Morgunblaðið - 22.06.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
Eftir Dag Gunnarsson og
Halldóru Þórsdóttur
FRAMSÓKNARMENN í Kópavogi
skoða nú hug sinn varðandi áfram-
haldandi samstarf innan bæj-
arstjórnarinnar í kjölfar yfirlýs-
ingar bæjarstjóra um tímabundið
leyfi.
Gestur Valgarðsson, formaður
Framsóknarfélags Kópavogs, segir
að framsóknarmenn standi frammi
fyrir tveimur kostum. Annar sé að
mynda nýjan meirihluta með Sam-
fylkingunni og VG og hinn að halda
samstarfi með sjálfstæðismönnum
áfram nú þegar Gunnar hefur vikið
sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúi.
Gestur segir aðspurður að yfirlýs-
ing Gunnars um tímabundið leyfi
dugi á meðan kostirnir séu metnir.
Ómar Stefánsson oddviti fram-
sóknarmanna í Kópavogi kvaðst
ekki myndu gefa út yfirlýsingu um
málið fyrr en að loknum fundi í full-
trúaráði framsóknarmanna sem fer
fram í kvöld.
Ómar tekur undir yfirlýsingu
Flosa Eiríkssonar, sem sjá má brot
úr hér að ofan. „Við lögðum áherslu
á að við vissum að við fórum á svig
við reglurnar og sóttum við um und-
anþágu frá FME, þegar tekin var
upplýst ákvörðun um að setja féð
inn í bæjarsjóðinn. En þegar maður
ber saman gögnin þá sér maður að
verið er að leyna FME öllum stað-
reyndum.“
Gunnar hafnar
þessu og segir
öllum stjórn-
armönnum hafa
verið fullkunnugt
um málið. Það
hafi verið rætt
yfirleitt á hverj-
um stjórnarfundi.
Endurskoðandi
hafi svo gert at-
hugasemd við þetta og lánið verið
greitt upp. Gunnar segir öll sam-
skipti við FME hafa verið lögð fram
í stjórninni. Aðgerðir FME komi á
óvart því hann hafi talið sig hafa
gert munnlegt samkomulag.
Meta kosti í kvöld
Oddviti framsóknarmanna segir FME hafa verið leynt
staðreyndum Gunnar vísar í munnlegt samkomulag
„VIÐ nánari skoðun mína á margvíslegum gögnum, sem ég hef undir hönd-
um sem stjórnarmaður og hef einnig aflað mér sérstaklega, lítur út fyrir að
gögn hafi verið matreidd sérstaklega fyrir stjórn sjóðsins en aðrar upplýs-
ingar hafi síðan verið kynntar í lögbundnum skýrslum til FME. Afborganir
og útborganir á lánum til bæjarins virðast hafa verið tímasettar sér-
staklega til að villa um fyrir eða blekkja FME, án vitneskju almennra
stjórnarmanna.“ Þetta segir í yfirlýsingu Flosa Eiríkssonar, stjórnarmanns
í Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogsbæjar. Hann bendir á að sem stjórn-
arformaður taki bæjarstjóri þátt í daglegum ákvörðunum um rekstur og
honum sé að sjálfsögðu kunnugt um allar lánveitingar til bæjarins.
Gögn matreidd fyrir stjórn sjóðsins
Gunnar Birgisson Ómar StefánssonFlosi Eiríksson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
SAMKVÆMT samþykktum Lífeyr-
issjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar
er bæjarstjóri formaður sjóðsstjórnar
og tveir af fimm stjórnarmönnum eru
skipaðir af bæjarstjórn Kópavogs-
bæjar. Samskonar reglur gilda um
stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Ak-
ureyrarbæjar. Þá eru bæjarstjórar í
Vestmannaeyjum, Reykjanesbæ,
Húsavík, Fjarðabyggð og Akranesi
allir stjórnarformenn í viðkomandi líf-
eyrissjóðum starfsmanna sveitarfé-
lagsins. Reykjavíkurborg skipar
einnig borgarfulltrúa í Lífeyrissjóð
starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Sitja báðum megin við borðið
„Það getur skapað vanda að sömu
menn séu bæjarfulltrúar og stjórnar-
menn, að einn maður beri tvo hatta.
Þeir sitja þá báðum megin við borðið
ef t.d. sjóðurinn kaupir skuldabréf
bæjarfélagsins eða lánar því fé með
öðrum hætti,“ segir Ólafur Ísleifsson,
lektor í hagfræði við Háskólann í
Reykjavík. Ennfremur sé undarlegt
ef kveðið er á um í samþykktum sjóðs
að kjörnir fulltrúar skuli sjálfir sitja í
stjórn.
Ólafur bendir á að lífeyrissjóðalög-
in kveði skýrt á um áhættu vegna
fjárfestinga hjá einstökum aðilum.
Fjármálaeftirlitið hafi ekki heimildir
til að veita undanþágur frá lögunum.
