Morgunblaðið - 22.06.2009, Síða 12
Reuters
Grimmd Borgarbúar við sundurtætt
hús eftir tilræðið á laugardag.
ÍBÚAR borgarinnar Taza Khar-
matu, skammt sunnan við olíuborg-
ina Kirkuk í norðanverðu Írak, leit-
uðu enn í örvæntingu að ástvinum
sínum í gær eftir blóðugasta tilræðið
í landinu í 16 mánuði. Vitað er að lið-
lega 70 manns létu lífið og um 200
særðust þegar vörubíll, hlaðinn
sprengiefni, var sprengdur í borg-
inni á laugardag.
Djúp hola myndaðist þar sem bíll
sjálfsmorðingjanna sprakk og um 80
hús jöfnuðust við jörðu. Lögreglan
sagði að vitað væri að minnst 72
hefðu látið lífið, þar á meðal væri
fjöldi aldraðra borgarbúa, kvenna og
barna. Íraskir starfsmenn stofnana
ríkisins og bandarískir hermenn
hjálpuðu til við leitina í brakinu í
gær. Alþjóða Rauði krossinn hefur
sent eitt tonn af lyfjum og öðrum
hjálpargögnum frá Kirkuk til Taza.
Íbúar Taza eru aðallega úr þjóð-
arbroti Túrkmena sem eru náskyldir
Tyrkjum og eru flestir úr röðum
sjía-múslíma eins og rösklega helm-
ingur þjóðarinnar.
Liðsmenn Al-Qaeda blekktu tvær
þroskaheftar konur til að sprengja
sig á útimarkaði í Bagdad í febrúar
2008 og féllu þá alls 98 manns. Sam-
tökunum er einnig kennt um ódæðið
á laugardag. „Þetta er hin sanna
ásjóna hryðjuverkamanna,“ sagði
íbúi á staðnum, Majid Shaker, sem
er 58 ára. „Þeir ráðast á saklaust fólk
á heimilum þess.“
Árásum hefur fækkað mjög í Írak
en í næsta mánuði munu bandarískir
hermenn byrja að yfirgefa að mestu
borgir landsins.
kjon@mbl.is
Mannskæðasta tilræðið í Írak í meira
en ár varð yfir 70 manns að bana
Al-Qaeda sagt á bak við ódæðið og fórnarlömbin einkum aldraðir, konur og börn
12 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
Grænlendingar fullvalda þjóð
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
TÍMAMÓT urðu á Grænlandi í gær
þegar þjóðin hlaut fulla sjálfstjórn í
innanríkismálum eftir að hafa lotið
yfirráðum Dana í
um 300 ár. Mar-
grét önnur Dana-
drottning, klædd
grænlenskum
búningi, afhenti
við hátíðlega at-
höfn forseta
þingsins skjal
með yfirlýsingu
þar sem tilgreind
voru hin nýju
völd landsstjórnarinnar. Grænlend-
ingar fengu takmarkaða heima-
stjórn þegar árið 1979.
Margrét verður áfram þjóðhöfð-
ingi landsins. Fjöldi erlendra gesta
var viðstaddur hátíðarhöldin í höf-
uðborginni Nuuk í gær og voru for-
seti Íslands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, og eiginkona hans, Dorrit
Moussaieff, meðal þeirra.
Um 57.000 manns, flestir þeirra
inúítar, búa á Grænlandi sem er
stærsta eyja heims. Kuupik Kleist
forsætisráðherra er úr vinstri-
flokknum Inuit Ataqatigiit sem vann
stórsigur í þingkosningum fyrir
skömmu, hlaut 44% atkvæða. Sium-
ut, flokkur jafnaðarmanna, hafði
verið við völd í 30 ár en galt afhroð.
Ýmis spillingarmál og óstjórn hafa
grafið undan flokknum.
„Við vöknuðum í morgun með
nýja von í brjósti,“ sagði Kleist í
ræðu sinni í gær. „Frá deginum í
dag hefst nýtt tímabil í sögu landsins
okkar, nýtt tímabil sem er fullt af
von og möguleikum.“ Margar þjóðir
hefðu orðið að fórna miklu fyrir full-
veldið en Grænlendingar hefðu náð
sínu fram með samræðum við Dani
þar sem „gagnkvæm virðing“ hefði
ríkt.
Landsmenn eru enn mjög háðir
fjárhagsaðstoð Dana og félagsleg
vandamál eru mikil í landinu. Sjáv-
arútvegur er aðalatvinnugrein
Grænlendinga og landsþingið ákvað
nýlega að veita Royal Greenland,
stærsta fyrirtæki landsins, liðlega
500 milljóna danskra króna framlag
úr landssjóði. Það jafngildir um 12
milljörðum ísl. kr.
Stjórnin taldi að veita yrði fyr-
irtækinu, sem er mjög skuldugt,
þennan stuðning vegna mikilvægis
þess fyrir efnahag landsmanna.
Kuupik Kleist
Danir fara áfram
með utanríkis- og
varnarmál
Scanpix/Keld Navntoft
Sögulegt Margrét önnur Danadrottning afhendir Josef Motzfeldt þingforseta skjal sem staðfestir fullveldi Græn-
lendinga og valdsvið innlendra ráðamanna. Grænlenska verður framvegis opinbert tungumál landsins.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HELSTI leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Íran,
forsetaframbjóðandinn Mir Hossein Mousavi,
hvatti stuðningsmenn sína í gær til að sýna still-
ingu. Kom þetta fram í yfirlýsingu á vef dagblaðs
Mousavis sem hefur krafist nýrra forsetakosn-
inga og sagðist á laugardag vera reiðubúinn að
deyja sem píslarvottur. Hann sagði í gær að
vatnaskil hefðu orðið í sögu Írana, fólk spyrði
hvað ætti að gera og „hvaða leið ætti að velja“. En
Mousavi virtist ekki vilja svara þeirri spurningu
sjálfur.
