Morgunblaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 23
Heiður Kundera tekur
við verðlaununum.
RITHÖFUNDURINN fransk-
tékkneski Milan Kundera hlaut
hin virtu Heimsverðlaun
Simone og Cino del Duca stofn-
unarinnar á dögunum og voru þau
afhent við hátíðlega athöfn í
Frönsku akademíunni í París. Sér-
staka athygli vakti að höfundurinn
veitti þeim viðtöku sjálfur (sjá
mynd) en hann kemur afar sjaldan
fram opinberlega. Verðlaunin eru
veitt höfundinum fyrir að hafa
haldið uppi merkjum nútímalegs
húmanisma í verkum sínum. Verð-
launaupphæðin nemur 300 þúsund
evrum. Kundera hefur í gegum ár-
in hlotið margvísleg verðlaun og
viðurkenningar fyrir ritverk sín,
m.a. Medicis verðlaunin árið 1973
fyrir skáldsöguna Lífið er annars
staðar, Jerúsalemverðlaunin í árið
1985 fyrir skáldsöguna Óbærileg-
ur léttleiki tilverunnar, Aujo-
urd’hui verðlaunin árið 1993 fyrir
ritgerðasafnið Svikin við erfða-
skrárnar. Auk þess hefur hann
hlotið Herderverðlaunin árið 2000
og Grand prix frönsku akademí-
unnar árið 2001 fyrir höfund-
arverk sitt í heild.
Milan Kun-
dera verð-
launaður
Menning 23FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
LANDSLAGSLOFT-
MYNDIR Thomasar Graics
verða sýndar í Listasafni Ísa-
fjarðar frá og með deginum í
dag og fram á haust. Sýningin
ber heitið Waterscapes. Ljós-
myndir Thomasar Graics á
sýningunni eru allar teknar úr
flugstjórnarklefa listamanns-
ins. Bakgrunnurinn er mál-
verkið og er nálgun ljósmynd-
anna þaðan. Thomas hefur
margoft komið til Íslands í leit að litum, formi og
munstri í okkar margbreytilega landslagi.
Hægt er að sjá sýningu Thomasar Graics á opn-
unartímum Gamla sjúkrahússins.
Ljósmyndir
Thomas Graics
sýnir á Ísafirði
Eitt verka Graics.
Í TILEFNI af útkomu plöt-
unnar Papillions Noirs með
Tríói Vadim Fyodorov verða
haldnir tónleikar í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi í
kvöld. Tríó Vadim Fyodorov
hefur þá lokið ferð sinni um
landið og haldið tónleika á yfir
ellefu stöðum á landinu.
Á plötunni er samansafn af
lögum sem tríóið hefur haft á
efnisskrá sinni í gegnum tíðina
auk nokkurra laga eftir hljómsveitarmeðlimi. Va-
dim hefur verið búsettur í nær áratug á Íslandi og
er í dag tvímælalaust einn af fremstu starfandi
harmonikuleikurum á Íslandi.
Tónlist
Vadim Fyodorov í
Gerðubergi í kvöld
Tríó Vadim
Fyodorov.
ÁLFHEIÐUR Ólafsdóttir
opnar sýninguna Hugarþel í
Galleríi Ormi, Sögusetrinu á
Hvolsvelli, á morgun. Sýn-
ingin samanstendur af 24 ljós-
myndum og olíumálverkum
sem eru sprottin upp af lit-
brigðum þeim sem listamað-
urinn upplifði þann 20. maí,
eina fallega vornótt. Ljós-
myndirnar eru teknar með
klukkustundarmillibili í heilan
sólarhring. Álfheiður hefur unnið að list sinni
frá 1997 er hún opnaði sína fyrstu sýningu. Þar
á eftir hefur fylgt fjöldi einkasýninga og sam-
sýninga.
Myndlist
Álfheiður Ólafsdótt-
ir í Galleríi Ormi
Sýn, verk eftir Álf-
heiði.
HRYÐJU-
LISTAMAÐ-
URINN Banksy
hefur nú sett upp
sýningu í helsta
listasafni heima-
borgar sinnar,
Bristol, en verk
hans hafa hingað
til verið bundin
við götur og torg
– og söfn reynd-
ar, en Banksy hefur þá lætt þeim
inn óséður.
