhanna Sigurðardóttir, for-
sætisráðherra, sagðist nýlega ekki
trúa því að flokkurinn myndi greiða
atkvæði gegn ríkisábyrgðinni.
Bjarni telur samninginn slæman
og ekki í samræmi við væntingar
sem til hans voru gerðar. Hann
reiknar ekki með að þingmenn
Sjálfstæðisflokks greiði atkvæði
með frumvarpinu. Hann segir þó
rétt að ríkið standi við sínar skuld-
bindingar en fyrst þurfi að útkljá
ágreining um hverjar þær eru ná-
kvæmlega. „Það er erfitt að finna
réttlætingu fyrir því að við föllumst
á að taka á okkur skuldbinding-
arnar að fullu í samningum án þess
að botn hafi fengist í þann ágrein-
ing.“
Engar getgátur um framhaldið
„Ég ætla nú ekki í neinar getgát-
ur um slíkt,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, fjármálaráðherra, inntur
eftir því hvað gerist verði frum-
varpið fellt. Hann segist munu
leggja frumvarpið fram sem stjórn-
arfrumvarp og reiknar með stuðn-
ingi þingmanna stjórnarinnar.
Steingrímur leggur áherslu á að
enn hafi ekki öll gögn verið lögð
fram. Þau muni fylgja frumvarpinu
og á grundvelli þeirra muni þing-
menn geta tekið upplýsta afstöðu til
málsins.
Icesave gæti fellt ríkisstjórnina
Stjórnmálafræðingur segir stjórnina verða óstarfhæfa felli þingið væntanlegt frumvarp um Icesave
Trú forsætisráðherra á að sjálfstæðismenn samþykki frumvarpið um samninginn reist á sandi
Efni Icesave samningsins var í
síðustu viku birt almenningi.
Stjórnarfrumvarp um málið verð-
ur að öllum líkindum lagt fyrir í
vikunni en ekki er ljóst hvort
þingmeirihluti er fyrir því.
Gunnar Helgi
Kristinsson
Bjarni
Benediktsson
Steingrímur
J. Sigfússon
LÖGREGLAN á
Suðurnesjum lýsir
eftir 17 ára gam-
alli stúlku, Alek-
söndru Rós Janko-
vic. Ekki er vitað
hvar hún heldur
sig en talið er að
hún sé á höfuð-
borgarsvæðinu.
Aleksandra er um 160 cm á hæð,
grannvaxin með dökkt sítt hár. Hún
var klædd í gallabuxur og í gráa
hettupeysu. Lögreglan biður alla
sem geta gefið upplýsingar um
ferðir Aleksöndru eða dvalarstað
hennar að láta lögreglu vita í síma
420-1800.
Lýst eftir 16 ára
stúlku