Skothvellir heyrðust í sumum hverfum Teheran
síðdegis í gær en ekki kom til neinna fjöldamót-
mæla. Að mestu ríkti ró á götunum, verslanir
voru opnar og einnig kvikmyndahús.
Sjálfboðaliðar trúarlögreglunnar, Basij, og lög-
reglumenn voru víða á ferli og leystu samstundis
upp alla hópa. Ljóst er þó að klofningur er í röð-
um klerkanna sem ráða öllu sem máli skiptir í Ír-
an. Margir þeirra eru sagðir bíða átekta, þeir vilji
sjá hvaða fylking sé líkleg til að sigra. En flest
bendir til að ajatollah Ali Khamenei, voldugasti
maður landsins, hafi ákveðið að berja mótmælin
niður af hörku. Sjónvarpsstöð í eigu stjórnvalda,
Press TV, skýrði frá því að 10 „hryðjuverkamenn“
hefðu fallið í átökum við lögregluna á laugardag.
Lögreglan notaði þá kylfur, táragas og há-
þrýstidælur gegn fólkinu og bæði lögreglumenn
og sjálfboðaliðar harðlínumanna beittu mikilli
hörku. Yfir 400 voru handteknir. Kveikt var í
tveimur bensínstöðvum og ráðist á varðstöð hers-
ins á laugardag.
Roger Cohen, fréttamaður The New York Tim-
es í Teheran, segir lögreglumann hafa grátbeðið
fólk um að slást ekki. „Ég á barn, ég á konu, ég vil
ekki berja fólk. Verið svo væn að fara heim,“ sagði
maðurinn. Einhver fleygði steini að honum og
fólkið hvatti hann til að ganga í lið með sér.
Alls hafa minnst 19 manns látið lífið undanfarna
daga auk þess sem margir hafa særst, að sögn
Press TV. Stöðin sagði ennfremur að Faezeh
Hashemi, elsta dóttir hins áhrifamikla klerks og
fyrrverandi forseta, Hashemi Rafsanjanis, og
fjórir aðrir úr fjölskyldunni hefðu verið handtekn-
ir í mótmælunum á laugardag.
Kyrrt á götum Teheran
Forsetaframbjóðandinn Mousavi virðist vera ráðalaus og fullyrt er að
ajatollah Khamenei hafi ákveðið að berja uppreisnina niður af fullri hörku
Reuters
Uppreisn Þátttakendur í mótmæl-
unum á laugardag gefa sigurmerkið
en liðsmenn trúarlögreglunnar Basij
beittu mikilli hörku gegn fólkinu.
Í HNOTSKURN
»Breska ritið The Economist segir aðfyrir kosningarnar hafi fjendur Ahmad-
inejads í innanríkisráðuneytinu lekið því að
byrjað væri að undirbúa talningarsvik.
»Rafsanjani sendi þá ajatollah AliKhamenei opið bréf, sagði að hann yrði
að tryggja heiðarlegar kosningar, ella yrðu
mikil vandræði. Rafsanjani hefur lengi ver-
ið harður andstæðingur Ahmadinejads.
MORGAN Tsvangirai, forsætisráð-
herra Zimbabwe, ver þá stefnu sína
að semja við Robert Mugabe for-
seta til að fá að taka þátt í stjórn
landsins. Tsvangirai er í heimsókn í
London og hvatti þá landa sína
sem flúið hafa frá Zimbabwe til að
snúa heim og vinna að uppbygging-
unni.
Hann sagði aðspurður í viðtali
við BBC að sú stefna Mugabe for-
seta að hrekja hvíta bændur frá
jörðum sínum hefði ekki heppnast
vel. Matvælaframleiðsla hefur
snarminnkað í landinu og efnahag-
urinn er í rúst. Tsvangirai var
spurður nánar út í þessi mál og
svaraði þá að þessi stefna Mugabe
hefði haft „skelfilegar afleiðingar“.
kjon@mbl.is
Ver sam-
starfið
ÞJÓÐVERJAR hafa lengi óttast
verðbólgu meira en flestar þjóðir en
þeir hafa sögulega reynslu af því hve
illa hún getur leikið almenning.
Kreppan hefur valdið því að tor-
tryggnir Þjóðverjar festa nú sumir
fé sitt í gulli og reyndar hefur smá-
sala á gulli margfaldast á allra síð-
ustu árum á Vesturlöndum.
Fyrirtækið TG-Gold-Super-
Markt hyggst nú bjóða fólki að
kaupa gull í sjálfsölum. Verða þeir á
flugvöllum og járnbrautarstöðvum á
500 stöðum í Þýskalandi, Sviss og
Austurríki. kjon@mbl.is
Bjóða gull í
sjálfsölum
SKURÐLÆKNAR við Monash-
læknamiðstöðina í Melbourne í
Ástralíu tengdu nýlega stóran
hjartagangráð við litla stúlku, Tay-
lor Gardner, sem fæddist fyrir tím-
ann, að sögn The Times. Skoðun á
móðurinni fyrir fæðinguna sýndi að
hjartað gæti ekki starfað eðlilega.
Barnið var aðeins níu daga gam-
alt þegar aðgerðin var framkvæmd
og vó 541 gramm, talið er víst að
aldrei hafi jafnlítið barn verið tengt
gangráð. Hjartað var á stærð við
lítið kirsuber. Gangráðurinn er enn
við hliðina á henni í vöggunni en
tengdur við hjartað með vírum.
Taylor er nú þriggja vikna og heils-
ast ágætlega, er orðin 720 grömm.
kjon@mbl.is
Gangráður
til bjargar