Um hundrað verk prýða nú safn-
ið, og fékk Banksy það í gegn að yf-
irmenn þess vissu ekkert hvað hann
ætlaði að gera. Margir aðdáendur
Banksy fögnuðu því að þessi and-
ófsmaður væri nú kominn alla leið
að hjarta „stofnunarinnar“ en sum-
ir vilja meina að þessi stræt-
islistamaður hafi slegið verulega af
hugsjónagildinu með sýningunni.
Banksy sjálfur lýsti því yfir að
þetta væri í fyrsta skipti sem skatt-
greiðendur greiddu fyrir uppheng-
ingu verka hans í stað útþurrkunar,
en mörg af graff-listaverkum hans í
kringum Bristol voru fjarlægð,
þrátt fyrir hörð mótmæli.
Ekki er enn vitað með vissu hver
Banksy er. Sumir vilja meina að
nafn hans sé Robin Gunningham, en
það hefur ekki verið staðfest.
Banksy segir sjálfur að hann sé rík-
asti graffari heims og á sæmi-
legasta tilkall til þess titils enn múr-
aðar stórstjörnur á borð við Brad
Pitt og Angelinu Jolie hafa greitt
himinháar upphæðir fyrir verk
hans.
Hinn brjálaði
Banksy
Eitt verka Banksy
á sýningunni.
Engin furða því þar
hefur mælst mestur
vindhraði á landinu, einir
67 metrar á sekúndu. 28
»
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
Á VERÐBÓLGUÁRUM síðustu ald-
ar gat verið erfitt að ávaxta fé. Ekki
dugði að geyma það undir koddanum
og lítið betra að hafa það í banka því
vextir höfðu ekki við verðbólgunni.
Sumir festu það í steinsteypu, en aðr-
ir keyptu annað það sem hlyti að
hækka jafnt og þétt, til að mynda
listaverk eða gamlar bækur. Þannig
komu margir sér upp virðulegum
bókasöfnum, tíndu saman í þau af
natni og alúð, skiptu út lélegum ein-
tökum af Sýslumannaæfum fyrir góð
eintök (og glæsilegum fyrir stór-
glæsileg) og smám saman urðu til
svo mikil bókasöfn að menn setti
hljóða þegar þeir börðu þau augum
(nema þá sem spurðu: „Ertu búinn
að lesa þetta allt?“).
Ósamhverfar upplýsingar
Í ljósi þess að engin opinber verð-
lagning er til á fornbókum, sem eru
að auki til í takmörkuðu magni eðli
málsins samkvæmt, hlýtur verð að
ráðast að mestu leyti af eftirspurn.
Takmarkað magn segir þó ekki alla
söguna því viðskiptin byggjast á
ósamhverfum upplýsingum – erfitt
er fyrir kaupandann að meta hve
mikið er til af viðkomandi bók (eru
bara til örfá eintök af Á refaslóð, eða
er fullur bílskúr einhversstaðar útí
bæ?). Verðlagningin hlýtur því að
byggjast á trausti, þ.e. að kaupand-
inn geti treyst því að þegar seljand-
inn segir bók nauðafágæta sé það
rétt.
Á blómaskeiði íslenskrar forn-
bókasölu, sem stóð frá sjöunda eða
áttunda áratug síðustu aldar fram til
aldamóta, var verð á öllum helstu
bókum sem safnarar ágirntust þegj-
andi samkomulag seljanda og kaup-
anda. Kaupandi sættist ekki síst á að
kaupa bók háu verði því hann treysti
því að bókin myndi hækka í verði og
hann fengi fjárfestinguna til baka og
ríflega það. Stjórn á verðlagningu
var að mestu leyti í höndum seljenda,
fornbókasala, sem voru yfirleitt sam-
mála um það hvað hvert eintak af til
að mynda Íslenskum sagnablöðum
ætti að kosta; þeir voru allir dýrir á
því, bara mis-dýrir.