Með því að kveða á um dreifða áhættu
er komið í veg fyrir að lífeyrir sjóð-
félaga glatist ef bakhjarlinn, t.d. sveit-
arfélag eða fyrirtæki sem hefur feng-
ið lán hjá sjóðnum, lendir í
fjárhagsvanda. Slíkar aðstæður sköp-
uðust t.a.m. þegar bandaríska fyrir-
tækið Enron varð gjaldþrota, þá
misstu starfsmenn bæði atvinnu sína
og lífeyri sinn, sem hafði verið undir
hatti fyrirtækisins.
Viðmælendur Morgunblaðsins
bentu á að við venjulegar aðstæður á
fjármálamarkaði væri þetta, lánveit-
ingar lífeyrissjóða sveitarfélaga til
sveitarfélaganna sjálfra, ekki endi-
lega líklegt vandamál. Ýmsir aðrir og
jafnvel betri ávöxtunarmöguleikar
væru þá í boði.
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða,
segir þetta fyrirkomulag um skipanir
í stjórnir hafa verið við lýði um ára-
raðir. Jafnan sitji í stjórnum annars
vegar fulltrúar vinnuveitenda og hins
vegar fulltrúar launþega. Hann bend-
ir á að lífeyrissjóðir séu undir mjög
ströngu eftirliti og rekur ekki minni
til að mál líkt og það sem komið er
upp í Kópavogi, hafi komið upp áður.
Þá hafi ekki verið rætt um að breyta
þyrfti fyrirkomulaginu.
Skipun stjórnar
í Kópavogi alls
ekki einsdæmi
Getur skapað vanda að bera tvo hatta
Morgunblaðið/Valdís Thor
Átök Mikið gengur á í Kópavogi, nú
síðast um lífeyrissjóð starfsmanna.
Í HNOTSKURN
»Lífeyrissjóður starfs-manna Reykjavíkurborgar
tekur ekki við nýjum félögum,
sem og sjóðir Húsavíkur, Nes-
kaupstaðar og Akraness.
»Þeir eru nú undir hatti Líf-eyrissjóðs starfsmanna
sveitarfélaga.
» Í stjórnum hvers og einssitja kjörnir fulltrúar.
Í samþykktum ýmissa lífeyris-
sjóða starfsmanna sveitarfélaga
segir að kjörnir fulltrúar skuli
sitja í stjórn. Fyrirkomulagið hef-
ur verið við lýði um árabil og ekki
verið talin ástæða til breytinga.
„NEI, það er enginn þrýstingur frá framsóknarmönnum
sem veldur þessari ákvörðun, ég hef ekki rætt við þá í
dag,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs.
„Ég taldi bara best að ég myndi stíga frá tímabundið til
að það gæti fengist vinnufriður í þetta mál.“
Gunnar sendi í gær frá sér yfirlýsingu þess efnis að
hann myndi víkja úr sæti bæjarstjóra og sem fulltrúi í
bæjarstjórn á meðan lögreglurannsókn fer fram. Gunnar
hafði áður ákveðið að víkja sem bæjarstjóri og taka sæti
sem bæjarfulltrúi. Hann kveðst að rannsókninni lokinni
að minnsta kosti munu snúa aftur sem bæjarfulltrúi og
ítrekar að enginn glæpur hafi verið framinn.
„Það tekur nú ekki nema tvo daga að fara í gegnum
bókhaldið, þetta er lítill og lokaður sjóður. Ég geri þetta
[vík sæti] til að pressa á að rannsóknin verði gerð sem
fyrst.“
Yfirlýsing Gunnars:
„Ég undirritaður vík sæti sem bæjarstjóri í Kópavogi
og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs á meðan lög-
reglurannsókn fer fram á málefnum Lífeyrissjóðs starfs-
manna Kópavogsbæjar. Slík rannsókn ein og sér vekur
tortryggni sem gerir mér ókleift að sinna störfum mín-
um eins og málum er að öðru leyti háttað. Ég treysti því
að rannsókninni verði flýtt sem kostur er enda liggur
málið ljóst fyrir í gögnum lífeyrissjóðsins en fjár-
málaráðuneytið hefur samkvæmt tillögu Fjármálaeft-
irlitsins skipað honum umsjónaraðila.
Ég vísa að öðru leyti í yfirlýsingu kjörinna stjórn-
armanna lífeyrissjóðsins frá 19. júní sl. og árétta að
stjórnin var samstiga í því efni að vernda hagsmuni sjóð-
félaga og var reglulega upplýst um allar aðgerðir hans.
Gunnar I. Birgisson.“
Gunnar segist ekki víkja vegna
þrýstings frá framsóknarmönnum
Morgunblaðið/RAX
Oddvitarnir Ómar Stefánsson og Gunnar Birgisson.
LEIKGLEÐIN var í fyrirrúmi á hinu árlega Skagamóti
Kaupþings í fótbolta fyrir drengi á aldrinum 6-8 ára.
Metþátttaka var í mótinu og rúmlega 1.100 keppendur
spörkuðu í tuðruna frá morgni til kvölds alla helgina í
íslensku sumarveðri. Nánar verður fjallað um mótið á
íþróttasíðum Morgunblaðsins í vikunni.
TAKTAR OG TILÞRIF Á AKRANESI
Morgunblaðið/Sigurður Elvar