Morgunblaðið - 22.06.2009, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Við borgum ekki, drepfyndin sumarskemmtun
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Lau 27/6 kl. 19:00 Fös 3/7 kl. 19:00 Lau 11/7 kl. 19:00
Fim 25/6 kl. 19:00 Ö Fös 26/6 kl. 20:00
Fös 4/9 kl. 19:00 U
Lau 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 19:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 11/9 kl. 19:00
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 U
Sun 20/9 kl. 14:00 Ö
Lau 26/9 kl. 14:00 Ö
Ísland er land þitt
Njóttu þess í góðum gönguskóm
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
46
59
7
06
/0
9
Vakuum Men GTX
Toppskór fyrir þá sem gera kröfur.
Skór sem henta í lengri og krefjandi göngur.
Vatnsvarið Nubuk leður.
MFS sér til þess að skórnir passa.
GTX vatnsvörn. Vibram sóli. Þyngd: 800 g.
Verð: 49.990 kr.
Fáanlegir í dömuútfærslu.
Colorado Lady GTX
Vinsælir, vandaðir og liprir skór.
Meindl Multigriff sóli. GTX vatnsvörn.
Nubuk vatnsvarið leður.
Þyngd: 590 g.
Verð: 39.990 kr.
Einnig fáanlegir í herraútfærslu.
TNF Mens
Adversary Mid GTX
Léttir, liprir og snaggaralegir göngu- og ferðaskór.
Vatnsvarðir með GTX. Vibram sóli.
Þyngd: 470 g.
Verð: 25.990 kr.
Fáanlegir í dömuútfærslu (Minx Mid GTX)
BRÓÐIR leikkonunnar Miu Far-
row, Patrick, fannst látinn í vikunni
í galleríi sínu í Castleton í Vermont.
Farrow var höggmyndasmiður og
var 66 ára að aldri. Hann framdi
sjálfsmorð með því að skjóta sig í
höfuðið.
Farrow var kunnur fyrir list sína
og margverðlaunaður sem slíkur.
Galleríið, sem áður var kirkja, rak
hann ásamt konu sinni Susan sem
er einnig listamaður. Lögregla kom
á svæðið eftir neyðarkall og strax
vöknuðu grunsemdir um ekki væri
allt með felldu.
Castleton er lítill háskólabær
með rúmlega 4.000 íbúum og voru
Patrick og kona hans svokallaðir
góðborgarar. Íbúar bæjarins eru að
vonum slegnir yfir fráfallinu og
lögmaður Miu hefur sent frá sér
formlega yfirlýsingu þar sem fram
kemur að öll stórfjölskyldan syrgi
hann sárt.
AP
Allur Patrick Farrow var kunnur höggmyndasmiður.
Bróðir Miu Farrow látinn
Framdi sjálfsmorð
Sýning Ernu Ómarsdóttur,Teach us to outgrow ourmadness, var frumsýnd í LeQuartz-Scene National de
Brest fyrr á þessu ári. Í dómum sagði
m.a.: „Óðagot með fullkominni
stjórn“ og „ofsafengin og frelsandi
leikhúsupplifun.“ Þetta má taka und-
ir.
Í stuttu máli fjallar verkið um kon-
ur og innri baráttu þeirra. Erna hefur
áður fengist við innri baráttu í verk-
um sínum, eins og í verki hennar og
Jóhanns Jóhannssonar, Mysteries of
love, sem fjallar um unglingaveikina
og tilfinningasveiflur sem henni
fylgja. Hér í Teach us to outgrow our
madness er fjallað um líf eldri
kvenna. Áhorfendur sjá nunnur,
nornir, systur og vinkonur í trylltum
dansi, nánast transi. Verkið sýnir
hversu mikið ólíkindatól konan getur
verið í samskiptum sínum við aðra;
leyndardómsfull, svikul, góð og kær-
leiksrík, en grimmdin er ekki langt
undan.
Erna er þekktur danshöfundur í
Evrópu og hefur unnið töluvert með
erlendum listamönnum. Hún hefur
verið kölluð „enfant terrible“ dans-
heimsins enda er hún einn frumleg-
asti listamaður sinnar kynslóðar.
Hún tengir saman dans, texta og tón-
list og hefur alltaf skýr markmið með
verkum sínum. Í Teach us to outgrow
our madness bætir hún um betur og
notar sönginn. Dansararnir flytja
texta, syngja og stundum virðist sem
einhver helgiathöfn sé í gangi. Einnig
er gripið til míkrófónsins og sungið
hástöfum, eða öllu heldur öskrað.
Undirrituð gat ekki annað en hugs-
að, þar sem hún sat í virðulegum sal
Þjóðleikhússins, hversu frelsandi
þetta verk væri fyrir dansarana sem
þarna tóku þátt og fann skyndilega
fyrir stolti fyrir hönd kynsystra
sinna; kvenna sem brotist hafa úr
ýmsum höftum sem samfélagið setur
þeim og hefur sett þeim í gegnum
aldirnar.
Dansararnir stóðu sig mjög vel,
voru gríðarlega kraftmiklir og leik-
ræn tilþrif voru mörg skemmtileg.
Sýningin er ákaflega ögrandi og
skilur áhorfandann eftir í tilfinninga-
uppnámi. Erna sýnir enn og aftur að
hún á sannarlega erindi við leik-
húsheiminn.
Frumleiki og frelsi
Ljósmynd/Roberto Flores Moncada
Brautryðjandi „Hún hefur verið kölluð „enfant terrible“ dansheimsins enda er hún einn frumlegasti listamaður
sinnar kynslóðar,“ segir gagnrýnandi um Ernu Ómarsdóttur, höfund verksins Teach us to outgrow our madness.
Þjóðleikhúsið
Teach us to outgrow our madness
eftir Ernu Ómarsdóttur
Dans og texti: Erna Ómarsdóttir, Sissel
Merete Bjorkli, Lovísa Gunnarsdóttir,
Riina Huhtanen, Sigríður Soffía Níels-
dóttir og Valgerður Rúnarsdóttir, í sam-
vinnu við Margréti Söru Guðjónsdóttur.
Tónlist: Lieven Dousselaere og Valdimar
Jóhannsson.
Ljós: Sylvain Rause
Þjóðleikhúsið, föstudaginn 19. júní.
INGIBJÖRG
ÞÓRISDÓTTIR
LEIKLIST