Spjaldskráin góða
Seljandinn þurfti þó ekki bara að
vita á hvað viðkomandi bók hafði
selst síðast, heldur þurfti hann líka
að vita hvenær það var og geta fram-
reiknað verðið til dagsins í dag og
leggja síðan hæfilega á (stundum
með tilliti til þess hvað kaupandinn
væri tilbúinn til að borga eða hvað
hann gæti borgað). Á áttunda ára-
tugnum varð til spjaldskrá sem varð
einskonar biflía í þessum efnum, þó
ekki færu allir eftir henni, þar sem
tiltekinn fornbókasali, sem naut mik-
illar virðingar, skráði söluverð á
helstu bókum og síðan var það notað
sem grunnur verðlagningar í fram-
tíðinni. Þannig má segja að til hafi
orðið einskonar hálf-opinber verð-
lagning sem menn voru almennt sátt-
ir við – fornbókasalar gátu flett upp í
spjaldskránni (leitað til skrásetjara)
með verðlagningu og kaupendur sáu
að bækur þeirra urðu æ meiri dýr-
gripir eftir því sem árin liðu.
Smám saman urðu til geipidýr
bókasöfn, peningaseðlar í skinnbandi,
sem voru rædd í hálfum hljóðum
safnara á milli. Á níunda áratugnum
fór aftur á móti að fjara undan bóka-
söfnun, gömlu mennirnir, kaupmenn
og kaupendur, tóku að týna tölunni.
Þegar svo erfingjarnir ætluðu að
koma milljónasafninu í verð kom á
daginn að það var eiginlega ekki svo
mikils virði eftir allt saman, jafnvel
nánast einskis virði þegar upp var
staðið.
Verðmæti eða sýndarverðmæti
Málið er nefnilega að þegjandi
samkomulag um verð á fornum bók-
um, fornum dýrgripum, hefur lítið að
segja þegar aðilar þess eru fallnir
frá. Eftir því sem bókasafnarar safn-
ast til feðra sinna og fornbókasalar
týna tölunni fara verðmætin, sýnd-
arverðmæti, forgörðum.
Fleira hefur komið til, fólk fer
sjálft með bækur í Kolaportið eða
Góða hirðinn eða setur þær í nytja-
gám uppi í Sorpu. Annað sem skipt
hefur miklu máli er að markaðurinn
er að stórum hluta horfinn, menn
safna ekki bókum í dag eins og forð-
um, bókavinir eru horfnir að mestu
og líka þeir sem forðum festu fé í
bókum og listmunum enda er það
ekki góð ávöxtun. Hvers virði er það
sem enginn vill eiga?
Í stað þess að horfa á bókasafnið
hans pabba eða afa eða langafa með
söluverðmæti í huga ættu menn frek-
ar að líta til gleðinnar sem viðkom-
andi hafði af því að nurla bókunum
saman; hin rétta afstaða til bókasafns
felst nefnilega ekki í fjárgildi þess
heldur þeirri natni og alúð sem safn-
arinn lagði í það, eins og Walter Ben-
jamin segir í frægri ritgerð um bóka-
safn sitt (í íslenskri þýðingu Jóns
Bjarna Atlasonar): „[A]fstaða safn-
arans gagnvart munum sínum er
orðin til af tilfinningalegri skuldbind-
ingu eigandans við eigur sínar. Hún
er sem sagt í æðsta skilningi afstaða
erfingjans. Göfugasti eiginleiki bóka-
safns mun því ætíð verða fólginn í
erfðagildi þess.“
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Fornrit Mikil verðmæti eða myglað dót?
Sýslumannaæfir, Fornbréfasafnið, Safn til sögu Íslands,
Paradísarmissir, Íslensk sagnablöð, Sunnanfari, Ármann á
Alþingi; hljómar þetta ekki fornlega og forvitnilega? Hvað
þá með óræðari heiti eins og Hrappseyjarprent, Leirár-
garðaprent og Beitistaðaprent? Allt er þetta lykilorð í
orðabók bókasafnarans; þannig var enginn maður með
mönnum, safnari meðal safnara, nema hann ætti gott ein-
tak af Sýslumannaæfum og Safn til sögu Íslands er líka
meðal hornsteina í almennilegu bókasafni.
Það sem enginn vill eiga ...
SUMAR bækur verða alltaf dýrar og þá helst fræðirit og bækur sem geyma
fróðleik sem ekki er til annars staðar, til að mynda Safn til sögu Íslands og rit
Lærdómslistafélagsins. Að sama skapi eru sumar bækur svo sérstakar að
þær halda verðgildi sínu hvað sem á gengur, til að mynda tíu eintaka prent-
araútgáfan af Heimsljósum Halldórs Laxness – bækur sem eru til í svo fáum
eintökum að kaupendurnir bíða eftir dánarbúinu. Aðrar hafa lækkað í verði,
sem dæmi má nefna þessar:
Hálfir skósólar, fyrsta ljóðabók Þórbergs Þórðarsonar sem kom út 1915,
er gott dæmi um það hvernig fornbókamarkaður hefur breyst. 1979 seldust
Hálfir skósólar á því sem nam mánaðarlaunum iðnaðarmanns en í dag fást
þeir fyrir brotabrot af þeirri upphæð.
Svo er því farið með fleiri bækur, til að mynda voru frumútgáfur af bókum
Halldórs Laxness og Davíðs Stefánssonar á gríðarlega háu verði, en fást nú
fyrir mun minna og nánast ekki neitt sumar.
Árbækur Ferðafélags Íslands gengu kaupum og sölum á geipiverði en
kosta lítið sem ekkert í dag ef þá hægt er að selja þær. Fyrstu ábækurnar,
1931-1932, kostuðu á annan tug þúsunda fyrir fimmtán árum eða svo en selj-
ast ekki í dag nánast sama hvað á þær er sett.
Þær bækur sem enn dýrar seljast, til að mynda Guðbrandsbiblía, seljast á
hærra verði í krónum talið en fyrir þrjátíu árum, en borið saman við verð-
lagsþróun hefur verðið lækkað umtalsvert.
Sýslumannaæfir Boga Benediktssonar, sem getið er hér til hliðar og komu
út á árunum 1881 til 1932, voru taldar meðal hornsteina í góðu safni og kost-
uðu ríflega mánaðarlaun iðnaðarmanns, en þær myndu kosta 50.000-60.000
krónur í dag.
Breyttir tímar
ORÐ eins og tvítak og þrítak eru bókasöfnurum töm, en þá er átt við bók sem
safnari á í fleiri en einu eintaki, jafnvel mörgum eintökum. Oft er það vegna
þess að viðkomandi á tiltekna bók innbundna án kápu, en kemst síðan yfir
annað eintak með kápu (í sumum tilvikum eru kápur tiltekinna bóka dýrari
en góð eintök af bókinni kápulausri). Síðan eignast viðkomandi jafnvel eintak
með öðruvísi kápu, þ.e. prentaðri í öðrum lit, eða hreinni og þá er hann kom-
inn með þrítak og svo má áfram telja.
Annað sem fjölgar eintökum af tilteknum bókum hjá safnara er ef hann
rekst á mjög ódýrt eintak af bók sem hann keypti jafnvel háu verði á sínum
tíma. Þá er erfitt að standast að kaupa eintakið, hugsanlega með það fyrir
augum að selja það síðar eða til að réttlæta fyrri kaup (enginn skal fá bókina
á lægra verði en ég greiddi fyrir ...) nú eða bara til að eiga það. (Ekki má
gleyma því að safnarar eru sífellt að liðsinna öðrum söfnurum, tína til bækur
sem þeir hafa verið spurðir um eða þeir vita að tiltekinn er að leita að.)
Á undanförnum árum hefur Kolaportið haft mikil áhrif á bókasöfnun, því
þangað kemur kannski fólk með kompudót og selur sjaldgæfar bækur á
spottprís. Yfir því gína harðir safnarar, fara í Kolaportið um hverja helgi í
leit að kjörgripum. þeir fara líka reglulega í Góða hirðinn, því þangað berst
mikið af bókum og þá er um að gera að vera kominn snemma til að geta kló-
fest gersemarnar.
Í Góða hirðinum verður oft handagangur í öskjunni þegar góðir gripir ber-
ast og fræg er saga af því að fyrir nokkru hafi tveir fastagestir komið auga á
fágæti samtímis. Þeir settu öxl í öxl við að komast að bókinni, komu höndum
á hana að segja samtímis og toguðust á um hana þar til bókin hrökk í sundur.
Ekki fylgir sögunni hvort þurfti að greiða fyrir slitrurnar.
Eintak, tvítak, þrítak ...